Fréttatíminn - 04.02.2017, Síða 10

Fréttatíminn - 04.02.2017, Síða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017 af íbúðarhúsnæði og setja regl- ur um uppkaup slíkra félaga. Mið- borgin á ekki bara að vera leikvöll- ur fyrir fjárfesta.“ Setur að manni kvíðahroll Ingibjörg segir að þessi spákaup- mennska hafi eðlilega haft áhrif á lífsskilyrði í miðbænum. „Þetta hefur áhrif á andrúms- loftið í bænum. Það var áður fólk í þessum húsum og sumt af því missti heimili sitt í hruninu.“ Ingibjörg flutti sjálf fasteignasölu sína í Kringluna en hún var í Kvos- inni þar til fyrir þremur árum síð- an. „Það stóð okkur fyrir þrifum hvað það var erfitt að fá bílastæði. Það hentaði ekki svona starfsemi.“ Hún segir að húsnæðismark- aðurinn sé að súpa seyðið að því að lítið hafi verið byggt á árunum eftir hrun. „Árið 2010 voru um 16000 fasteignaauglýsingar á leit- arvef mbl. Í dag eru þær um 6500. Framboðið hefur minnkað um 60 prósent og það er því seljenda- markaður. Það er slegist um hverja eftirsóknarverða eign sem er boðin til sölu á skikkanlegu verði.“ Hún undrast nýlega spá Arion- -banka um 35 prósent verðhækk- anir á húsnæði á þremur árum og segir þetta minna um margt á ástandið árið 2007, skömmu fyr- ir kollsteypuna, þegar starfsmenn bankanna voru daglegir gestir í fréttum til að spá fyrir um áfram- haldandi þenslu. „Það er verið að skapa væntingar um endalausar verðhækkanir sem taka ekkert mið af kaupgetu almennings. Það bara setur að manni kvíðahroll,“ segir Ingibjörg. M ið bæ r R ey kj av ík ur Se ltj ar na rn es Sj ál an d, G ar ða bæ r M el ar o g H ag ar , R ey kj av ík Lö nd , R ey kj av ík Te ig ar o g Tú n, R ey kj av ík H líð ar , R ey kj av ík G ar ða bæ r, an na ð G ra nd ar , R ey kj av ík Vo ga r, Re yk ja ví k Ak ra r, G ar ða bæ r Sm ár ar , K óp av og ur N or ða n Kó pa vo gs læ kj ar , K óp Sa lir , K óp av og ur H ei m ar , R ey kj av ík M os fe lls bæ r Ás , H af na rf jö rð ur Ve lli r, H af na rf jö rð ur Li nd ir, K óp av og ur G ra fa rh ol t, Re yk ja ví k Ri m ar , R ey kj av ík Va tn se nd ah æ ð, K óp . Bo rg ir, R ey kj av ík Be rg , H af na rf jö rð ur En gi , R ey kj av ík Fo ld ir, R ey kj av ík Br ei ðh ol t á n Se lja hv er fis H áa le iti sb ra ut , R ey kj av ík H ra un bæ r, Re yk ja ví k Ví ku r, Re yk ja ví k H ra un , H af na rf jö rð ur Se l, Re yk ja ví k Ál fa sk ei ð, H af na rf jö rð ur H ús , R ey kj av ík Va ng ur , H af na rf jö rð ur 500 450 400 350 300 250 200 Meðalfermetraverð á höfuðborgarsvæðinu fyrstu 9 mánuði 2016 -þ.kr., óháð öðrum áhrifaþáttum verðs Flúin úr miðborginni Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Ís- lands, hefur gert upp gullfallegt hús við Ingólfs- stræti á síðustu 20 árum. Hún hefur verið ein þeirra sem hefur gagnrýnt þróun miðborgarinnar harðlega og skrifaði pistil sem birtist í Morgun- blaðinu árið 2007, og vakti mikla athygli. Athygli vekur að Fríða Björk fluttist í einbýlishús í Garða- bænum fyrr í vikunni. Úr greininni, Gönguferð um hverfið mitt Vegna þess hvar ég bý hef ég vanist tilhugsuninni um það að dópsali noti tröppurnar hjá mér (bakatil í afgirtum garði) til að selja vöru sína. Ég heyrði í sölumanninum fyrir utan gluggann minn, í u.