Fréttatíminn - 04.02.2017, Qupperneq 20

Fréttatíminn - 04.02.2017, Qupperneq 20
Opinn fundur í Borgartúni 19 7. febrúar kl. 8.30–10.00 Hver er staða jafnréttis- og kynjamála í auglýsingageiranum? Hvaða máli skiptir kynjajafnvægi við mótun markaðsskilaboða? Fram koma Þorsteinn Víglundsson Elín Helga Sveinbjörnsdóttir Birna Einarsdóttir Dóra Ísleifsdóttir Kristinn G. Bjarnason Ragnar Gunnarsson Selma Rut Þorsteinsdóttir Fundarstjóri er Elísabet Sveinsdóttir Húsið opnað kl. 8 – morgunverður í boði Arion banka. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Skráning á www.imark.is 20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017 leiðandi stöðu í flestum löndum norðvestanverðrar Evrópu og tóku til við móta samfélögin út frá hags- munum hinna vinnandi stétta. Al- menn velsæld varð markmið stjórn- valda, aukinn jöfnuður og full atvinna, uppbygging mennta- og heilbrigðiskerfis fyrir alla og aukin réttindi undirsettra hópa. Í stríðinu eyddist upp mikill auður og auð- stéttirnar höfðu því ekki sömu tök á samfélaginu og áður, voru varnar- lausari í stéttastríðinu. Seinni bylgja mannúðar Í stríðslok tóku bandarískir blaða- menn myndirnar úr útrýmingar- búðunum og báru þær saman við myndir sem teknar höfðu verið á geðvekrahælum í Bandaríkjunum. Líkindin voru sláandi. Og þessi samanburður hratt af stað mann- úðarbylgju í meðferð og umönnun geðsjúkra, þroskaheftra og annarra sjúklinga sem áður höfðu í raun lifað utan samfélagsins. Og þessi mannúðarbylgja (misskilningurinn um að stríðið hafi snúist um mann- úð og að hið góða hafi unnið) hratt líka af stað mannréttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum, annarri bylgju kvenfrelsisbaráttunnar og réttindabaráttu fjölda annarra kúg- aðra hópa. Segja má að toppurinn á þeirri baráttu hafi verið þegar Lyndon B. Johnson hélt ræðu við skólaslit í Ann Arbor 1964 og hélt því fram að einu gildu rökin fyrir að halda saman skipulögðu samfélagi mill- um okkar væru þau að rétta við aðstöðumun sem fólk byggi við og bæri ekki ábyrgð á. Mannúðar- hyggja var orðin að þungamiðju stjórnmálanna og réttlæting stjórn- kerfisins. Samfélag fyrir hina veiku En þessi hugmynd sem Johnson hampaði í Ann Arbor varð ekki lang- líf. Okkur er gjarnt að horfa til sjö- unda áratugarins sem kveikju sam- félagslegra umbóta en það má allt eins líta á þennan áratug sem enda- lok mannúðarbylgjunnar. Þrátt fyr- ir að Johnson gæfi kröfum um rót- tækar samfélagslegar breytingar undir fótinn þá varð sú stefna á endanum ofan á að mæta mótmæl- um og kröfugerð af hörku. Ronald Reagan, fylkisstjóri í Kaliforníu, naut hylli fyrir að siga þjóðvarðliðinu á hippana í San Francisco. Hipparnir misstu líka trú á pólitíska þátttöku og að samfélagslegar breytingar gætu bætt líf okkar; þeir urðu æ sjálfhverfari og enduðu flestir í inn- hverfum pælingum og sjálfsdekri; það varð almennt viðhorf að besta leiðin til að breyta samfélaginu væri að breyta sjálfum sér. Endurkoma félagslegs-Darwinima Í efnahagsþrengingum í kjölfar olíukreppunnar skapaðist jarð- vegur fyrir endurkomu hins fé- lagslega Darwinsisma á Vestur- löndum. Stjórnmálamenn skýrðu lakari lífskjör með of miklum völd- um verkalýðsfélaga, of miklum réttindum minnihlutahópa og of mikilli efnahagslegri aðstoð við þá sem voru illa settir fjárvhagslega. Erfiðleikar vestræns hagkerfis voru útskýrðir sem afleiðing þess að Vesturlönd hefðu brotið gegn hin- um sönnu lögmálum mannfélags- ins með því að halda um of aftur af hinum sterku og dugmiklu. Því var haldið fram að ríkisvaldið gæti ekki bætt samfélagið með aðgerðum til tekjujöfnunar og réttarverndar al- mennings; heldur væri ríkisvaldið þvert á móti vandamálið sjálft. Það hefði tilhneigingu til að styðja hina veiku, verðleikalitlu og duglausu en standa í vegi fyrir hinum ríku, verð- leikamiklu