Morgunblaðið - 31.08.2017, Síða 4

Morgunblaðið - 31.08.2017, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017 Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Opið kl. 11-18 virka daga Með einföldum aðgerðum er hægt að breyta stærð og lögun sköfunnar • Tímasparnaður • Engin kemísk efni • Ódýrara • Umhverfisvænt • Vinnuvistvænt Skínandi hreinir gluggar Komið í verslun okkar eða fáið upplýsingar í síma 555 1515. Einnig mögulegt að fá ráðgjafa heim. United Silicon biður um frest  Ekki heimilt að ræsa ljósbogaofninn nema með skriflegri heimild frá Umhverf- isstofnun  Niðurstöður frá norskri loftgæðastofnun væntanlegar í lok mánaðar Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is Stjórnendur kísilvers United Silicon í Helguvík fóru fram á það við Um- hverfisstofnun að athugasemdafrest- ur vegna áforma um stöðvun starf- seminnar yrði framlengdur um viku en hann átti að renna út í gær. Á það féllst stofnunin ekki en fallist var á að framlengja frestinn um sólarhring eða til 31. ágúst. Stefnt er að því að taka ákvörðun um stöðvunina fyrir vikulok. Umhverfisstofnun tilkynnti Unit- ed Silicon í síðustu viku að hún áformaði að stöðva starfsemi kísil- versins ef afl ljósbogaofns verksmiðj- unnar færi annaðhvort niður fyrir 10 MW eða stöðvaðist í klukkustund eða meira, þó eigi síðar en 10. september. Ekki yrði þá heimilt að endurræsa ofninn nema með skriflegri heimild að loknum endurbótum og mati á þeim. United Silicon var gefinn kost- ur á að gera athugasemdir við þessi áform til 30. ágúst og hefur sá frestur nú verið framlengdur um sólarhring. 200 kvartanir á sex dögum Slökkt var á ljósbogaofninum, sem nefndur var Ísabella við gangsetn- ingu verksmiðjunnar, á laugardag eftir að heitur kísill flæddi út á gólf. Ítrekað hefur þurft að slökkva á ofn- inum frá því verksmiðjan hóf starf- semi í nóvember á síðasta ári. Og enn er slökkt á Ísabellu. Íbúar í nágrenni verksmiðjunnar og víðar í Reykjanesbæ hafa frá því á laugar- dag kvartað ítrekað til Umhverfis- stofnunar um mengun frá henni. Alls hafa borist um 200 kvartanir, flestar í gær. Íbúar kvarta undan ýmsum líkam- legum einkennum, s.s. ertingu í önd- unarfærum og þurrki og roða í aug- um. „Ég var virkilega slæm í gær,“ skrifar íbúi á facebooksíðu þar sem fólk deilir upplýsingum um líðan sína. „En það sem braut hjarta mitt var að þriggja ára sonur minn var sífellt að ræskja sig.“ Fleiri segja svipaða sögu. „Hausverkurinn alveg að gera út af við mig núna,“ segir einn og ann- ar tekur í sama streng. „Ég er ein- mitt búinn að vera með þennan öm- urlega hausverk.“ Sumir segjast enga lykt finna, líkt og margir íbúar lýsa, en segjast þó finna fyrir líkam- legum einkennum. Einn lýsir því að hann hafi í nokkra mánuði verið með rauð augu og mikinn sviða. Annar segir: „Ég hef einmitt aldrei fundið lykt þar sem ég bý […] en hef vaknað með þurran og auman háls og rauð augu.“ Mæðgur lýsa svo svipuðum einkennum. Athugasemdirnar skipta tugum. Ekki hefur verið staðfest hvaða efni gætu leynst í loftinu sem valda þeim einkennum sem íbúarnir kvarta yfir. Norsk loftgæðastofnun, NILU, tók sýni fyrir nokkrum vikum. Niður- stöðurnar eiga að berast fyrir mán- aðamót. Fjármálaráðherra segir það stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar að varð- veita þann kaupmátt sem náðst hafi undanfarin ár, spurður um horfur í kjaramálum fyrir haustið, en í dag losna 29 kjarasamningar af 37 sem losna í haust. Benedikt Jóhannesson fjármála- ráðherra segir að gagnkvæmur skilningur þurfi að ríkja í samninga- viðræðunum í haust. Spurður hvort viðræður í haust gætu komið af stað skriðu launahækkana, svonefndu höfrungahlaupi, kveður hann nei við. „Það eru ákvæði í samningum nánast allra stétta um að ef farið verði fram úr ákveðnum viðmiðum losni samningar annarra. Ég held að allir átti sig á því að það er mikið ábyrgðarmál að ganga til samninga núna. Við erum mjög vel meðvituð um það