Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Síða 65
sakamál 53Helgarblað 12. janúar 2018
Teikning af húsnæðinu: x) svefnherbergi (a rúmstæði, b kommóða), ytri skrifst., innri skrifst. (c peningaskápur) Hér
má sjá leið morðingjans inn á skrifstofurnar. Mynd Morgunblaðið 1. 12. 1929.
n Framkvæmdastjóri gætti verslunar n Síðasti svefnstaðurinn
Þ
ann 30. nóvember, 1929,
átti sér stað til þess að
gera fáheyrður atburður
í Reykjavík. Var nokkuð
ítarlega um hann fjallað í Morgun-
blaði þess tíma, enda mat manna
að viðlíka óhugnaður ætti vart að
geta átt sér stað í höfuðborginni.
Þannig var mál með vexti að við
Laugaveg 105, gegnt Hlemmi, var
rekin bifreiðaverslun Sveins Egils-
sonar. Um sumarið þetta ár höfðu
starfsmenn verslunarinnar tekið
eftir því að brotist hafði verið inn
í verslunar- og verkstæðishúsið.
Engu hafði verið stolið og talið að
hinn óboðni gestur hefði orðið var
mannaferða og lagt á flótta.
Svaf í verslunarhúsnæðinu
Engu að síður tók fram-
kvæmdastjóri verslunarinnar, Jón
Egilsson, þá ákvörðun að sofa í
húsnæðinu, í litlu herbergi inn af
skrifstofunum, enda var að jafn-
aði fé og ýmislegt annað verðmætt
geymt á skrifstofunum. Þannig
vildi Jón koma í veg fyrir óæski-
legar mannaferðir á ókristilegum
tíma.
Hvað gerðist um nóttina var
eðlilega ekki vitað í fyrstu. Þó
lá fyrir að Jón hafði farið í kvik-
myndahús um kvöldið ásamt vini
sínum. Síðan hafði hann tekið á
sig náðir í fyrrnefndu herbergi.
Skömmu síðar kom Sveinn, bróðir
Jóns, þangað og áttu bræðurnir tal
saman. Sveinn hvarf síðan á braut
um miðnæturbil.
Á gólfinu í blóðpolli
Klukkan 9 að morgni 30. nóv-
ember ber að tvo menn; Erlend
Jónsson og Jón Leví. Þegar þeir
komu að aðaldyrunum sjá þeir
samstundis að eina rúðu vantar í
hurðina.
Inn komnir sjá þeir síðan að
dyrnar inn í herbergi Jóns eru
opnar og á gólfinu liggur Jón allur i
miðjum blóðpolli. Erlendur og Jón
Leví höfðu án tafar samband við
lögregluna.
Rannsókn lögreglunnar leiddi í
ljós að rúðan hafði verið skorin úr
útidyrahurðinni og eftirleikurinn
verið einfaldur fyrir þann sem það
gerði.
Veitti viðnám
Taldi lögreglan nokkuð ljóst að
komumaður hafi verið kunnug-
ur versluninni því ekki hafði hann
reynt að opna læstar skrifstofu-
dyrnar heldur freistað þess að
komast inn á skrifstofuna í gegn-
um herbergi Jóns. Morðvopnið, 30
sentimetra stúfur af látúnsöxli úr
mótorbát, fannst á vettvangi.
Greinilegt var að Jón hafði veitt
viðnám og sáust þess ummerki í
herberginu. Rúmföt og flest annað
þar inni var á tjá og tundri, þar á
meðal klukka sem hafði greinilega
stöðvast klukkan 4.30 þegar hún
féll í gólfið, að því er talið var.
Slæm útreið
Í umfjöllun Morgunblaðsins var
tekið fram að útreiðin sem Jón
Gíslason fékk þarna í morguns-
árið væri þess eðlis að ekki þætti
rétt að fara nánar út í þá sálma.
Þó var sagt um útreiðina: „hún
ber vott um fullkomið, rólegt jafn-
vægi í huga morðingjans.“ Blóðugt
handklæði var í herberginu, sem
morðinginn hafði notað til þurrka
af sér blóðið.
Í fyrstu var álitið að til átaka
hefði komið á leið morðingj-
ans inn á skrifstofurnar í gegnum
svefnherbergi Jóns, en síðar kom í
ljós að sú hafði ekki verið raunin.
2.300 krónur
Næsta dag hafði lögreglan hendur
í hári Egils Hauks Hjálmarssonar
sem játaði á sig morðið. Hann
sagðist hafa komist klakklaust inn
á skrifstofurnar eftir að hafa fund-
ið lykla í buxnavasa Jóns. Í fremri
skrifstofunni var peningaskápur
og í honum blikkkassi. Egill sagð-
ist hafa skorið hann upp og hirt
það fé sem í honum voru auk
fjár sem var í ýmsum umslögum
í peningaskápnum; alls um 2.300
krónur.
Það var ekki fyrr en Egill var á
leið út með ránsfenginn, í gegn-
um svefnherbergi Jóns, að Jón
rumskaði. Sagðist Egill ekki hafa
ætlað sér að ráða Jóni bana, en
beitt látúnsstönginni með þess-
um hörmulegu afleiðingum. Egill
Haukur Hjálmarsson var dæmdur
til 18 ára vistar í typtunarhúsi, en
í slíkum stofnunum unnu fangar
á daginn en sættu gæslu um næt-
ur. n
Jón Egilsson Hugðist gæta verslunar-
innar.
Bani í Bifreiðaverslun
„Þó var sagt um út-
reiðina: „hún ber
vott um fullkomið, rólegt
jafnvægi í huga morðingj-
ans.“
Laugavegur 105 Hér var bifreiðaverslunin til húsa.