Fréttatíminn - 04.02.2017, Blaðsíða 32
Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
ENDURNÝJUN
AÐVEITUÆÐAR 2017
Útboðsverkefnið felst í endurnýjun á um
7.120 metrum af DN200 ofanjarðarlögn úr
stáli sem er einangruð með steinull í álkápu.
Aðveituæðin verður endurnýjuð með DN300
stálpípu einangraðri með frauði í ø450 plas-
tkápu. Verktaki skal grafa skurð fyrir nýrri
aðveituæð, sanda og fylla yfir nýja aðveituæð,
fjarlægja eldri aðveituæð og ganga snyrtilega
frá yfirborði.
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgög-
num „VEV-2017-06- Þorlákshöfn endurnýjun
aðveituæðar 2017“ útgefinni af Veitum ohf. í
janúar 2017.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá
og með miðvikudeginum 1. febrúar 2017 á
vefsíðu Orkuveitunnar https://www.or.is/fjar-
mal/utbod#page-7016
Tilboð verða opnuð hjá Veitum, Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, þriðjudaginn 21. febrúar 2017
kl. 11:00.
VEV-2017-06 04.02.2017
ÞORLÁKSHÖFN
Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1
110 Reykjavík
516 600
veitur.is
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Ég verð 19 ára á þessu ári og er því komin með aldur til að keppa í fullorðinsf lokki, þar sem er miðað við nítj-
ánda aldursárið. Svo var ég líka
að keppa í fyrsta skipti í rúmt ár.
Síðasta árið var nefnilega enginn
annar keppandi á mínum aldri í
mínum þyngdarflokki og ég mátti
ekki keppa upp fyrir mig, fyrr en nú
þegar ég hef náð tilskildum aldri,“
segir hnefaleikakonan Margrét Guð-
rún Svavarsdóttir úr HFR (Hnefa-
leikafélagi Reykjaness) sem háði
sína fyrstu bardaga í fullorðins-
flokki kvenna á hnefaleikamótum
um síðustu helgi. Andstæðingarnir
voru eldri og reyndari hnefaleika-
konur, en Margrét gerði sér þó lítið
fyrir og sigraði þær báðar.
Margrét, sem hefur æft hnefa-
leika í fimm ár, hafði beðið spennt
eftir því að geta keppt á nýjan leik
og horfði öfundaraugum til æf-
ingafélaga sinna í Keflavík sem
fengu verðuga andstæðinga á hin-
um ýmsu mótum á meðan hún sat
heima og beið. „Þetta var svolítið
erfitt,“ viðurkennir hún. Það var
því kærkomið að komast aftur í hr-
inginn. Síðar í febrúar fer svo fram
Íslandsmeistaramót í hnefaleikum
þar sem hún fær að keppa aftur og
hlakkar mikið til.
Stelpur óhræddari við að prófa
Enn sem komið er eru fáar stelp-
ur að æfa hnefaleika hér á landi og
það heyrir til tíðinda að kvenkyns
Passaðu þig á Margréti,
hún er í boxi
Margrét Guðrún hefur æft hnefaleika í fimm ár,
en hún keppti í fyrsta sinn í flokki fullorðinna
um helgina og lagði þar eldri og reyndari
keppendur. Hún segir hnefaleika mjög
vinalega íþrótt en upplifir stundum að strákum
finnist þeim stafa ógn af henni. Fjölskyldan
spyr stundum hvort hún ætli ekki að fara að
hætta þessu, en þá bendir Margrét þeim á að
hnefaleikar séu ekki hættulegri en fótbolti.
keppendur hafi fengist í tvo bardaga
í sama aldurs- og þyngdarflokki,
líkt og gerðist um síðustu helgi. Að
sögn Margrétar eru vinsældirnar þó
alltaf að aukast og ungum stelpum
sem æfa hnefaleika í Keflavík hef-
ur fjölgað töluvert upp á síðkastið.
„Þetta fylgir svolítið auknum vin-
sældum annarra bardagaíþrótta
þar sem íslenskir bardagamenn,
eins og Gunnar Nelson, eru orðnir
frægir. Stelpur eru óhræddari við
að prófa og sjá að þetta er ekki eins
slæmt og þær héldu,“ útskýrir Mar-
grét.
„Ég er reyndar að keppa í allt
annarri íþrótt en Gunnar Nelson
en fólk spyr mig stundum hvort
ég ætli að taka við af honum. Það
er svipað eins og að spyrja bróður
minn, sem er að æfa fótbolta, hvort
hann ætli sér ekki að verða eins og
einhver körfuboltamaður. Þetta er
jafn ólíkt.“
Fær mikla útrás
Áður en Margrét byrjaði að æfa
hnefaleika, skömmu eftir ferm-
ingu, hafði hún æft fimleika í mörg
ár. Henni fannst sú íþrótt hins vegar
ekki nóg skemmtileg og ákvað því
að hætta.
„Yngri systkini mömmu höfðu
verið að æfa hnefaleika og fannst
það mjög gaman. Mig langaði að æfa
eitthvað ákvað að prófa þessa íþrótt
því mér þykja boltaíþróttir frekar
leiðinlegar. Ég festist strax alveg í
þessu, finnst þetta mjög skemmti-
legt og fæ mikla útrás.“
Margrét segir það hafa verið lítið
mál að skipta úr fimleikum yfir í
hnefaleika þó vissulega séu þessar
íþróttagreinar mjög ólíkar. „Fólk í
kringum mig var reyndar mjög
hissa. Ég var búin að vera lengi í
fimleikum og sundi og fólki fannst
skrýtið að ég færi yfir í hnefaleika.
