Fréttatíminn - 04.02.2017, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Eins og á við um fleiri svona sögur byrjar hún árið 2008 þegar Geir Haarde bað guð að blessa Ísland,“ segir
Arngrímur Pálmason sem hefur
á undanförnum árum glímt við
skuldamál sín innan fjármálakerf-
isins og flókin dómsmál í kjölfar
hjónaskilnaðar árið 2011. „Þá fyrst
fer þetta allt á fulla ferð vegna
skulda sem ég var með á eigin
kennitölu. Eiginkona mín fyrrver-
andi, sem er erlendur ríkisborgari,
gat ekki tekið við eignum úr búinu
vegna þess hve þær voru skuld-
settar. Sex árum síðar eru eftir-
málin enn í gangi þó að skilnaðin-
um hafi formlega lokið árið 2015.
fór fram á skilnaðinn. „Þá hófust
endalausar ferðir í dómsal. Málinu
var skipt upp fyrir rétti og þannig
fékk einn dómari hjónaskilnaðar-
málið, annar fjárskiptamálið og sá
þriðji barnaforræðismálið.“
Arngrímur hefur að langmestu
leyti rekið sín mál sjálfur fyr-
ir dómi og reynt að leita ráða á
ýmsum stöðum í kerfinu. „Ástæð-
ur þess að ég rek mín mál sjálfur
eru fyrst og fremst fjárhagslegar.
Ég gat einfaldlega ekki bætt lög-
fræðikostnaði við skuldir mínar
og maður hefur það sterkt á tilf-
inningunni að þeir einir nái fram
réttlæti í þessu landi sem hafa efni
á því.“
Arngrími telst til að hann hafi
tekist á við ríflega fimmtíu lög-
lærða einstaklinga í kerfinu á síð-
ustu sex árum. Þar telur hann til
héraðsdómara, hæstaréttardóm-
ara (sem ekki vildu taka afstöðu
til kærumála hans), sýslumenn,
lögfræðinga banka og innheimt-
ustofnana, starfsmenn ráðuneyta
og fleiri.
Lokaðar dyr
„Flækjustigið hefur verið gríðar-
legt og samt er þetta bara venju-
legt hjónaskilnaðarmál með gild-
um kaupmála sem gerður var á
sínum tíma, árið 1991. Þess vegna
trúði ég því ekki að þetta gæti tek-
ið svona langan tíma. Hins vegar
er það svo að hvert sem maður
leitar ráða í kerfinu kemur maður
að sama viðmótinu. Fólk segir:
„Nei, nei, þetta er ekki mitt mál,“
en þegar maður spyr: „Hvert á
ég þá að leita næst?“ – af því að
stjórnsýslulög gera ráð fyrir því að
maður geti spurt – þá fær mað-
ur alltaf sama svarið: „Þú verð-
ur að tala við hann Jón í þessari
stofnun eða hana Siggu í hinni.“
Ég er þannig búinn að leita í allar
stofnanir ríkisins sem að þess-
um málum koma síðastliðin sex
Arngrímur Pálmason segir ómögulegt
fyrir ólöglært fólk, sem ekki hefur efni
á þátttöku lögfræðings í málarekstri
sínum, að hljóta leiðsögn eða aðstoð
í réttarkerfinu. „Það eru bara svona
þrjóskir menn eins og ég sem halda
áfram,“ segir Arngrímur. Mynd | Hari
Hvernig skyldi vera að
velkjast um í dóms
kerfinu með mál
sín árum saman án
stuðnings lögmanns
og rekast á veggi
hvert sem litið er?
Arn grímur Pálmason
hefur reynslu af því
og hann segir farir
sínar ekki sléttar í
sam skiptum við hinar
ýmsu stofnanir réttar
ríkisins Íslands. Rétt
lætið er að hans mati
bara fyrir þá sem hafa
efni á því að útvega
sér þekkta lögmenn.
Yfirleitt á skilnaðarmálum að ljúka
fyrir dómstólum á sex vikum, en
þetta hefur svo sannarlega dregið
dilk á eftir sér,“ segir Arngrímur.
