Morgunblaðið - 31.08.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ástvinir munu reyna að troða sínum
reglum upp á þig, en þeir munu átta sig á
að það er tímaeyðsla. Mundu að það eru
augnablik sem búa til lífstíðarminningar.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er margt sem kallar á athygli
þína. Reyndu að skapa sjálfri/um þér sókn-
arfæri og fylgdu þeim svo fast eftir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sparsemi er dyggð en níska ekki.
Hvort sem þú er tilbúin/n eða ekki skaltu
láta slag standa og þú lendir í lukkupott-
inum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt að hafa þann aga til að bera
sem þarf til að rannsaka málin vandlega áð-
ur en þú segir af eða á. En aðrir sjá ekki öll
mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin
sem gildir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fjölskylduleyndarmál munu hugsanlega
setja svip á daginn. Reyndu ekki að byrgja
tilfinningarnar inni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert alltaf að tala um að þú hafir
engan tíma til gera neitt skemmtilegt, en
það er ekki satt. Notaðu hvert tækifæri til
að tjá þig í orðum, tónlist eða hreyfingu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Varastu að festast í einhverjum laga-
krókum. Ef einhver vandamál koma upp er
best að ræða beint við viðkomandi. Slakaðu
á en þó ekki of lengi því alltaf koma ný og
ný verkefni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það gefur lífinu lit að upplifa
eitthvað nýtt og spennandi. Vertu á varð-
bergi gagnvart þeim sem vilja með gjöfum
stjórna því hvað þú velur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það færi best á því að þú héldir
þig til hlés um sinn. Blandaðu þér ekki í
vandamál annarra. En vertu þolinmóð/ur því
sannleikurinn stendur nær þér en þú heldur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Veltu hlutunum fyrir þér því oft er
það farsælast sem ekki liggur strax í augum
uppi. Veldu þér ákveðin verkefni og leystu
þau síðan eitt af öðru. Vertu þolinmóð/ur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að draga þig í hlé í smá-
stund í dag. Af hverju gleyma þessu flestir?
Ekki festast í enn einni rútínunni, veldu frek-
ar áhugaverða og aðdáunarverða leið í lífinu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Félagsleg samskipti eru ekki of
skemmtileg og ræna þig orku. Vertu þess
fullviss, innst inni, að allt sé í lagi, þó að svo
virðist sem stormur sé í aðsigi.
Sonur Víkverja vex nú hratt úrgrasi og liggur við að faðirinn
þekki varla son sinn þegar hann
kemur heim úr vinnunni. Raunar
varð Víkverji fyrir nettu áfalli um
daginn, þegar sá stutti kom hlaup-
andi þegar hann heyrði lykilinn í
skránni og hrópaði hátt og snjallt:
„Afi! Afi!“. Víkverji veit núna hvern-
ig það er að hafa valdið barninu sínu
sárum vonbrigðum. Verður þetta ef-
laust ekki í síðasta sinn.
x x x
Víkverji og frú eru raunar sann-færð um það að Víkverji yngri
sé með gáfaðri og fallegri börnum,
væntanlega eins og flestir foreldrar.
Hann er til að mynda þegar farinn
að þekkja nokkra stafi, og er staf-
urinn K í sérstöku uppáhaldi, auk
þess sem sá litli hefur mikið yndi af
því að telja. Að vísu koma tölustaf-
irnir ekki alltaf út í réttri röð, þar
sem tölurnar sex, átta og ellefu fá að
heyrast oftar en hinar og mætti því
segja að strákurinn sé að telja með
frjálsri aðferð.
x x x
Þessum miklu gáfum fylgir aðsjálfsögðu að Víkverji yngri er
farinn að þekkja dýrin í sundur og
herma eftir hljóðunum sem þau
gera. Ekki nóg með það, heldur er
hann kominn með uppáhaldsdýr nú
þegar: hestinn. Getur hann eytt
löngum stundum í að hlaupa um
íbúðina með tilheyrandi hneggjum
og hófahljóðum. Gobbedí gobb,
gobbedí gobb ómar því um íbúðina,
og halda nágrannarnir eflaust að
fjölskyldan sé gengin af göflunum.
Víkverji yngri á meira að segja tvo
leikfangahesta, sem báðir hafa feng-
ið nafn: Gobbi og Gobbi.
x x x
Víkverji eldri hugsar nú bara meðsér að erfinginn sé nú þegar bú-
inn að sýna það að hann sé föður-
betrungur með þessum nafngiftum.