Þessar íþróttir ganga reyndar mik-
ið út á styrk. Helsti munurinn er
að hnefaleikarnir eru einstaklings-
íþrótt en fimleikarnir hópíþrótt,
því ég var í hópfimleikum. Nú þarf
að stóla alveg á sjálfa mig til að ná
langt, en ekki aðra.“
Ekki að lemja mann og annan
Áhugi Margrétar á hnefaleikum hef-
ur lagst misvel í foreldra hennar,
en þau búa ekki saman. „Þetta eru
ólíkar fjölskyldur. Móðurfjölskyld-
an mín og fósturpabbi hafa ver-
ið mjög stuðningsrík og opin. Þau
eru bara ánægð með ég hafi fundið
íþrótt sem mér finnst skemmtileg.
Föðurfjölskyldan er aðeins lokaðri
fyrir hnefaleikunum. Ég hef ver-
ið spurð hvort ég ætli ekki að fara
að hætta þessu. Eins og þau séu
að vona að ég fari í eitthvað ann-
að sem er ekki eins hættulegt. Þá
bendi þeim á að fótbolti er ekkert
minna hættulegur. Fólk getur alveg
höfuðkúpubrotnað í fótboltaleik,
eins og dæmin sanna. Ég hef alla-
vega ekki brotnað í hnefaleikum.
Ég segist heldur ekki vilja eyðileggja
á mér fæturna, eins og margir fót-
boltamenn gera.“ Bardagakonan er
augljóslega með svörin á reiðum
höndum.
Það kom skólafélögum Margrétar
líka í opna skjöldu þegar hún byrj-
aði að æfa box á sínum tíma, aðeins
14 ára gömul – þá sérstaklega strák-
unum. „Þetta var svolítið sjokk fyr-
ir þá, að ég væri stelpa í boxi, sem
væri frekar hættulegt.
Margrét segist stundum verða
vör við að strákar og karlmenn séu
hálf hræddir við sig vegna þess að
hún æfir hnefaleika. „Stundum
verða þeir svolítið smeykir. Ég fæ
stundum að heyra: „Passaðu þig á
Margréti, hún er í boxi.“ En ég held
bara áfram með grínið og segist
berja alla sem ég sé,“ segir Margrét
og hlær. Hún tekur þó skýrt fram
að það megi ekki nota hnefana
að óþörfu fyrir utan æfingar eða
keppni. Geri það einhver fær sá
hinn sami ekki að halda áfram að
æfa. „Ég er ekkert að lemja mann
og annan niðri í bæ alla daga,“ segir
hún og skellir upp úr.
Fær marbletti og blóðnasir
Þrátt fyrir að hnefaleikarnir séu
einstaklingsíþrótt þá segir Margrét
félagsskapinn mjög þéttan og góð-
an. „Það myndast mjög góð tengsl,
bæði á milli fólks og félaga. Við sem
æfum í Keflavík förum stundum inn
í Hafnarfjörð og æfum með félaginu
þar, sem þekkist ekki mikið í öðr-
um íþróttagreinum. Það eru svo fá
hnefaleikafélög á Íslandi, ætli við
séum ekki fimm í allt. Það eru allir
vinir. Hnefaleikar eru mjög vinalegt
sport,“ segir hún og hlær.
Margrét meiðist reglulega þegar
hún er að berjast, en hún hefur þó
aldrei slasast illa. „Ég er yfirleitt
með nokkra marbletti á ýmsum
stöðum, sérstaklega á höndunum.
Eins og eftir mótin um helgina er
ég með marblettaflóð á upphand-
leggjunum. Maður getur fengið
glóðarauga öðru hverju en ég hef
reyndar verið svo heppin að sleppa
við það. Ég hef hins vegar stundum
fengið blóðnasir. Það er samt ekkert
hættulegt. Við erum með góm fyrir
tennurnar, hjálm og hanska, þannig
við ættum ekki að slasast meira en
að fá marbletti og blóðnasir.“
Verja fyrst, kýla svo
Aðspurð segist hún aldrei vera
vönkuð eftir æfingar, meðal annars
vegna þess hve hlífðarbúnaðurinn
er góður. „Þessi íþrótt er ekkert
hættulegri en margar aðrar. Það eru
samt margir sem halda að þetta sé
alveg svakalegt og að ég sé alltaf að
meiða mig, en það er ekki svoleið-
is. Við leggjum líka mesta áherslu á
vörn. Verja fyrst, kýla svo. Ef maður
getur ekki varið sig þá hefur maður
ekkert að gera með að kýla, segir
þjálfarinn minn.“
Margrét hefur ekki mikið spáð í
framtíðina í hnefaleikum en hana
langar að minnsta kosti að halda
áfram að æfa. Hún hefur aðeins
verið að keppa á erlendri grundu,
eins og í Danmörku og Grænlandi.
Ef henni gengur vel á Íslandsmótinu
nú í febrúar fær hún þátttöku-
rétt á Norðurlandamótinu í Dan-
mörku í apríl, sem er að sjálfsögðu
draumurinn.
Margrét er vön því að vera öll marin
og blá á handleggjunum en hún
segist heppin að hafa aldrei fengið
glóðarauga. Mynd | Hari
Verja fyrst, kýla svo. Ef
maður getur ekki varið
sig þá hefur maður ekkert
að gera með að kýla, segir
þjálfarinn minn.
32 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017