Fréttatíminn - 04.02.2017, Blaðsíða 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017
Nuddkonan í glugganum
Við Hverfisgötu 37 er að finna
Gluggagalleríið. Þar verður Katrín
Inga Jónsdóttir Hjördísardótt-
ir með gjörning og innsetningu í
dag. Þar verður fótanuddið í fyrir-
rúmi og kannað hvernig snerting
og einlægni í listum getur haft
áhrif út í samfélagið. Einnig verð-
ur hægt að kíkja á gjörninginn í
beinni á vefritinu artzine.is
Hvar? Glugginn við Hverfisgötu 37.
Hvenær? Í dag milli kl. 17 og 19.
Hvað kostar? Ekkert
GOTT
UM
HELGINA
DIMMA kemur úr felum
Þungarokksveitin DIMMA er á fullu við vinnu í nýrri plötu sem kem-
ur út með hækkandi sól. Sveitin ætlar hins vegar að telja í nokkur lög á
tónleikum enda er meðlimi farið að klæja í rokkputtana. Þetta er útkall:
Síðasti séns fyrir rokkhunda að sjá bandið fram á sumar.
Hvar? Hard Rock Café í Lækjargötu.
Hvenær? Í kvöld kl. 22.
Hvað kostar? 2500 kr. – miðar á tix.is og við inngang.
Tækni dagsins í dag og á morgun
Veröldin er sítengd í allar áttir og rétt að fylgjast vel með. UT Messan, þar sem upplýsingatæknin er rædd og
skoðuð, er hafin í Reykjavík. Í dag er sýningardagur messunnar fyrir alla þá sem vilja fylgjast með.
Hvar? Harpa
Hvenær? Í dag milli kl. 10 og 17.
Jóga í vatni á sundlauganótt
Íslendingar vita vel hvað heita vatnið í laugunum gerir manni. Núna er sundlauganótt og frítt í sund í kvöld í
níu laugum á höfuðborgarsvæðinu. Ýmis dagskrá er í gangi. Í Laugardalslaug sér Arnbjörg Kristín Konráðsdótt-
ir um jóga í lauginni og DJ Frímann sér um tónlistina. Allar upplýsingar um dagskrá kvöldsins í laugunum eru
inn á vetrarhatid.is
Hvar? Níu laugar höfuðborgarsvæðis. Jóga í Laugardalnum.
Hvenær? Í kvöld milli kl. 18 og 23.
Hvað kostar? Ekki neitt.
Svavar Knútur
fagnar bjartari tíð
Söngvaskáldið geðþekka Svavar Knútur ætlar að syngja lög úr ýmsum
áttum, en þó aðallega úr eigin söngvabók, á tónleikum í kvöld. Hann lof-
ar notalegri kvöldstund.
Hvar? Rósenberg við Klapparstíg.
Hvenær? Í kvöld kl. 22.
Hvað kostar? 1500 kr. inn.
Dýragarður Ingu Elínar
Leirlistakonan Inga Elín hefur ekki
setið auðum höndum undanfar-
ið. Hún sýnir nýja kertastjaka þar
sem hún hefur leikið sér með ýmis
konar dýr unnin úr postulíni.
Hvar? Kaolin, Skólavörðustíg 22.
Hvenær? Í dag milli 15 og 17.
Hvað kostar? Allir velkomnir.
Tryggvagötu 15 · 101 Reykjavík · Opið 10-18 mán–fim · 11-18 fös og 13-17 um helgar · borgarsogusafn.is
Jóhanna Ólafsdóttir
Ljósmyndir / Photographs
28.1. – 14.5.2017
©
Jó
ha
nn
a
Ó
la
fsd
ót
tir
·
Ra
un
ve
ru
le
g
ísl
en
sk
g
le
ði
·
(B
ja
rn
i Þ
ór
ar
in
ss
on
o
g
Bi
rg
ir
An
dr
és
so
n)
·
Hö
nn
un
: H
G
M
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu og meltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
• Redasin bætir vellíðan hjarta- og
æðakerfis og stuðlar að lægra kólesteróli.
• Redasin Strong inniheldur Q10, rauð
hrísgrjónager, Fólínsýru, B12 og B6.
• Daglegur skammtur af Redasin Strong
er tvær töflur á dag.
Strong
www.birkiaska.is
Redasin
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.