og framtakssömu. Af leiðingar ol íukreppunn- ar vörðu nógu lengi til að þessi sjónarmið, ættuð úr félagslegum Darwinisma, höfðu afgerandi áhrif á stefnu hægri flokka víða á Vestur- löndum. Með kosningasigrum Mar- grétar Thacher í Bretlandi 1979 og Ronalds Reagan í Bandaríkjunum 1980 varð félagslegur Darwinssimi aftur ríkjandi stjórnmálastefna í voldugum ríkjum eftir hálfrar aldar hlé. Það hafði síðan mótandi áhrif á stjórnmálalíf allra Vesturlanda næstu þrjá áratugina. Margret Thatcher og Ronald Reagan leiddu nýja bylgju félagslegs Darwinisma sem leiddi til hruns millistéttarinnar og síðar hruns efnahags og skildi flestar stofnanir samfélagsins eftir í djúpri kreppu. Hinir ríku urðu ríkari Afleiðingarnar þekkjum við. Stefn- an leiddi til aukinnar misskiptingar auðs og valda á Vesturlöndum og niðurbrots þeirra samfélagslegu gilda, sem höfðu verið ríkjandi frá stríðslokum. Áratugina eftir kosn- ingasigra ný-félagslegs-Darwinista í Bretlandi og Bandaríkjunum hneigðist lagasetning á Vesturlönd- um að lækkandi sköttum, auknu svigrúmi og réttindum til handa fyrirtækjum og auðugu fólki. Þar sem stefnan byggði á trúarsetn- ingum um náttúruvilja óbeislaðs markaðar studdi hún fólk því meir sem það var auðugra — ofurauðugt fólk hlaut að búa yfir ofurverðleik- um. Og stefnan studdi fyrirtæki því meir sem þau voru stærri og öflugri. Þessi stefna var því ekki, fremur en eldri mynd félagslegs Darwins- isma, hefðbundin borgaraleg frjáls- hyggja. Hún vildi ekki styðja alla jafnt til að finna atorku sinni farveg, heldur lagðist hún á sveif með þeim sem þegar voru voldugir og auðugir svo þeir mættu auka enn völd sín, umfang og auð. Stefnan stækkaði því stærstu fyrirtæki og gaf þeim ógnarvald yfir efnahagslífinu svo fátt gat sprottið í skugga þeirra. Að sama skapi urðu hinir ofurríku enn ríkari og báru enn minni skyldur gagnvart samfélagi hinna fátækari og valdaminni. Félagslegi-Darwinisminn leysti að mestu upp millistéttina; gerði lít- inn hlut hennar að þjónum hinna ofsaríku en þrýsti hinum niður í lágstétt. Millistéttin tapaði sam- félagslegu hlutverki sínu. Það var ekki lengur virðingarvert að til- heyra millistétt. Eins og allir aðr- ir vildi millistéttarfólkið vinna sig upp úr sinni stétt og komast í hóp hinna ofsaríku. Samfélögin skiptu- st í þá sem áttu og þá sem áttu ekki. Og það voru æ færri sem áttu eitt- hvað að ráði. Og þeir fáu sem áttu eitthvað áttu mikið og sífellt meira. Meginþorri fólk átti sáralítið meira en skuldirnar. Að því leyti varð sí- fellt minni munur á millistéttinni og lágstéttinni. Hann fólst helst í því að þeir sem tilheyrðu millistétt fengu að skulda meira. Ójöfnuður drepur samfélög Eins og sést á línuritinu sem sýn- ir bylgjuhreyfingar sögunnar frá 1800 til 2000 urðu straumhvörf við kjör Ronalds Reagan. Eftir það eykst ójöfnuður í Bandaríkjun- um og í kjölfar þess hrörnar almenn velsæld, hvernig sem hún er mæld. Hlutfall launa af heildartekjum sam- félagsins minnka, þátttaka almenn- ings í frjálsum félagasamtökum minnka, heilsufar versnar, lífslík- ur hætta að vaxa og dragast saman meðal hinna verst settu og bjartsýni og traust leysist upp. Um síðustu aldamót skerast þess- ar línur, ójöfnuðurinn og velsældin, og ójöfnuðurinn nær yfirhöndinni svipað og gerðist í uppgangi banda- rískrar þjóðernishyggju um miðja þar síðustu öld. Síðan þá hafa flestir mælikvarðar um almenna velsæld versnað og ójöfnuður enn aukist, þótt mikið af auði hafi brunnið upp í Hruninu. Það eru þessar aðstæður sem Pet- er Turchin segir að séu uppskrift af borgarastyrjöld. Aukinn ójöfnuð- ur kallar á kröfu um aukið réttlæti. Niðurbrot samfélagslegra gildi bein- ir þeirri kröfu út fyrir hefðbundna farvegi samfélagsins, fólk hefur misst trú á þeim. Með æ auknum auði á æ færri hendur þrengist að- koma annarra