Morgunblaðið - 31.08.2017, Qupperneq 6
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég er að vona það að þingið taki sig
saman og fari ekki í flokkspólitískar
grafir. Ég vil að þingið haldi á þessu
máli fyrir okkur. Við erum búin að
halda á nógu miklu,“ sagði Bergur
Þór Ingólfsson leikari við Morg-
unblaðið að lokn-
um fundi alls-
herjar- og
mennta-
málanefndar Al-
þingis í gær þar
sem uppreist æru
var til umræðu.
Bergur ávarpaði
fundinn og svar-
aði í kjölfarið
spurningum
nefndarmanna.
Bergur er faðir stúlku sem lögmað-
urinn Robert Downey braut á. Ro-
bert Downey fékk uppreist æru í
september á síðasta ári. Bergur hef-
ur farið fyrir brotaþolum Roberts
Downey og fjölskyldum þeirra sem
hafa síðustu mánuði reynt að vekja
athygli á málinu undir yfirskriftinni
Höfum hátt.
Telurðu að þessi barátta ykkar
hafi skilað því, eftir þennan fund, að
málið sé nú komið í formlegt ferli?
„Ég vona það. Ég vona að þessi
fundur marki upphafið að endinum á
þrautagöngu þolenda Roberts Dow-
ney.“
Sigríður Andersen dóms-
málaráðherra kom fyrst fyrir fund-
inn. Kvaðst hún hafa látið taka sam-
an í ráðuneytinu lista yfir allar
umsóknir um uppreist æru frá 1995
með skýringum um afdrif þeirra.
Þannig vilji hún fá yfirsýn yfir þróun
þessara mála. Stefnt sé að því að láta
vinna þennan lista lengra aftur í tím-
ann.
Ekki léttvæg ákvörðun
Sigríður lýsti því að í mörgum til-
vikum hefði verið legið þungt á ráð-
herrum vegna afgreiðslu slíkra
mála. Það hefði ekki reynst léttvægt
að taka ákvörðun þegar um alvarleg-
ustu brotin var að ræða. En eftir
margendurteknar skoðanir innan
dómsmála- og innanríkisráðuneytis,
hefði niðurstaða sérfræðinga verið á
þá leið að ráðherra væri ekki heimilt
að undanskilja einhverja brotaflokka
eða afgreiða mál eftir persónulegu
mati sínu. Niðurstaðan hefði alltaf
verið sú að bregða ekki út frá þeirri
stjórnsýsluhefð að veita uppreist
æru að uppfylltum skilyrðum.
Sigríður lýsti því að hún teldi ekki
rétt að ráðherra bæri ábyrgð á vél-
rænni afgreiðslu svona mála.
Hún hyggst leggja fram frumvarp
í haust sem felur það í sér að ekki
verði lengur hægt að sækja um upp-
reist æru. Ákvæði þess efnis í al-
mennum hegningarlögum verði felld
brott og í staðinn sett önnur skilyrði
í lögum þar sem í dag er talað um
óflekkað mannorð.
Úr sér gengin lög
Bergur Þór ávarpaði fundinn og
sagði að upplifun sín og fólksins sem
tekið hefur þátt í baráttunni með
honum væri að hugtakið uppreist
æru hefði verið misnotað í þessu
máli. Það hljómi fáránlega í eyrum
venjulegs fólks að forseti Íslands
beri enga ábyrgð á málinu en samt
þurfi undirskrift hans til.
„Lögin eru úr sér gengin enda eru
þau aldargömul og hugmyndin um
þau er líka aldargömul,“ sagði Berg-
ur. Hann lýsti því að fjölskyldu sinni
og fjölskyldum fleiri brotaþola óaði
við því að maður eins og Robert
Downey skyldi geta starfað sem lög-
maður.
Með því að hljóta uppreist æru
hafi hann sannað sakleysi sitt.
„Þannig lítur það út fyrir okkur. Og
hann komi til með að starfa sem lög-
maður með sama viðhorfi.“
Bergur sagði að breyta ætti lögum
um uppreist æru hið fyrsta en jafn-
framt að taka til endurskoðunar lög
um barnaníð og kynferðisofbeldi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Allsherjarnefnd Dómsmálaráðherra boðar frumvarp um að ekki verði lengur hægt að sækja um uppreist æru.
Vonar að málið fari ekki
í flokkspólitískar grafir
Fjallað um uppreist æru í allsherjarnefnd í gær
Bergur Þór
Ingólfsson
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Í sumar kom upp mál á einu heimili
Hrafnistu þar sem gestur tók upp án
heimildar myndband af íbúa heimils-
ins, sem var honum ótengdur, í
óheppilegum aðstæðum og deildi á
samfélagsmiðlum. Það komst upp
um athæfið og viðkomandi var beð-
inn um að fjarlægja myndbandið,
sem hann gerði. Í kjölfarið var sér-
stök tilkynning send til aðstandenda
heimilismanna á Hrafnistu um
myndatökur og þagnarskyldu þeirra
gesta sem heimsækja heimilin, sem
eru hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Í
tilkynningunni eru gestir Hrafnistu-
heimilanna minntir á að halda því
sem þeir sjá eða heyra um aðra íbúa
fyrir sjálfa sig. Ekki sé leyfilegt að
ræða slík mál utan Hrafnistu, taka
ljósmyndir af íbúum né upptökur án
leyfis, slíkt varði við lög um persónu-
vernd og meðferð persónuupplýs-
inga.
„Við höfum ekki lent í slíku atviki
áður enda gera langflestir sér grein
fyrir að aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar,“ segir Pétur Magnússon forstjóri
Hrafnistu. „Hjúkrunarheimili eru
heimili fólks og þar búa fleiri en sá
sem tengist þér og þá þarftu að sýna
því fólki ákveðna virðingu og tillits-
semi og virða friðhelgi einkalífsins.
