Fréttatíminn - 04.02.2017, Blaðsíða 34
FlashBack 91,9 fjölskyldan hefur stækkað og bætt
við sig fjórum nýjum útvarpsrásum
Breyttu símanum
þínum í útvarp
Sæktu spilarann:
w
w
w
.jo
ku
la
.is
34 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Oddur Jósep Halldórs-son, einn skipstjór-anna á dráttarbátum Faxaflóahafna, hefur verið að snúast niðri
á Reykjavíkurhöfn alveg frá því
að hann var smápolli. Oddur hef-
ur komið víða við í sjómennskunni
í gegnum tíðina en undanfarin
sautján ár hafa einkum farið í að
koma öðrum bátum til hafnar.
„Ætli ég hafi ekki verið svona
þrettán ára þegar ég fór fyrst á sjó
til að gera eitthvað að viti, var tek-
inn með á dragnót að sumri til,“
segir Oddur. „Það var stuttur túr en
mér fannst þetta strax spennandi.
Ég var ekki sérstaklega áhugasamur
skólamaður og ætli það hafi ekki
bara legið beint við að sjómennsk-
an tæki við manni. Heimilið snérist
meira og minna um sjómennsku og
þetta var það sem maður þekkti.
Oddi þykir vænt um höfnina og
lífið sem þar þrífst en breytingarn-
ar hafa verið miklar. „Þegar ég var
strákur, svona um 1963, þá var mik-
ið meira af minni bátum hérna. Ég
hef alltaf verið mikill „minni báta
maður“ og haft mestan áhuga og
auga fyrir þeim og ætli það sé ekki
að hluta til einhver rómantík í
manni,“ segir Oddur. Hann er á því
að mannlífið í kringum höfnina hafi
eitthvað dregist saman og dofnað
síðan þá. „Þetta er allt annars eðlis
núna. Þá voru hér á vappi margir
karakterar sem settu mikinn svip á
höfnina, en þetta hefur allt bland-
ast saman núna.“
Ömurleg staða
Það þykknar í Oddi þegar sjó-
mannaverkfallið berst í tal. „Það er
dapurlegt og eiginlega ömurlegt að
sjá bátana svona fasta við bryggju,“
segir hann. „Þeir eru of margir
hérna eins og er, ef þú spyrð mig.
Það hefur alla tíð verið erfitt fyrir
þessa hópa, sjómenn og útgerðar-
menn, að tala saman. Það er gömul
saga og ný og þessu hefur oftar en
ekki lokið með lagasetningu. Þessu
þarf að fara að ljúka og skipin að
halda á miðin.“
Oddur er borinn og barnfæddur
Reykvíkingur og Vesturbæingur,
fæddur árið 1953. Faðir hans, Hall-
dór Bjarnason, var útgerðarmaður
og skipstjóri á Jóni Bjarnasyni RE-
213.
Þegar Oddur er spurður um hvort
hann hafi dottið útbyrðis, svarar
hann neitandi. „Ég var hins vegar
nálægt því einu sinni. Ætli ég hafi
ekki verið svona sex ára og var að
sniglast hérna, einu sinni sem oft-
ar. Ég man að ég hékk fram af einni
bryggjunni hérna, horfði niður í
sjóinn og hélt ég myndi falla milli
skips og bryggju, en svo færðist bát-
Rétti
tíminn til
að skoða
skipin
Það er sjómanna-
verkfall og skipin
liggja bundin við
bryggju. Þó verkfallið
sé alvarlegt mál
fyrir þjóðarbúið og
atvinnugreinina
býður það upp á
möguleika fyrir
landkrabba til að
skoða flotann. Höfnin
í Reykjavík á 100 ára
afmæli á þessu ári
og Fréttatíminn fékk
sérfræðing í göngu
um höfnina.
Oddur Jósep Halldórs-
son er einn úr hópi
skipstjóra á dráttar-
bátum Faxaflóahafna.
Auk Magna sem hér
er í bakgrunni heita
bátarnir í þeim flota
Jötunn, Þjótur og
Leynir. Öflugastur
þeirra er Magni, en
togkraftur hans er 40
tonn.
Myndir | Hari
urinn að og ég lenti á honum,“ segir
Oddur og brosir.
