Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Side 72
Helgarblað 12. janúar 2018
2. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Var einhver
að ljúga?
Ótrúlegt!
Auðvelt að versla á byko.is
-30% AF HARÐPARKETI -30% AF FLÍSUM -30% AF HÁÞRÝSTI-DÆLUM
-30% AF EINHELL RAFMAGNSVERKFÆRUM -40% AF HOUSE OF YARN
GARNI -40% AF PLASTBOXUM -30% AF POTTUM OG PÖNNUM -30% AF
BARNABÍLSTÓLUM -40% AF GLÖSUM, BOLLUM OG KÖNNUM -30% AF HUNDA-
OG KATTAMAT -30% AF MYNDARÖMMUM -40% AF SPILUM OG LEIKFÖNGUM
-40% AF KLUKKUM -40% AF JÓLAVÖRU -30% AF LJÓSUM - 30% AF LOFTAÞILJUM
-30% AF MOTTUM OG DREGLUM -40% AF BAÐFYLGIHLUTUM
-30% AF BÍLAHREINSIVÖRUM -30% AF ÖRYGGISSKÓM -30% AF ÁLTRÖPPUM OG
STIGUM -30% AF CAT VINNUSOKKUM -30% AF JÁRNHILLUM -30% AF TRANEMO
VINNUFÖTUM -40% AF KAFFI- OG MATARSTELLUM
VALDAR VÖRUR Á ENN BETRI AFSLÆTTI!
Komdu og gerðu góð kaup!
BÚMM!
KA
VÁ!
Salka Sól
verður Ronja
n Næsta haust mun Þjóðleik-
húsið setja á svið leikritið um
Ronju ræningjadóttur eftir
Astrid Lindgren. Um tólf ár eru
síðan leikritið var sett á svið
í Borgarleikhúsinu en þá fór
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir með
hlutverk Ronju. Heimildir DV
herma að fjöllistakonan Salka
Sól Eyfeld muni fara með
hlutverk Ronju í hinni nýju
uppfærslu. Þá verður
Selma Björns dóttir
leikstjóri verksins.
Ljóst er að kok-
teillinn Selma,
Salka og urmull af
rassálfum get-
ur ekki orðið
annað en
meistaraverk.
Lostinn logar
í Landanum
n Sjónvarpskonan Edda Sif
Pálsdóttir hefur staðið vaktina
í Landanum undanfarna vet-
ur en eins og nafnið gefur til
kynna kallar starfið á ferðalög
vítt og breitt um landið. Ný-
lega opinberaði Edda Sif ást-
arsamband sitt við Vilhjálm
Siggeirsson, sem starfað hef-
ur sem kvikmyndatökumað-
ur þáttanna. Parið ákvað að
flýja yfirþyrmandi skammdeg-
ið á Íslandi í byrjun árs og það
alla leið til Ástralíu. Þar eru
nú kjöraðstæður til þessa að
kynda undir ástareldum því
gríðarleg hitabylgja geisar þar
ytra. Hitinn hefur farið yfir 40
gráður víða um landið.
Edda Sif hefur ver-
ið dugleg að birta
myndir úr ferðinni
á Instagram-síðu
sinni en not-
andanafn
hennar er
eddasifpals.
Nýr ritstjóri Fréttatímans segir ósatt
M
ikil leynd hefur ríkt yfir
nýjum eigendum Frétta-
tímans. Fréttatíminn var
úrskurðaður gjaldþrota
en vefurinn birtist aftur á netinu
nokkrum mánuðum síðar í breyttri
mynd. Á síðunni kom hvergi fram
um hver væri eigandi miðilsins.
Samkvæmt heimildum DV
keypti Jóhannes Gísli Eggerts-
son lénið. Jóhannes hefur á síð-
ustu árum verið umfjöllunarefni
fjölmiðla vegna auðgunarbrota
og hlotið fjóra refsidóma frá ár-
inu 2012. Í mars árið 2015 sagði Jó-
hannes Gísli í viðtali við DV að hann
hefði snúið við blaðinu og vildi fá að
njóta sannmælis. Nær sléttu ári síð-
ar var hann gómaður við að svíkja
vörur út úr vefverslun ELKO. Fyrir
það fékk hann sex mánaða fangels-
isdóm fyrir ríflega ári, í lok árs 2016,
og hefur hann tekið út þann dóm.
Þá vakti athygli fjölmiðla seint á
síðasta ári þegar Jóhannes Gísli
þóttist vera unglingsstúlka til að
koma upp um barnaníðinga. Segir
Jóhannes Gísli í samtali við DV að
hann vilji nú aftur bæta ráð sitt.
Skráður eigandi og titlaður rit-
stjóri er Guðlaugur Hermanns-
son fiskkaupandi. Þær upplýs-
ingar voru ekki birtar fyrr en DV
fór að grennslast fyrir um málið.
DV ræddi við Guðlaug sem í fyrstu
fór undan í flæmingi en kvaðst
vera eigandi lénsins en neitaði
allri aðkomu Jóhannesar að fjöl-
miðlinum. Jóhannes hafði skrifað
frétt á vef Fréttatímans án þess að
nafn hans kæmi þar fram. Í mynd-
skeiði þar sem fjallað var um að-
gerðir sérsveitar í Faxafeni mátti
heyra rödd Jóhannesar þar sem
hann titlaði sig blaðamann. Þá var
sagt að blaðamaður Fréttatímans,
sem var Jóhannes Gísli hefði ver-
ið á staðnum. Þá hefur Jóhannes
kynnt sig sem blaðamann mið-
ilsins. Nýr ritstjóri Fréttatímans,
fiskkaupandinn Guðlaugur, ákvað
að segja blaðamanni DV ósatt og
fljótlega eftir samtalið var fréttinni
breytt og birt yfirlýsing um að Jó-
hannes hefði ákveðið að gefa
Fréttatímanum myndskeiðið.
„Hann er ekkert að vinna
neitt við [Fréttatímann]. Ég veit
ekki alveg hvaðan þú hefur það
en hann er ekkert að vinna við
þetta,“ sagði Guðlaugur þrátt fyr-
ir að Jóhannes hefði verið titl-
aður blaðamaður í fréttinni og
hafi samkvæmt heimildum DV
séð um fréttaskrif á vefinn. Vildi
Gunnlaugur ekki upplýsa hvaða
blaðamenn skrifa á Fréttatím-
ann og sakaði blaðamann DV um
árásir á nýjan miðil.
DV ræddi við Jóhannes sem
vildi í fyrstu ekki kannast við að
starfa fyrir miðilinn. Hann viður-
kenndi síðan að hafa starfað fyr-
ir Fréttatímann. Óttaðist hann að
vera dæmdur vegna vafasamrar
fortíðar en kvaðst dreyma um að
verða blaðamaður. Að sögn rit-
stjóra verður framtíð Jóhannesar
ákveðin í næsta mánuði. n