Sjálfur átti Víkverji einn leikfanga-
bangsa þegar hann var barn. Sá fékk
heitið Bangsi. Þá átti hann eina leik-
fangakisu. Sú fékk heitið Kisa. Í
samanburðinum eru þeir félagar
Gobbi og Gobbi með ákaflega lýs-
andi, falleg og hugmyndarík nöfn.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ákalla mig á degi neyðarinnar og ég
mun frelsa þig og þú skalt vegsama
mig.
(Sálm. 50:15)
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
TIMELESS - LEĐURSÓFI
STÆRĐ 206 cm kr. 311.800 / EINNIG FÁANLEGUR 226 cm
Hörður Björgvinsson veltir lífs-keðjunni fyrir sér á Boðnar-
miði og yrkir limruna „Endur-
vinnslan“:
Þegar alheimsins keðja er könnuð
og kreppan sem þykir nú sönnuð
kemur þetta í ljós
að þrátt fyrir hrós
þá þurfum við vandaðri hönnuð.
Dagbjartur Dagbjartsson spyr,
hvort hið umrædda lambakjötsfjall
(eða kannske bara hóll) sé ekki
svona 3 kg á mann? Er nokkuð ann-
að að gera en að éta vandamálið:
Ég vona að hver sem er hér inni
afrek vinni nóg
og éti fyrir sálu sinni
svona 3 kíló.
Þetta vakti að sjálfsögðu sterk
viðbrögð. Þannig sagði Kristjana
Sigríður Vagnsdóttir: „Ekki er nú
skrítið að Þorgerður Gunnarsdóttir
vilji bændur niður í svaðið, ef bless-
aðir bændurnir rækta bara fram-
parta.“
Ólafur Stefánsson kemur víða við
á Leirnum eins og sést á þessu til-
skrifi hans fyrir viku: „Það eru lítil
takmörk fyrir því sem menn fjarg-
viðrast yfir á samfélagsmiðlum, og
nú er það fleginn bolur í dómssal.
Þolandi upplýsti reyndar sjálfur að
hér hefði verið um kjól að ræða en
ekki bol, og það „stuttan í þokka-
bót“.
Það opnar óra víddir,
og eykur lífsins þrána,
að kíkja á kjólasíddir,
þó kannski sé hár að grána
Menn fjasa, einhver fyrtist
femínistamegin,
er brjóstaskora birtist,
og bolurinn var fleginn.
Ólafur á Hellulandi segir frá því
að Jónas í Hróarsdal hafi kveðið
þessa vísu til manns eins sem bjó
með ráðskonu og átti með henni
nokkur börn. Hann spurði Jónas,
hvort hann ætti að gifta sig:
Silkiniftarfatafaldi
fyrir oss lyfta prestur má,
en suma giftir guð alvaldi,
þú getur skipt við báða þá.
Kristín, systir Jónasar, sem lengi
bjó á Hlíðarenda og Sauðárkróki og
var lengst af fátæk, orti á gamals
aldri er hún var spurð um líðan
sína:
Mín burt feykist munaró,
máttur veikur, hrakinn.
Stend sem eik á eyðiskóg,
orðin bleik og nakin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Lífskeðjan, frampartar
og kjólasíddir
„FORELDRAR MÍNIR AFNEITUÐU
MÉR – OG ERU AÐ BIÐJA UM AÐ FÁ
ENDURGREITT.“
„HÚN VAR AÐ BÓNA GÓLFIÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fullvissa hann um
að þú munir ekki meiða
þig í karatetímanum
þínum.
ÞETTA ER
HÉRUMBIL ALLT
SEM ÉG HEF
EKKERT SPENNANDI
GERIST HÉRNA
ÞETTA ER EKKI
SPENNANDI
ÞVÍ AÐ ÞÚ HLUSTAR ALDREI Á MIG
ÁN ÞESS AÐ GRÍPA FRAM Í!
HRÓLFUR! ÉG HEF VERIÐ AÐ TALA VIÐ ÞIG Í TÍU
AF HVERJU
SEGIRÐU
ÞAÐ?!
MÍNÚTUR
OG ÞÚ ERT
EKKI AÐ
HLUSTA!