Fréttatíminn - 04.02.2017, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 04.02.2017, Blaðsíða 2
Balaton & Búdapest sp ör e hf . Sumar 6 Balaton vatn í Ungverjalandi er margrómað fyrir fallegar strendur, líflega bæi og ólýsanlega fegurð og ekki að undra að vatnið og umhverfi þess sé einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Góður tími gefst til að slaka á og eiga notalegar stundir á þessum fagra stað, kynnast menningu og mannlífi Ungverja ásamt því að taka þátt í ungversku sveitabrúðkaupi. 15. - 25. júní Fararstjóri: Pavel Manásek Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 214.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! „Þetta er gríðarlega óhuggulegt“ Slys Einn maður lést og annar var fluttur á sjúkrahús vegna brennisteinseitrunar í fiskvinnsl- unni Háteigi í nágrenni HS Orku á Reykjanesi. Átta fyrirtæki voru rýmd í kjölfarið. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Talið er að brennisteinsvetni hafi streymt upp í gegnum kaldavatns- dreifikerfið og safnast upp í and- rúmsloftinu, samkvæmt upplýsing- um frá Heilbrigðiseftirlitinu. Kalda vatnið er tengt við gamla borholu á vegum Reykjanesvirkjun- ar sem notuð hefur verið til niður- dælingar. Mennirnir tveir sváfu í svefnskála skammt frá fiskvinnslunni. Lög- reglan lét rýma átta fyrirtæki sem eru á sama dreifikerfi og loka þeim í kjölfar slyssins. „Þetta er gríðarlega óhuggu- legt og við verðum að fá skýringar sérfræðinga á því hvað þarna er á ferðinni,“ segir Magnús Guðjóns- son, framkvæmdastjóri Heilbrigð- iseftirlits Suðurnesja. Þetta á ekki að geta gerst. Þetta er slys og við verðum að komast til botns i þessu. Fyrr er ekki hægt að opna þessi fyr- irtæki aftur.“ Lögreglan, Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og Vinnueftirlitið rann- saka málið. Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS orku, segist ekkert vilja tjá sig fyrr en rannsókn á tildrögum slyssins sé lokið. Samkvæmt heimildum Fréttatím- ans voru mennirnir pólskir verka- menn. Magnús Guðjónsson segir að fiskvinnslufyrirtækið Háteigur hafi sagt að mennirnir í svefnskál- anum hafi verið vaktmenn. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í forsvarsmenn fyrirtækis- ins. Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins, segist ekki geta lýst aðstæðum mannanna eða af hverju þeir hafi sofið í skálanum. Rannsaka þurfi betur tildrög þessa hörmulega slyss. „Ég geri ráð fyrir að þetta sé hvíldarherbergi, við höfum velt því fyrir okkur. Stundum leggja menn sig í vinnunni.“ „Það þarf enginn að segja mér fyrirfram að þessir svefnskálar séu á eðlilegum stað,“ segir Krist- ján Gunnarsson, formaður Verka- lýðs og sjómannafélags Keflavíkur. „Það eru bæli hingað og þangað um allt Reykjanesið fyrir erlent verka- fólk. Það er verið að breyta gömlum beitningarskúrum og fiskvinnslu- húsum í húsnæði fyrir verkafólk. Ég veit um bílaverkstæði með íbúðar- húsnæði á eftir hæðinni svo þú get- ur ímyndað þér eiturgufurnar þar.“ Þingmenn féllu á prófinu Kjaramál Miðstjórn Alþýðusam- bands Íslands telur forsætisnefnd Alþingis hafa fallið á fyrstu prófraun sinni og sýnt að Alþingi skortir jarðsamband og tengsl við almenning í landinu. Endur- skoðun kjarasamninga geti verið í uppnámi. Nýir þingmenn höfðu tækifæri til að beita sér og sýna í verki að alvara lá að baki kosningaloforð- um og taka til baka hækkun þing- fararlauna umfram það sem hinn almenni launamaður hefur fengið í sitt umslag. Miðstjórn Alþýðusambandsins mótmælir hálfkáki forsætisnefnd- ar þingsins og krefst þess að Al- þingi taki málið upp og afturkalli hækkanir kjararáðs. Minnt er á að forsenduákvæði kjarasamninga eru til endurskoðunar nú í febrúar og hækkanir til alþingismanna og æðstu embættismanna geta sett framhald kjarasamninga alls þorra landsmanna í uppnám. Nýir þingmenn fá falleinkunn hjá ASÍ sem segir hækkanir þeirra geti sett kjarasamninga í uppnám. 