að elítu samfélagsins, sá hópur fer stækkandi sem telur sig eiga kröfu á að tilheyra eilítunni eða njóta sömu kjara og valda og hún en er haldið frá slíku. Ekki aftur snúið Turchin talar eins og ekki sé aftur snúið. Þessar undirliggjandi bylgju- hreyfingar sögunnar séu svo sterkar að það verði illa við þær ráðið. Það er líklega orðið of seint að koma í veg fyrir borgarastyrjöld í Banda- ríkjunum nú. Kjör Donalds Trump og harðlínustefna hans sem kynd- ir undir andúð gegn jaðarhópum og afnámi borgaralegra réttinda þeirra er upptaktur í enn meiri upplausn og sundrung. Loforð Trump um stór- felldar skattalækkanir til fyrirtækja og hinna auðugu mun fylkja hinum valdamiklu og ríku að baki honum. Þótt Trump segist ætla að vinna fyrir fólkið hefur hann skipað svo til ein- vörðungu moldríka, gamla, hvíta karla í ríkisstjórn sína. Þetta eru svipaðar vendingar og eftir hrunið 1929, þá fylkti stór hluti auðmanna sér um fasistana og hugmynda- grundvöllinn að baki fasismanum. Borgarastríðið í Bandaríkjunum á nítjándu öld eyddi ekki upp auði með sama hætti og seinni heims- styrjöldin gerði. Í kjölfar hennar kom því ekki tímabil aukins jöfnuð- ar og mannúðar eins og eftir seinni heimsstyrjöld heldur þvert á móti. Og eins og staðan horfir í dag, bendir flest til að auðvaldið sé frem- ur að mynda bandalag með nýfas- istum en leifum hinna sósíalísku flokka. Margir hægri flokkar hafa tekið upp stefnu nýfasistanna í ýms- um málum og fjarlægst enn frekar sósíaldemókrata. Víðast liggur því stefnan í átt að meiri sundrung, auknum ójöfnuði og veikara sam- félagi. Peter Turchin myndi ekki segja að það væri spá eða óljós tilfinningin, heldur einföld sannindi sem lesa má úr hinum stóru bylgjum sem sagan líður eftir. Það er heimsendir í nánd. Aftur. Donald Trump bauð sig fram sem fulltrúa fólksins en skip- aði svo til eintóma auðkýfinga í ríkisstjórn sína. Hann sækir hug- myndafræðilegan grunn sinn til bandarískrar þjóðernishyggju frá því í aðdraganda borgarastyrj- aldarinnar um miðja nítjándu öld, ávarpar almenning beint eins og fasistar millistríðsáranna og lofar því að sniðganga helstu stofnanir samfélagsins. Útrýmingarbúðir nasismans afhjúpuðu andmannúð mannkynsbóta og þeirra kenninga um að meginhlut- verk samfélagsins ætti að vera að styðja hina sterku en halda niðri hinum veiku, helst að eyða þeim. Ekki spyrja hvað samfélagið getur gert fyrir þig, spurðu hvað þú getur gert fyrir samfélagið? var slagorð John F. Kennedy á hápunkti mannúðar- og samstöðutímabilsins eftir stríð. Fólk trúði almennt á samfélagsleg gildi. Lyndon B. John- son sagði það einu réttlætingu þess að halda uppi skipulögðu mannfélagi að bæta aðstöðu- mun sem fólk byggi við en ætti ekki sök á sjálft. Mannúðarbarátta eftirstríðsár- anna og kröfur um félagslegar úrbætur fjöruðu út á síð-hippaár- unum. Fólk missti trú á félagsleg- um úrbótum og sú kenning naut fylgis að til einskis væri að berj- ast fyrir breyttu samfélagi heldur gæti fólk aðeins breytt sjálfu sér. Ef allir breyttu sjálfum sér til hins betra myndi betra samfélag rísa upp á millum okkar. Þetta var eins og upptaktur að nýfrjáls- hyggjunni, sem trúði að ef hver berðist fyrir sínum einkahags- munum myndi gott samfélag rísa upp af þeim eigingjörnu hvötum. Ronald Reagan sigaði þjóðvarð- liðinu á hippanna sem fylkis- stjóri og hafði litla trú á að það gagnaðist að hjálpa hinum veiku. Hann vildi styðja þá sterku. Síðustu þrír áratugir hafa ein- kennst af meiri skuldsetningu millistéttarinnar fremur en bætt- um launakjörum. Við Hrunið afhjúpaðist að millistéttin hafði í raun sömu stöðu og lágstéttin; átti ekkert nema skuldirnar. Almenn mótmæli eftir Hrun hafa sameinað fólk um hvað það vill ekki en það hefur ekki sameinast um hvað það vill heldur.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.