Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Síða 54
Vikublað 12. janúar 2018 42
Vinsælir ferðamannastaðir í l.a.
Ef ég væri þú myndi ég prófa …
1 siglingu með Duffy boat frá newport beach
Þið útbúið girnilegt nesti, gerið góðan „playlista“ og njótið þess
svo að sigla um á huggulegum bát innan um villurnar í bryggju-
hverfinu við Newport Beach. Stórkostleg skemmtun fyrir alla
aldurshópa!
www.duffyofnewportbeach.com
2 kajaksiglingu Við laguna-strönDina
Íslendingar elska sjóinn svo það er ekki
nema eðlilegt að mæla með siglingartúr-
um. Að róa á kajak í Kyrrahafinu með
góðum leiðsögumanni er ávísun á góðan
dag. Mögulega getið þið rekist á nokkra
hvali en þeir eru mjög algeng sjón á þess-
um slóðum.
www.lavidalaguna.com
3 Vínsmökkun og siglingu frá Dana pointHvernig væri að halda áfram með siglingarnar en blanda vín-
smökkun inn í dæmið? Í Kaliforníu eru einhver bestu vínhéruð heims
og vínsmökkun því algjör skylda fyrir þau sem hafa aldur og heilsu
til. Ferðin kostar í kringum 50 dali.
www.ocwinecruise.com
4 kaupa eitthVað gott að borða í whole fooDs
Matarsnobbarar mega alls ekki sleppa því að kíkja inn í Whole
Foods-búðir í Kaliforníu en í þessum verslunum er úrvalið engu líkt
og ferskleikinn – já, maður lifandi! Ef Nigella Lawson og Jamie
Oliver myndu reka matvöruverslun þá væri hún örugglega eins og
Whole Foods. Þú slærð bara „Find Whole Foods near me“ inn í
Google-leit og snjallsíminn vísar þér á réttan stað.
5 skoða föt og fylgihluti í
t.j. maxx
Sama hvort þú elskar eða hatar
að kaupa þér föt þá er alltaf hægt
að finna eitthvað frábært í T.J.
Maxx en þessi verslunarkeðja selur
aðallega merkjavörur með miklum
afslætti. Sem dæmi um framleiðendur
má nefna Marc Jacobs, Michael Kors,
Stellu McCartney, Calvin Klein og marga
fleiri. Aftur skaltu slá „Find T.J. Maxx near me“ og
viti menn – þér munuð finna!
6 koma Við í costco
Kortið á að virka um
allan heim svo hvers
vegna ekki að kíkja í
Costco í Kaliforníu? Þú
gætir kannski splæst
í bretti af kampavíni
eða keypt eitthvað
annað sniðugt. Til
dæmis bara bensín á
blæjubílinn. Costco-
ferð er jú alltaf ævin-
týri líkust.
7 fara á uppistanD eða tónleikaFyrir nokkrum árum var ég svo heppin að sjá uppistand með
hinum heimsþekkta sjónvarpsmanni Jay Leno á litlum klúbbi við
Hermosa Beach en við áhorfendurnir vorum kannski svona fimmtíu
talsins. Á vefnum ticketmaster.com finnur þú miða á alls konar tón-
leika, uppistand og fleira skemmtilegt sem leynist í grennd við það
svæði sem þið kjósið að gista á. Miðana er hægt að kaupa með
kreditkorti og svo fær maður þá bara senda í tölvupósti. Guð
blessi internetið.
www.ticketmaster.com
8 skoða antík-
markaðinn
í san juan
capistrano
Í þessum krúttlega
smábæ er einn flottasti
antíkmarkaður sem
ég hef komið í á ævinni. Í
raun má kalla þetta einskonar
antíkmoll en þar leynist hreinn
aragrúi af gersemum. Draumur
í dós fyrir fólk sem finnst
gaman að gramsa og skoða
gamla muni. [Hér er Facebook]
(https://www.facebook.com/
Theoldbarnantiquemall/) síða
markaðarins.
ATH: Margar af þessum uppástungum gætu verið á tilboði hjá
Groupon svo ekki klikka á því að skoða úrvalið þar um leið og þú
skipuleggur ferðalagið.
Góða ferð og góða skemmtun!
griffith obserVatory Frá stjörnuskoðunarstöðinni í Griffith-garðinum er frábært útsýni yfir alla Los
Angeles og þaðan er hægt að skoða Hollywood-skiltið fræga. Þetta er einn allra vinsælasti staður borgarinnar þannig
að reynið endilega að mæta á hádegi á virkum dögum til að lenda ekki í ösinni sem myndast stundum um helgar þegar
heimamenn sjálfir eru í fríi frá vinnu.
hollywooD
walk of
fame
Bleiku stjörnurnar og
fótsporin í stéttinni fyrir
framan Chinese Theatre
á Hollywood Boulevard
eru það kennileiti sem
flestir tengja við drauma-
borgina, að skiltinu góða
undanskildu. Þennan stað
er virkilega gaman að
heimsækja, þó ekki sé
nema til að leggja lófann
við afsteypu af lófa uppá-
haldsstjörnunnar þinnar og
gá hvort þið hafið kannski
notað sömu skóstærð.
the groVe Í Hollywood líta heimamenn á The Grove sem sinn miðbæjar- og versl-
unarkjarna þó ekki séu nema sextán ár síðan þessi verslunarmiðstöð, sem líkir eftir krúttlegum
miðbæ einhvers staðar í Mexíkó, var formlega opnuð. Þar er lítið sætt torg með gosbrunni,
sætur sporvagn, kvikmyndahús, veitingastaðir og fjöldi verslana sem flestir ættu að hafa
gaman af að skoða.
santa monica pier Parísarhjólið
við skemmtigarðinn á bryggjunni við Santa Monica
er mjög þekkt kennileiti í Los Angeles enda ófáar
kvikmyndasenur sem þar hafa verið kvikmyndaðar.
Barna- og fjölskyldufólk ætti að leggja leið sína til
Santa Monica og njóta dagsins í þessum garði sem er
miklu ódýrari skemmtun en til dæmis Universal Studios
þó að þangað sé virkilega gaman að koma líka.
uniVersal stuDios
Það er mikilvægt að gefa sér góðan
tíma í Universal Studios en þar er
ótrúlega margt að sjá og skoða.
Helst ætti fólk að vakna fyrir allar
aldir og hanga á húninum við opnun.
Garðurinn fyllist hratt þegar dregur
að hádegi og raðirnar geta orðið
langar. Til að fá sem mest úr úr þessu
vil ég mæla með að menn splæsi í
VIP-kort sem hleypir ykkur fram fyrir
röð, annars er hætt við að hálfur
dagurinn fari bara í að bíða.