Heilsufar og andlegt ástand heimilis-
fólks getur verið mismunandi, t.d. get-
ur það verið með heilabilun á einhverju
stigi og þarf oft mikla aðstoð og þjón-
ustu.“
Pétur segir að með tilkomu snjall-
síma sé fólk duglegt að taka myndir og
myndbönd og deila á samfélagsmiðl-
um. „Að taka upp myndband af öðrum
íbúa en verið var að heimsækja var
mjög óviðeigandi, þetta var einstak-
lingur í yngri kantinum og þegar hon-
um var bent á það kippti hann því strax
út. Við höfum verið að minna gesti
hjúkrunarheimilanna á að sýna nær-
gætni og hafa þagnarskyldu og einkalíf
fólks í huga. Fólk sýnir þessum ábend-
ingum fullan skilning og er mjög þakk-
látt,“ segir Pétur. Ef myndbandið hefði
ekki verið fjarlægt af vefnum hefði
málið verið kært til lögreglu á grund-
velli persónuverndarlaga.
Fólk ekki meðvitað um lögin
Helga Þórisdóttir, forstjóri Per-
sónuverndar, segir slík mál koma
reglulega inn á borð til þeirra og að
þeim sé mögulega að fjölga. „Það má
samt segja að það kemur á óvart hvað
það kemur í raun og veru lítið inn af
slíkum málum miðað við hvað það er
mikil dreifing á myndböndum og
myndum,“ segir Helga, málin varði
ýmislegt. „Til dæmis er verið að taka
myndir úr upptökumyndavélum og
senda á óviðkomandi aðila. Það eru síð-
ur á Facebook þar sem birtast myndir
af ólöglega lögðum bílum, en bílnúmer
er persónuupplýsingar, og ýmislegt
misgott sagt um fólk.“
Helga segir að það þurfi að fara með
varúð þegar kemur að myndbirtingum
af öðrum, allt frá saklausum tækifær-
ismyndum. „Strangt til tekið þarf sam-
þykki fyrir að vinna persónuupplýsing-
ar. Myndir og myndbönd inn á
samfélagsmiðlum falla undir rafræna
vinnslu sem er undir gildissviði per-
sónuverndarlaganna, þá þarf heimild
fyrir birtingu.“
Kvörtunarmálum sem snúa að slík-
um málum lýkur oftast með því að
myndin eða myndbandið er fjarlægt af
samfélagsmiðlinum. „Fólk er oft ekki
meðvitað um að það hafi verið að brjóta
lög, það gleymir sér og heldur að það
sé að tala við vini sína sem skipta
kannski hundruðum eða þúsundum í
einhverjum hópum,“ segir Helga.
Gestur á Hrafnistu tók upp myndband af öldruðum heimilismanni, sér ótengdum, í óheppilegum að-
stæðum og dreifði á samfélagsmiðlum Óviðeigandi og varðar við lög um persónuvernd
Birti myndband af heimilismanni
Morgunblaðið/Golli
Einkalíf Hrafnista í Reykjavík.
Pétur
Magnússon
Helga
Þórisdóttir
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
Hugmyndir Sig-
ríðar Andersen
dómsmálaráð-
herra, um breyt-
ingar á lögum
sem miði að því að
ekki verði lengur
hægt að veita
uppreist æru, lofa
góðu. Þetta sagði
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir,
þingmaður Pírata, í gær að loknum
fundi allsherjar- og eftirlitsnefndar
Alþingis sem hún á sæti í.
Þórhildur sagði það vera viss von-
brigði að ráðherra ætlaði ekki að
leggja fram öll gögn sem mögulega
væri hægt í þessu máli. „Ef ráðherra
ætlar að halda trúnað um gögn verð-
ur hún að vísa í það hvaða laga-
ákvæðis hún er að vísa til. Þetta var
tilefni umræðna í nefndinni. Það
voru líka viss vonbrigði að ráð-
herrann skyldi ekki vera reiðubúinn
að ræða efnislega um þetta mál,“
sagði Þórhildur.
Hún sagði að ekki hefði verið ósk-
að eftir því að ræða um persónuleg
málefni Roberts Downeys, heldur
um málsmeðferðina þegar umsókn
hans um uppreist æru var afgreidd.
Enn fremur vildi hún að sett væri í
forgang að tryggja að barnaníðingar
og aðrir níðingar gætu ekki starfað
sem lögmenn. „Það er hins vegar
mikið fagnaðarefni að sjá áhuga
nefndarinnar á að taka þetta mál fyr-
ir og laga það sem fyrst. Ég held að
málið sé hægt og rólega á réttri leið,
en vissulega mætti taka harðar á
slíkum málum og vera líka hrein-
skiptnari og heiðarlegri við almenn-
ing varðandi öll þau gögn sem tengj-
ast slíkum málum og eru ekki háð
sérstökum trúnaði.“
Boðar frumvarp
Þórhildur telur að leggja þurfi
meiri áherslu á það atriði sem snýr
að starfsréttindum lögmanna, en að
hennar mati væri rökrétt að byrja
þar. Fyrir vikið boðar hún eigið
frumvarp í þeim efnum, komi það
ekki fram fyrir þingsetningu 12.
september. „Ég tel að við þurfum að
byrja á því að laga lagaákvæði um
lögmenn og síðan mega tillögur ráð-
herra verða að veruleika,“ sagði Þór-
hildur. „Mér líst ágætlega á þær eins
langt og þær eru komnar, en þær
virðast allar vera enn á einhverju
hugleiðingastigi.“
hjortur@mbl.is
Held að málið
sé á réttri leið
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Níðingar starfi ekki sem lögmenn