Endalausar ferðir í dómsal
Lán Arngríms tengdust á sínum
tíma útleigu hans á herbergjum
í húsnæði sem hann átti og voru
lánin vegna þriggja einbýlishúsa
og eins raðhúss skráð á hans
kennitölu. Lánin voru gengis-
tryggð en vandræðin hófust fyrir
alvöru þegar eiginkona Arngríms
ár til þess að biðja um hjálp og ég
er búinn að skrifa bréf og viku-
lega tölvupósta í allar áttir. Það
er fullt af fólki í vinnu í kerfinu
en það er ekki í vinnu hjá neinum
lifandi einstaklingi, heldur bara
hjá þessu andlitslausa kerfi. Í sam-
skiptum manns kemur varla fyrir
að maður nái í þessa einstaklinga
til að heyra rökstuðning að baki
ákvörðunum. Kerfið ver sig alltaf
með því að segja: „Ekki benda á
mig.““
Að kunna málið
Arngrímur segir ómögulegt fyrir
ólöglært fólk, sem ekki hefur efni
á þátttöku lögfræðings í mála-
rekstri sínum, að hljóta leiðsögn
eða aðstoð í réttarkerfinu. „Maður
áttar sig fljótlega á því að maður er
kominn í lokaðan klúbb þar sem
allir tala sérstakt tungumál og þú
þarft að beita þig miklu afli til að
læra. Þetta er upplifun fjölmargra
sem ég veit að eru að berjast áfram
með þessum hætti, þó að flest-
ir gefist auðvitað upp og hætti
baráttunni. Það eru bara svona
þrjóskir menn eins og ég sem
halda áfram.
Eftir situr tilfinningin um að fólk
aftengi sig starfi sínu í þessu kerfi.
Fólk fer að tala eins og stofnunin
sem það situr í en lítur algjörlega
framhjá þjónandi hlutverki sínu og
þeirri staðreynd að stofnanir eru
auðvitað byggðar upp á einstak-
lingunum. Það er í mesta lagi að
fólk segi við mann: „Aumingja þú
Arngrímur. Þetta er leitt að heyra
en þetta er ekki mitt mál. Gangi
þér vel.“ Eftir sitjum við með kerfi
sem allt of oft stjórnast af geð-
þóttaákvörðunum hingað og þang-
að. Fjölmargar úrskurðarnefndir
hafa takmarkaða virkni því þær
eru ekki dómsvald og sama má
segja um Umboðsmann Alþingis
sem á að vernda borgarana gegn
ríkisvaldinu, en gefur það verkefni
frá sér.“
Reynir mikið á
Arngrímur segir margra ára bar-
áttu við kerfið leggjast á sálina.
„Í slíkri baráttu er erfitt að fá
næði til að greiða úr fjármálum
sínum, losa um og selja eignir til
að standa í skilum. Maður hefur
ekki næði til að lifa lífinu sínu eða
draga andann. Eðlilegur svefn
er fljótur að yfirgefa mann því að
áhyggjurnar taka allt yfir. Maður
nær aldrei að slaka á.“
Arngrímur hefur verið fatlaður
allt frá fæðingu og glímir við löm-
un í hægri hlið líkamans. Hann
telur ráðaleysi og skort á stuðningi
í réttarkerfinu stangast á við 76.
grein stjórnarskrárinnar þar sem
kveðið er á um að öllum sem þess
þurfa skuli tryggður í lögum réttur
til aðstoðar vegna sjúkleika og ör-
orku. „Ég held því fram að ég, sem
þjóðfélagsþegn í þessu landi, hafi
ekki fengið eitt einasta tilvik um
þjónustu frá einstaklingum sem
starfa í opinberri stjórnsýslu, hvar
sem litið er á, á þessum sex árum
síðan vandræði mín hófust.“
Kerfið segir alltaf:
„Ekki benda á mig“
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
598 000
kr.
Gullni þríhyrningurinn+strandir GOA
339 000
kr.
161 700
kr.
Rúmenía - í fótspor Drakúla greifa
Moskva-Pétursborg
298 000
kr.
Úzbekistan og Túrkmenistan
488 000
kr.
Kákasusfjöll
379 000
kr.
HIÐ ÓÞEKKTA INDÓKÍNA
Víetnam, Kambódía+ Moskva
8. - 23. apríl I 15 nætur UM HAUST
INDVERSKT SUMAR
ÆVINTÝRALJÓMI 8 nætur
TRANSILVANÍU19. - 26. maí
GEORGIA OG AZERBÆDSJAN
9. - 19. september I 10 nætur
SILKILEIÐIN MIKLA
7. - 19. október I 12 nætur
SIGLING KEISARALEIÐIN
30. júlí - 09. ágúst I 10 nætur
11 nætur
14.-25. nóvember
ÚT Í HEIM MEÐ OKKUR!