31959 Mennirnir tveir sváfu í svefnskála skammt frá fiskvinnslunni. Lögreglan lét rýma átta fyrirtæki sem eru á sama dreifikerfi og loka þeim í kjölfar slyssins. Mynd | Hari Kalda vatnið er tengt við gamla borholu frá Reykjanesvirkjun. Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS orku, segist ekkert vilja tjá sig fyrr en rannsókn á tildrögum slyssins sé lokið. Fjölmenni við útför Birnu Sakamál Fjölmenni var í útför Birnu Brjánsdóttur sem fram fór frá Hallgrímskirkju í gær. Maðurinn sem er grunaður um að hafa orðið Birnu að bana var ekki yfirheyrður í gær. Þá baðst lögmaður mannsins, sem hefur verið sleppt úr haldi, undan að tjá sig um málið í ljósi þess að útför Birnu fór fram í gær. Mikill fjöldi var viðstaddur útför Birnu Brjánsdóttur klukkan 15 í gær en útförin fór fram frá Hall- grímskirkju. Erfidrykkja fór fram í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Grænlenskur karlmaður var úr- skurðaður í áframhaldandi gæslu- varðhald á fimmtudaginn en sterk- ur grunur er á að hann hafi orðið Birnu að bana. Hinum manninum, sem einnig sat í gæsluvarðhaldi, var sleppt lausum og flaug hann til Grænlands frá Reykjavíkurflugvelli á fimmtudagskvöld. Inga Dóra Markussen, fram- kvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, sagði í viðtali við Morgunvaktina í gær að margir hefðu tekið á móti honum á flugvellinum í Nuuk, en sjálf hafði hún áhyggjur af móttök- unum. Mikið hefur verið fjallað um málið í grænlenskum fjölmiðlum og voru fréttir um að sjómannin- um hefði verið sleppt úr haldi mest lesnu fréttir grænlenskra fjölmiðla í gær. Lögmaður sjómannsins, Unn- steinn Örn Elvarsson, baðst und- an því að tjá sig um stöðu skjól- stæðingsins síns í gær af virðingu við aðstandendur Birnu þar sem út- för hennar fór fram í gær. | vg Útförin fór fram frá Hallgrímskirkju í gær. Sjúklingar nota kúabjöllu á yfirfullum Landspítala Heilbrigðismál Mikil flensa og óvenjuhörð veirusýking hefur orðið til þess að gátlisti vegna inn- lagna hefur verið virkjaður upp í topp og er kominn á þriðja stig. Það er það hæsta áður en viðbragðsá- ætlun er virkjuð. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Gátlisti vegna innlagna hefur verið hækkaður upp á þriðja stig vegna fjölda sjúklinga á spítalanum, en það er hæsta stigið áður en viðbragðsá- ætlun í tengslum við Almannavarnir er virkjuð. Fundað var í gær um það hvort efni væri til þess að virkja við- bragðsáætlun. Stefán Hrafn Hagalín, upplýsingafulltrúi Landspítalans, segir óvenjumikið af sjúklingum á spítalanum vegna harðrar flensu og veirusýkinga. Stigið var hækkað í vikunni en það þýðir að opnunartími dagdeilda er lengdur, allri skipulagðri þjónustu er frestað, svo lengi sem það ógni ekki öryggi sjúklinga, auk þess sem ósk- að er eftir viðbótarmönnun frá að- gerðarsviði. Samkvæmt áætlun er mögulegt að breyta bílskýli í bráða- móttöku á Landspítalanum í Foss- vogi. Það var síðast gert í mars árið 2015. Stefán Hrafn staðfestir að sjúk- lingar séu á göngum spítalans, „og það eru eiginlega allar hendur á dekki,“ bætir hann við. Mikið álag er á starfsfólki spítalans og ástandið er alvarlegt. Þannig lýsir Tómas Guðbjartsson því á Facebook- -síðu sinni fyrr í vikunni að verðmæt- um sjúklinga hafi verið komið fyrir í plastboxi auk þess sem þeir notast við kúabjöllu til þess að fá aðstoð í stað bjölluhnapps eins og finna má inni á sjúkrastofum, en þar er um al- gjört undantekningatilfelli að ræða. Umræðan um Landspítalann var áberandi fyrir síðustu kosningar en húsnæðið er löngu sprungið, eins og forsvarsmenn spítalans hafa ítrekað bent á. Hátt í 90 þúsund manns skrif- uðu undir áskorun til stjórnvalda að eyða meira fjármagni í spítalann sem hefur þurft að búa við húsnæðis- og fjárskort árum saman. Kúabjallan forláta sem sjúklingar þurfa að nota í staðinn fyrir bjöllu- hnapp. 2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.