Fréttatíminn - 04.02.2017, Blaðsíða 30
setjast þar að og tileinka líf sitt
því að kynnast betur heilandi
áhrifum kakóbaunarinnar. Í dag
vita flestir við vatnið hver hann
er og hvar húsið hans er, þar sem
hann og konan hans, Barbara,
halda súkkulaðiathafnir þegar þau
eru ekki að ferðast um heiminn
og breiða út boðskap kakóbaunar-
innar.
„Burnout“ eftir tíu ára vinnu
„Kieth er ástæðan fyrir því að ég
kom hingað fyrst. Hann er ein af
fjöldamörgum skrítnum skrúfum
í þessum gullfallega bæ sem ég
er búin að læra svo margt af. Ég
kynntist kakóinu fyrst í athöfn-
um hjá Júlíu Adamsdóttur sem er
algjörlega frábær en mig langaði
til að læra að búa til mínar eigin
athafnir, því engar athafnir eru
eins. Athafnirnar snúast að miklu
leyti um að tengjast sjálfum okkur
á ný. Kakóið hjálpar okkur að fara
inn á við og tengja saman hug og
hjarta, komast aftur að innsæinu.
Það eru svo margir á yfirsnúningi
í dag og ég hef líka verið þar sjálf,“
segir Kamilla sem hafði unnið
sleitulaust í 10 ár þegar hún missti
skyndilega alla orku. „Ég fór í nám
í Kaospilot-skólanum í Danmörku,
í skapandi verkefnastjórnun og
verkefnahönnun með áherslu á
samfélagslega ábyrgð. Eftir nám-
ið vann ég við tónlistarbransann
í 10 ár, fyrst við að markaðssetja
íslenska tónlist á erlendri grundu
og svo sem kynningarstjóri Iceland
Airwaves hátíðarinnar og svo vann
ég fyrir Of Monsters and Men og
túraði með þeim um allan heim-
inn. Í öll þessi ár setti ég alltaf
vinnuna í fyrsta sæti því ég er
þannig gerð að ég er rosalega dug-
leg og vinn vanalega á við nokkrar
manneskjur. Þetta endaði með því
að ég lenti í algjöru „burnouti.“
Magnaðir hlutir gerast með kakói
„Margir fljóta í gegnum lífið án
þess að hlusta á draumana sína
og leyfa þeim að rætast, eða eru
ósáttir við hlutskipti sitt í lífinu og
gera ekkert til að breyta því. En ég
trúi því að það sé hægt að breyta
þessu og ég trúi því að kakóið geti
hjálpað til við það,“ segir Kamilla
sem ákvað eftir vikulanga dvöl við
Atitlan-vatnið að hún yrði að fara
aftur og vera í langan tíma. Frá
því í desember hefur hún stundað
kakó-athafnir og farið í einkatíma
til Kieth auk þess að undirbúa sig
undir jógakennarapróf. Hún segist
vera að finna sínar eigin leiðir með
kakóinu. „Það gerast magnaðir
hlutir í þessum athöfnum og ég
hef séð fólk leita langt inn á við og
taka miklum breytingum. Allar
athafnir eru ólíkar og fara eftir því
hver stjórnar þeim. Andleg mál-
efni eru auðvitað ekki fyrir alla
en það sem er fyrir alla er að losa
um streitu og líta aðeins inn á við.
Við erum öll að glíma við allskon-
ar hlutverk á lífsleiðinni og sumt
viljum við losna við á meðan ann-
að viljum við styrkja, fyrir mér er
kakóið ákveðinn farvegur til þess.
Hluti af því sem ég lærði í mínu
námi í Danmörku var „coaching“,
að leiðbeina fólki, og nú finnst mér
spennandi að blanda kakóinu inn
í það, án þess að gera það á ein-
hvern andlegan hátt. Ég er frekar
mikið „no bullshit“ kona, raunsæ
og jarðbundinn en ég leyfi mér
samt líka að vera með opinn huga
og fljúga hátt,“ segir Kamilla sem
stefnir á að vera með sérstakar
kakóathafnir fyrir konur í framtíð-
inni. „Tónlist er stór hluti af mínu
lífi svo ég á eftir að nota mikið tón-
list. Fyrst og fremst á þetta að vera
gefandi og skemmtilegt.“
Hamingjan í fyrsta sæti
„Í dag er planið að vinna til að
geta lifað en ekki að lifa til að geta
unnið. Og það er einmitt það sem
ég er að gera núna,“ segir Kamilla
sem á erfitt með að yfirgefa fallega
þorpið í hlíðum eldfjallsins þar
sem dagurinn byrjar á drykk guð-
anna með útsýni yfir heilagt vatn-
ið. Hún hefur nú þegar framlengt
ferðina um heilan mánuð. „For-
eldrar mínir eru algjörir hippar og
voru grænmetisætur löngu áður
en þau áttu mig. Ég hef alltaf verið
mjög heilbrigð og með mikið jafn-
vægi í lífinu en ég týndi því þegar
allt fór að snúast um vinnuna.
Eftir að ég jafnaði mig hefur ham-
ingja og heilsa verið númer eitt,
tvö og þrjú í mínu lífi og þessi
staður er kjörinn til að rækta það.
Ég er búin að læra svo mikið á því
að vera hér, bæði af fólkinu sem
ég hef kynnst, en líka af menn-
ingunni sem er svo nægjusöm.
Þetta er auðvitað langt frá íslenska
lífsstílnum, þar sem allt snýst dá-
lítið mikið um að eignast hluti. Ég
held áfram að framlengja ferðina
þó ég hafi ekki mikið af fötum og
bara kalt vatn til að þvo og vaska
upp,“ segir Kamilla og í því heyrist
hanagal í símtólið. Eru líka hanar
í kofanum? „Já,“ segir Kamilla og
skellihlær. „Það er nú annað sem
ég er búin að læra, að hanar gala
ekki bara á morgnana heldur allan
liðlangan daginn! Alltaf lærir mað-
ur eitthvað nýtt.“
Kamilla segir frábært að byrja á kakóbolla áður en hún stundar jóga eða hugleiðslu. Á bak við Kamillu má sjá yfir Atitlan-vatnið sem Mayarnir trúðu að væri heilagt
hlið til guðanna. Eldfjöll umlykja vatnið og í hlíðum fjallanna búa innfæddir í sátt og samlyndi við heilmikið af aðkomufólki í leit að fallegri nátturu eða jafnvel sjálfum
sér.
Kakótréð, Theobroma cacao, er heilagt
í menningu Maya-indíána. Ávöxtur
þess gefur af sér kakóbaunina sem
er talin vera fæða guðanna, eins og
nafnið gefur til kynna; í grísku þýðir
„theo“ guð, og „broma“ matur.
„Það gerast magnaðir
hlutir í þessum athöfnum
og ég hef séð fólk leita
langt inn á við og taka
miklum breytingum.“
Súkkulaðishamaninn Kieth Wilon.
„Þegar þú tekur þátt í kakóathöfn
fær heilinn ákveðið „rush“ vegna
aukins blóðþrýstings sem veldur
því að einstaklingurinn getur haldið
margvíðum fókus í allt að 4-5 klukku-
stundir. Einbeitingin verður svo sterk
að einstaklingur finnur ekki fyrir and-
legri þreytu og það verður auðveldara
að hugleiða. Drekktu súkkulaði, farðu
hátt og kafaðu djúpt. Ég kalla kakó lyf,
líkt og allar aðrar lækningarjurtir.“
Af vefsíðu Kieth Wilon.
LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
ÚTSÖLULOK
ÚTSÖLU LÝKUR UM HELGINA
30 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017