En hvað með sjóveikina? „Ég var
dálítið lengi sjóveikur og stundum
nokkuð illa. Eftir að ég fór yfir á lóð-
sana verð ég líka sjóveikur enn í dag,
ef ég fer eitthvað af viti frá landi.“
Falleg skip
En er íslenski fiskiskipaflotinn fal-
legur? Oddur segir erfitt að alhæfa
um hvaða skip séu fallegust, en öll
búa þau yfir sínum sérstaka karakt-
er og sinni sérstöku sögu sem gefur
þeim gildi.
Þegar að fegurðinni kemur þarf
hins vegar að taka mið af mörgu og
smekkur manna misjafn. „Auðvit-
að eru sumir bátar fallegri en aðr-
ir og ætli maður sé þá ekki aðallega
að velta fyrir sér hlutföllum og lög-
un á stefni og skut. Ef við horfum á
stefnin þá er það helst „peran“ sem
er neðst við sjávarflötinn sem mað-
ur horfir til. Peran klýfur ölduna og
hefur mikil áhrif á sjólagið. Hún má
ekki vera of aumingjaleg miðað við
stærð skipsins sjálfs.
Svo lítum við á skutinn og þá eru
þeir mismunandi. Sumir eru með
svokallaðan gafl, eru í raun flatir að
aftan eins og veggur, á meðan aðrir
gamlir bátar eru svokallaðir hekk-
bátar og svo er jafnvel talað um að
margir gamlir bátar séu með drottn-
ingarrassgat.“
Já, nú er rétti tíminn til að ganga
um þessa fallegu hundrað ára gömlu
höfn og velta fyrir sér bátunum, líf-
inu um borð og nánum tengslum
sjávarútvegsins og þjóðarhags. Svo
er um að gera að sjómenn og út-
gerðarmenn fari að semja. Koma
svo!
2
34
5
67
8
9
1
1
2
6
4
3
Aðalbjörg RE-5 er í dag eini dragnótar-
báturinn sem gerður er út til dagróðra
frá Reykjavík, en þeir voru áður fimm
eða sex talsins. Útgerðin á bátnum er
sú elsta í Reykjavík og hefur haldist í
sömu fjölskyldu í ríflega 80 ár. „Ég var
á þessum bát og forvera hans, gömlu
Aðalbjörginni á níunda áratugnum,“
segir Oddur.
Það eru alltaf einhver erlend skip í
höfn. Grænlenska skipið Nanoq er
með þeim sérstaka hætti að það dreg-
ur línuna upp í gegnum kjölinn. „Það
er tækni sem mörgum þykir merkileg.“
Faxaborg SH-207 var eitt níu skipa af
sömu tegund sem komu til landsins
í öðru, mun stærra skipi, eftir smíði
þeirra í Kína. „Ég átti hlut í einum
þessara báta, Eyvindi, sem nú er farinn
til Noregs.“
5
„Venus NS-150 er reisulegt og tækni-
legt uppsjávarskip, tveggja ára gamalt
frá Vopnafirði sem bæði notast við
net og flotvörpu við veiðar. Skipið er
smíðað í Tyrklandi.“
Hér er annar útlendingur, rannsóknar-
skipið Cape Race sem minnir á liðna
tíma. „Þetta er forvitnilegt skip, sem
hefur verið hér í geymslu um nokkurn
tíma. Það var við mælingar á land-
grunni við strendur Grænlands þar
sem það var notað til að rannsaka það
hve hratt jöklarnir hopa þessi árin.
Þar rakst það illilega í botninn og var í
viðgerð hér.“
7
„Öll þessi skip hafa mismunandi eig-
inleika. Kristrún RE-177 er línubátur
sem bæði frystir og ísar fiskinn og er
meðal annars nýtt við grálúðuveiðar.“
9
„Brimnesið RE-2 er ásamt systur-
skipinu Guðmundi í Nesi, hjartað í
flotanum hjá Útgerðarfélaginu Brimi.
Kleifabergið, sem er líka í þeim flota,
er síðan elsti togarinn í togaraflota
landsmanna. Hann er núna inn í
Sundahöfn.“
8
Ottó N. Þorláksson RE-203. „Ís-
lenskum smíðum hér við höfnina
hefur fækkað nokkuð á síðustu árum.
Skuttogarinn Ottó er samt eitt dæmi
um þessi skip. Hann var smíðaður hjá
Stálvík í Garðabæ 1981.“