Fréttatíminn - 04.02.2017, Blaðsíða 55
NOW er breið lína hágæða vítamína og
fæðubótarefna, án allra óæskilegra aukefna svo
sem litar-, bragð- og rotvarnarefna og ódýrra
uppfylliefna. NOW trúir því að náttúrulegar
afurðir séu betri en verksmiðjuframleiddar til að
styðja við góða heilsu og vellíðan.
Þessar gæðakröfur aðgreina NOW frá öðrum
vörumerkjum sem framleiða vítamin og
fæðubótarefni, því fá vörumerki geta státað sig
af jafn breiðu úrvali með jafn há gæði í hráefni
og framleiðslu.
NOW leitast við að nota lífrænt hráefni. Ef lífrænt
er ekki kostur þá gerir NOW miklar kröfur um að
hráefnið sé eins náttúrulegt og hægt er.
Stefna NOW
• Að framleiða gæða fæðubótarefni og vítamín
• Að framleiða virk fæðubótarefni og vítamín
• Náttúrulegt er betra
• Að bjóða hagstætt verð
• Að gefa til baka til umhverfis og samfélags
NOW er einn þekktasti og virtasti framleiðandi
vítamína og fæðubótarefna í heiminum. NOW
er einnig mjög þekkt fyrir þann einstaka metnað
sem fyrirtækið leggur í rannsóknir á virkni og
öryggi fæðubótarefnanna sem það framleiðir.
Rannsóknarstofa NOW er þekkt sem sú besta í
iðnaðinum og er öðrum mikil fyrirmynd.
Allar NOW vörur hafa GMP vottunina sem þýðir
að allt framleiðsluferlið er undir mjög ströngu
ytra og innra eftirliti.
Fæðubótarefni sem virka
Hjá NOW starfar fjöldi vísindamanna, næringar-
ráðgjafa, lækna og matvælafræðinga sem öll
hafa brennandi áhuga á að finna náttúrulegar
lausnir í vöruþróun og framleiðslu. Góð vísindi og
hámarksvirkni fæðubótarefnanna skiptir NOW
gríðarlega miklu máli.
NOW býður upp á fæðubótarefni sem eru einungis
búin til úr fæðu og við notum ávallt náttúrulega
formið af innihaldsefnum þegar hægt er að
koma því við.
NOW er leiðandi á sviði öryggisprófana í
fæðubótariðnaðinum. Þannig tryggir NOW að
uppgefin innihaldsefni séu í glasinu, í uppgefnum
styrk og haldist þannig innan þeirra tímamarka
sem við lofum neytanda.
Öflug innihaldsefni
Það sem gerir vítamínin og fæðubótarefnin frá
NOW svona virk, er staðfesta NOW í að nota
einungis hráefni í hæsta gæðaflokki. Þegar NOW
setur saman fæðubótarefnablöndu af einhverju
tagi, er leitast við að að þau standist gæðakröfur
NOW. Með því að gera magninnkaup á birgðum
er hægt að bjóða neytendum vöru á góðu verði
og í hæsta gæðaflokki.
NOW leggur mikla áherslu á að velja lífrænt
vottað hráefni. Sé þess ekki kostur er gengið úr
skugga um að hráefnið sé eins náttúrulegt og
virkt og hægt er. NOW notar hvorki geisluð né
erfðabreytt efni í framleiðslu sína.
Eftirlitsdeildir NOW skoða reglulega ræktun,
framleiðslu og verksmiðjur birgja sinna. NOW
vill tryggja að öryggi og virkni innihaldsefnanna
sé í lagi.
Náttúrulegar og hreinar vörur
NOW leggur áherslu á að framleiða eins náttúrulegar
og hreinar vörur og mögulegt er. Þessu náum
við með því að kaupa fersk innihaldsefni, geyma
þau við kjöraðstæður og nota háþróaða pökkunar-
tækni. Vörum okkar er pakkað þannig að umhverfis-
þættir eins og ljós, hiti, súrefni og raki ná ekki til
innihaldsins og valdi því ekki skemmdum. Þessir
þættir eru stærsta vandamálið þegar kemur að
niðurbroti innihaldsefna.
Náttúrleg sætuefni
NOW notar náttúruleg sætuefni eins og xylitol,
stevíu og frúktósa (ávaxtasykur). NOW notar
ekki kemískt tilbúin sætuefni eins og sakkarín,
súkralósa eða aspartam - enda er öryggi þeirra
mjög umdeilt. Mörg fæðubótarefni, sérstaklega
íþróttafæðubótarefni, innihalda kemísk sætuefni,
jafnvel þau sem seld eru í heilsubúðum.
Lífrænt
Lífræn framleiðsluvara er sú náttúrulegasta
sem völ er á. Hvorki skordýraeitur, illgresis-
eða sveppaeyðir, né heldur erfðabreytt fræ eru
notuð við lífræna ræktun. NOW býður nú upp á
fjölbreytta vöru með lífrænu innihaldi og leitast
sífellt við að bæta framboðið.
Efni sem finnast ekki í vörum NOW
Það er mikilvægt að kynna sér innihaldslýsingar á
fæðubótarefnum og það er ekki síður mikilvægt
að átta sig á því hvaða efni eru ekki til staðar og
hvers vegna. Efni sem finnast ekki í vörum frá
NOW eru til dæmis: ál, bindiefni, efnasambönd
meðhöndluð með klór, flúor, erfðabreytt efni,
þungamálmar, hertar fitur og transfitur.
NOW tekur hugtakið „náttúrulegt” mjög alvarlega.
NOW hefur öryggi neytenda og gæði vöru ávallt
að leiðarljósi.
HÁGÆÐA VÍTAMÍN
OG FÆÐUBÓTAREFNI