þ.b. metra fjarlægð og lét sem ekkert væri til að baka mér ekki vandræði. Mér fannst einna helst forvitnilegt hvert gangverðið á gramminu væri. Ég kippi mér ekki upp við það þótt fólk kasti af sér vatni yfir blómabeðin mín því rigningin skolar því í burtu. Varð reyndar um að sjá virðulega jafnöldru mína ganga örna sinna í garðinum hjá mér á meðan vinkona hennar stóð hjá til að halda á veskinu hennar. En ég tíni upp sprautunálar, bjórdósir, glös, smokka, sígarettustubba, matarleifar, bréfarusl og fleira af lóðinni eins og ekkert sé – spúla ælupollana í burtu. Ég er orðin svo sjóuð að ég lít varla undan við inn- kaupin á laugardagsmorgnum þegar ég sé fuglana gogga í álíka ókræsilega polla á götunum. Ég hef vaknað við stunur velklæddrar konu sem braust inn í geymsluna mína og dó þar ölvunardauða, og skemmt mér yfir tilhugsuninni um það hvernig upplitið á henni hafi verið þegar lögreglan skilaði handtösk- unni sem hún gleymdi daginn eftir. Mér finnst eðlilegt að læsa hliðinu að garðinum mínum og álasa sjálfri mér fyrir að hafa ekki endurnýjað lásinn eftir að hann bilaði. Reiði bærði þó á sér þegar dimitterandi menntaskólanemar spörkuðu þannig í nýmálaðar þakrennurnar á mínu virðulega hundrað ára gamla húsi að þær eru ónýtar. Sömuleiðis varð ég ill – og reyndar líka skelkuð – þegar ég stóð í eldhúsinu um miðnæturbilið og horfði í vantrú á hóp jakka- fataklæddra manna taka upp kústskaft fyrir utan og hlaupa af stað með það rétt eins og um burtreiðar á tímum Hróa hattar væri að ræða og reka síðan í gegnum rúðuna á borðstofunni minni. Sem var reyndar líka hundrað ára gömul og úr rándýru handblásnu gleri. Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 2007. Fríða Björk Ingvars- dóttir sat á árum áður í stjórn Miðborgarsam- takanna. Hún er nú flutt í Garðabæ. Halldór Bragason tónlistarmaður tók þessa mynd 2015 af rútu sem var næstum því farin inn um eldhúsgluggann hjá honum í Þingholtunum. Núna mega einungis smárútur fara um viðkvæmustu íbúabyggðina en íbúar segja þær skapa mikið ónæði á öllum tímum sólarhringsins. Jakob Frímann starfar fyrir Mið- borgina okkar, en Bílastæðasjóður hefur stutt við bakið á henni. Sömu sögu er ekki að segja af Íbúasamtökunum sem fá 200 þúsund krónur í styrk á ári. Björn Blöndal borgarfulltrúi hefur verið í forsvari fyrir sérstakt samráð um miðborgina sem borgaryfirvöld áforma að hleypa af stokkunum. „Miðborgin er auðvitað mjög lifandi svæði, en staðreyndin er sú að við fáum fleiri kvart- anir vegna rútubíla en skemmtistaða.“ Auglýst eftir verkefnastjóra Eitt af því sem gamalgrónir íbú- ar gagnrýna er að málefni mið- borgarinnar séu nær einungis rædd á forsendum kaupmanna og eigenda skemmtistaða. Þannig hafi skrifstofan Miðborgin okkar ver- ið stofnuð til að gæta hagsmuna þeirra. Hún hefur fram til þess Heimild: Þjóðskrá Íslands, Greiningardeild Arion banka VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.