Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Síða 52
Vikublað 12. janúar 2018 40 Fer ða lög Sæluríkið Suður-Kalifornía afmarkast frá svæðinu sem liggur niður af Los Angels í átt að San Diego til landamæra Mexíkó. Þar eru veðurskilyrði með afbrigðum góð en mestan part ársins er hitastigið í kringum 20–25 gráður. Í þessari grein ætla ég að stikla á stóru um svæðið í kringum Los Angeles og strandbæina þar í kring en margir hafa líkt þeim, og fleiri stöðum í þessu frábæra fylki, við paradís á jörðu. Fyrst og fremst mun ég þó leit- ast við að deila gagnlegum ráðum um hvernig maður fær sem mest út úr ferðalaginu, því grein um allt sem hægt er að gera í Suður-Kali- forníu þyrfti miklu fleiri blaðsíður, ef ekki heila bók og jafnvel sjón- varpsþátt í kjölfarið. LOS ANGELES Borgin Los Angeles dreifist yfir mjög stórt svæði sem skiptist í nokkur hverfi eða umdæmi sem mörg hver eru ótrúlega mismun- andi hvað varðar íbúa og menningu. Meðal þessara hverfa eru til dæmis Beverly Hills, Brentwood, Hollywood, Koreatown, Compton, Silverlake, Echo Park og Santa Monica en flestir kannast líklega við að hafa heyrt á þau minnst í sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum. Sumir halda að L.A. sé ægileg glamúrborg en það er í raun tálsýn eins og svo margt annað sem frá henni kemur. Partí í heimahús- um eru þar miklu algengari en næturklúbbasamkomur en ef fólk langar að sýna sig og sjá aðra þá er töluvert líklegra að það gerist í einhverjum tólf spora hóp, í ræktinni eða á framandi jóganámskeiði. Gatan Sunset Boulevard, sem Donna Summer söng um á sínum tíma, er slagæð borgarinnar, alls 35 kílómetr- ar að lengd. Upphaf hennar er við Kyrrahafsströndina hjá Pacific Palisades-hverfinu og hún endar við Figueroa Street í „downtown“ Los Angeles en eftir henni er mjög gaman að aka. Til dæmis er upplagt að taka einn rúnt eftir götunni og hlusta „SeemS it never rainS in Southern California“ Margrét H. gústaVsdóttir margret@dv.is „Sem dæmi má nefna hótelgistingu, nudd, siglingu, siglingu og vínsmökk- un, þyrluflug, þyrluflug með ljósmyndum, B-12-sprautur (án gríns), botox-sprautur (án gríns), tónleika, gönguferðir með leiðsögn, kajakferðir, brettakennslu og svo framvegis og svo framvegis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.