og viðsemjendur okkar örugglega líka,“ segir hann. Benedikt segir mikilvægt að standa vörð um þá kaupmáttaraukn- ingu sem orðið hefur undanfarin ár. „Ég lít á það sem stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar og okkar allra að reyna að varðveita það,“ segir hann. Laun hækki ekki ár eftir ár „Það er ljóst að á undanförnum ár- um höfum við tekið út mjög miklar launahækkanir sem hafa skilað mikl- um kaupmætti,“ segir Bjarni Bene- diktsson forsætisráðherra. „Á þessum tímapunkti er hægt að segja að það er ekki hægt að halda áfram á þessari braut vegna þess að við getum ekki ár eftir ár hækkað laun þannig að launahækkanir verði langt umfram framleiðnivöxt. Ef spenna á vinnumarkaði leiðir til þess að einhvers konar höfrungahlaup fer af stað þá er langlíklegast, sérstak- lega þar sem við höfum nýlega tekið upp svona miklar hækkanir, að slík- ar launahækkanir muni á mjög skömmum tíma brenna upp í verð- bólgu,“ segir hann. jbe@mbl.is Varðveiti kaup- máttinn  „Stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar“ Morgunblaðið/Eggert Kjaramál Ráðherra segir gagn- kvæman skilning þurfa að ríkja. Stór borgarísjaki var á reki um 50 sjómílur (93 km) vestur af Látrabjargi í fyrrakvöld. Haraldur Hjálmarsson sjómaður tók myndina um klukkan 20.30. Haraldur áætlaði að jakinn hefði risið allt að 100 metra upp úr haffletinum. Hann sagði að þarna hefði verið annar jaki miklu minni og svo einhver lítil jakabrot. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við HÍ og hafíssérfræðingur, sagði ekki óvenjulegt að borgarísjakar sem líklega hefðu brotnað úr græn- lenskum jöklum sæjust á þessum árstíma. Meira ber á borgarís á reki á haustin en á öðrum tímum ársins. Ingibjörg fann jakann á gervitunglamynd og ætlar að fylgjast með hvert hann fer. „Stundum getur verið erfitt að greina á gervi- tunglamyndunum hvort um er að ræða stóran borgarís eða stór skip. Kosturinn við stóra borgarísjaka er að þeir eiga að sjást vel í ratsjám skipa. Jakarnir valda meiri hættu fyrir skip þegar þeir fara að brotna og sjást verr,“ sagði Ingibjörg. Hún sagði að jakinn væri mjög nálægt skilum Austur-Grænlandsstraumsins og Irminger- straumsins og stutt í að hann kæmist í hlýrri sjó. gudni@mbl.is Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson Fjallstór borgarísjaki djúpt vestur af landi Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Grunur leikur á að brotið sé á rétt- indum starfsmanna á kínverska veitingastaðnum Sjanghæ á Akur- eyri. Að sögn Björns Snæbjörns- sonar, formanns stéttarfélagsins Einingar Iðju á Akureyri, eru flestir starfsmenn staðarins meðlimir Ein- ingar. Björn segist lítið geta tjáð sig um máið en staðfestir að vettvangs- könnun á vegum stéttarfélagsins hafi farið fram í gær og félagið sé að skoða málið og óska eftir upplýs- ingum og gögnum. Meðal þeirra gagna sem óskað er eftir eru launa- upplýsingar en fram kom í fréttum RÚV í gærkvöldi að grunur léki á að starfsfólk veitingastaðarins fengi greiddar um þrjátíu þúsund krónur á mánuði í laun og borðaði matar- afganga á veitingahúsinu. Starfs- mönnunum, sem eru fimm Kínverj- ar, hefði verið lofað góðri atvinnu og framtíðarbúsetu hér á landi gegn því að greiða háa fjárhæð fyrir. Spurður hvort það sé rétt að starfsmenn fái um þrjátíu þúsund í mánaðarlaun segir Björn að hann geti ekki tjáð sig um það að svo stöddu. „Við getum ekkert sagt um það, við óskum eftir þeim upplýs- ingum sem við höfum heimild til að óska eftir og sjáum hvað kemur út úr því. Lögreglan á Norðurlandi eystra er komin með málið inn á borð til sín ásamt mansalsteymi lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.“ Grunur um brot á réttindum starfsfólks á veitingastað  Eining á Akureyri óskar eftir upplýsingum og gögnum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sjanghæ Fulltrúar stéttarfélagsins fóru í vettvangskönnun í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.