Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Page 53
Vikublað 12. janúar 2018 41
„SeemS it never rainS in
Southern California“
GaGnleG ferðaráð
FluGið
Dvöl í Kaliforníu ætti aldrei að vera styttri en að minnsta kosti tíu dagar. Í fyrsta
lagi er flugferðin vestur eftir tæpir tíu tímar í beinu flugi, í öðru lagi tekur það
líkamann smá tíma að jafna sig á því að það er átta klukkutíma mismunur á
milli tímabeltanna og í þriðja lagi er svo ótal margt að sjá og skoða á þessu
svæði að tíu dagar eru algjört lágmark. Lengi vel var ekki hægt að komast til
vesturstrandar Bandaríkjanna nema með millilendingum í til dæmis Denver eða
Seattle og verðið var eftir því en nú er öldin svo sannarlega önnur. Samkvæmt
dohop.is kostar óýrasta fargjaldið til Los Angeles aðeins 36.997 krónur fram og
til baka ef flogið er út með WOW air á Valentínusardegi, 14. febrúar og aftur
heim þann 28. febrúar.
bÍlalEiGubÍlaR
Almenningssamgöng-
ur í Suður-Kaliforníu
eru hálfvonlausar og
þess vegna mæli ég
100% með því að fólk
leigi sér bíl. Suma
óar við að aka um á
hraðbrautunum en það
venst mjög fljótt enda
umferðarmenningin
góð og ökumenn
almennt mjög tillitssam-
ir. Ef tveir eða fleiri
ferðast saman er hægt
að nota „carpool“
akreinar sem eru mun
greiðari og það er frá-
bært því á álagstímum
getur umferðin orðið
óbærilega hæg.
Ferðalangar ættu að
forðast að leggja upp
í ökuferðir, eða snúa til
baka úr þeim, á þeim
tímum sem heimamenn fara til og frá vinnu en þetta er aðalega milli sjö og tíu
fyrir hádegi og frá þrjú til sex eftir hádegi.
Marga dreymir um að bruna eftir PCH eða Pacific Coast Highway á blæjubíl
enda er það algjörlega æðislegt, en athugið að ef fleiri en tveir eru að ferðast
saman í hóp er ómögulegt að koma farangri fyrir í slíkum bíl þar sem blæjan er
felld niður í skottið og tekur þannig allt plássið.
Að leigja Mustang-blæjubíl kostar í kringum 100.000 krónur fyrir tvær vikur
en sportjeppi á borð við Toyota Rav er í kringum 50.000 skv. upplýsingum frá
dohop.is.
Bíladellufólk getur reyndar auðveldlega skipt bílunum út og þannig væri til
dæmis hægt að byrja ferðina á hefðbundnum fólksbíl en skipta svo yfir í
blæjubíl síðar á ferðalaginu. Bílaleigur eru á öðru hverju horni og þjónustulund
Kaliforníubúa á stigi sem var örugglega hannað í himnaríki. Maður veit ekki
hvað góð þjónusta er fyrr en maður hefur heimsótt Kaliforníu.
ubER
Segja má að Uber-kerfið hafi bjargað mörgum á þessu svæði en þessir þægi-
legu leigubílar eru bæði aðgengilegir og ódýrir. Að ferðast eingöngu með Uber
yrði þó of kostnaðarsamt til lengdar og því mæli ég heldur með bílaleigubílum
til að flakka á milli staða en svo um að gera að bjalla í Uber ef fólk vill fá sér
glas.
SiM-koRt
Fyrsta verk eftir lendingu ætti að vera að kaupa SIM-kort en þetta er hægt að
gera hjá til dæmis AT&T, T-Mobile eða öðru símafyrirtæki. Enn eru engir góðir
samningar milli Íslands og Bandaríkjanna og ekki viltu setja þig á hausinn með
símareikningi eftir að heim er komið. Gagnamagnið notarðu til að komast á milli
staða með Google Maps, bóka borð á veitingastað með opentable.com, finna
næsta Starbucks-kaffihús eða tékka á hvenær mest er að gera hjá Universal svo
fátt eitt sé nefnt.
GRoPoN
Þetta hljómar kannski undarlega en Groupon-appið og tilboðin sem maður
finnur þar eru algjör snilld. Groupon er á margan hátt fyrirmyndin að Hópkaup-
um nema hvað úrvalið af vöru, þjónustu og afþreyingu er margfalt á við það
sem við sjáum hér. Þú getur einnig kíkt á vefinn https://www.groupon.com og
slegið inn nafnið á svæðinu sem er næst gististaðnum. Þá kemur upp fjöldinn
allur af góðum tilboðum í margs konar afþreyingu og þjónustu. Sem dæmi má
nefna hótelgistingu, nudd, siglingu, siglingu og vínsmökkun, þyrluflug, þyrluflug
með ljósmyndum, B-12-sprautur (án gríns), botox-sprautur (án gríns), tónleika,
gönguferðir með leiðsögn, kajakferðir, brettakennslu og svo framvegis og svo
framvegis.
GiStiNG
Nú fer það alveg eftir fjölda ferðalanga hvaða valkostur er ákjósanlegastur
hvað gistingu varðar en hugguleg Airbnb íbúð í göngufæri við góða strönd er
örugglega langskemmtilegasti kosturinn. Ég mæli með að fólk kanni gistingu
í strandbæjum á borð við Laguna Beach, Newport Beach, Hermosa Beach,
Huntington Beach, Dana Point – eða jafnvel Malibu Beach ef menn vaða í
seðlum upp að geirvörtum. Einnig væri hægt að leigja eitthvert fallegt slot í
Hollywood en þá er um að gera að reyna að finna húsnæði með sundlaug
svo fólk geti nú skolað af sér á milli sólbaða. Annar valkostur er að skrá eigið
húsnæði á vefi eins og homestay.com eða lovehomeswap.com en þar geta
húsnæðiseigendur skipst á íbúðum eða húsum og komið út á sléttu.
á Neil Young, Eagles eða America
eða aðra dæmigerða Kaliforníu-
tónlist til að fá stemninguna beint
í æð.
Enginn miðborgarkjarni - Meira
gaman við ströndina
Það háir borginni svolítið sem
ferðamannastað að þar er enginn
sérstakur kjarni líkt og í flestum
öðrum borgum enda reis hún
upprunalega í kringum olíulindir
og síðar kvikmyndaverin, en sá
hefur verið helsti iðnaður borg-
arinnar síðustu hundrað árin eða
svo. Downtown-hverfið ber til
dæmis ekki nafn með réttu því það
er í raun enginn miðbær heldur
einungis þyrping skýjakljúfa sem
hýsa stofnanir, banka og aðrar fjár-
málastofnanir. Hollywood-hverfið
hefur töluvert meira aðdráttarafl
þótt þar sé heldur enginn hefð-
bundinn miðbær.
Í Suður-Kaliforníu er hins
vegar ótal margt að sjá og skoða en
strandbæirnir sem liggja meðfram
Kyrrahafsströndinni eru hver
öðrum skemmtilegri. Í raun mæli
ég eindregið með að fólk finni sér
gistingu í einum slíkum bæ og
keyri heldur inn til Los Angeles í
dagsskoðunarferðir því þá er hægt
að upplifa það besta úr báðum
heimum, sóla sig á ströndinni,
baða sig í sjónum og læra að
standa á brimbretti en aka svo
inn í borgina af og til. Sé nægur
tími fyrir hendi er jafnvel hægt að
bruna upp í fjöllin og renna sér á
skíðum eða skoða syndaborgina
Las Vegas svo fátt eitt sé nefnt.