Fréttatíminn - 04.02.2017, Side 28
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Kamilla Ingibergsdóttir er stödd við Atitlan-vatnið í Gvatemala. Eldfjöll umlykja flennistórt vatnið sem
Maya-indíánar trúðu að væri heil-
agt hlið dauðlegra manna til guð-
anna. Í hundruð ára hefur staður-
inn laðað til sín fólk og í hlíðum
eldfjallanna hefur fjölbreyttur
hópur aðkomufólks komið sér fyr-
ir í þorpunum meðal innfæddra
innan um banana- avókadó- og
kakótré. Í San Marcos, einu af
stærri þorpunum, er hægt að finna
næstum allt sem leitandi hugur
girnist og segir Kamilla stemn-
inguna vera afslappaða og hippa-
lega, þarna séu allskonar skrítnar
og skemmtilegar skrúfur og nóg
um að vera fyrir fólk með opinn
huga í leit að ævintýrum.
Galdraseiður Maya-indíána
Eitt af því sem hægt er að nálgast
á þessum stað eru kakó-athafn-
ir en kakó hefur alltaf verið talin
fæða guðanna í menningu Maya-
-indíána.
Alla þeirra tíð hafa baunir kókó-
ávaxtarins hafa verið þurrkaðar,
ristaðar og geymdar til að brugga
heitt súkkulaði, eða kakó. Kakó
Mayanna á ekki mikið skylt við
það kakó sem flestir þekkja í dag,
enda blandað úr óunnu kakói og
hvorki blandað með mjólk né sykri
heldur við vatn og stundum aðr-
ar jurtir. En kakóið er ekki bara
fæða í menningu Mayanna heldur
magnaður seiður sem á að hjálpa
mönnum að tengjast sjálfum sér
og jafnvel einhverju fleira. Á þess-
um slóðum hefur kakóið alltaf ver-
ið notað við trúarlegar athafnir og
hverskyns hátíðlegar athafnir og
er það ennþá svo í dag.
Upphaf áhuga síns á kakói segir
Kamilla mega rekja til algjörrar
kulnunar í starfi sem fékk hana til
að endurskilgreina sjálfa sig. Eftir
að hafa sett vinnuna í fyrsta sæti
Kynnir
sér fæðu
guðanna í
Gvatemala
„Ég hef alltaf verið mjög
heilbrigð og með mikið
jafnvægi í lífinu en ég
týndi því þegar allt fór að
snúast um vinnuna.“
Kamilla Ingibergsdóttir er stödd í Gvatemala
þar sem hún byggir sig upp eftir algjöra kulnun
í starfi. Það gerir hún með því að drekka kakó
og kynna sér hina heilögu kakóbaun og þá
ævafornu menningu sem umlykur hana.
í mörg ár ákvað hún að tími væri
kominn til að líta inn á við. „Í dag
spyr ég mig alltaf einnar spurn-
ingar áður en ég geri nokkurn
skapaðan hlut í lífinu; veitir þetta
mér gleði? Ef svarið er nei, þá
sleppi ég því,“ segir Kamilla og
skellihlær í símtólið. Hún hefur
komið sér vel fyrir á veröndinni
við kofann þar sem hún býr, með
útsýni yfir Aititlan-vatnið, að sjálf-
sögðu með kakóbolla í hendi.
Súperfæða sem opnar hjartað
„Fyrr á öldum var kakóbaun-
in notuð sem gjaldmiðill og hér
er borin ótrúleg virðing fyrir
kakói, súkkulaði og öllu sem
tengist henni,“ segir Kamilla.
„Þetta kakó sem ég drekk og
sem við notum í athöfnun-
um er auðvitað ekki á sömu
plánetu og Nesquick, þetta
er tvennt algjörlega ólíkt.“
Kamilla bruggar sitt eigið
kakó á hverjum degi, sem
hún segir vera einstakt.
Bragðið af kakóinu sé
rammara en við eigum að
venjast því hún noti engan
sykur en stundum blandi
hún engifer saman við. Í
kakóathöfnum er chili oft bland-
að saman við því það á að magna
áhrif kakóbaunarinnar upp.
Kamilla segir áhrifin af blöndunni
vera örvandi en samt ekki minna
neitt á kaffi, og á sama tíma verði
einbeitingin miklu sterkari. Hún
hafi til að mynda náð að hugleiða
hátt í þrjá tíma eftir einn kakó-
bolla.
„Þegar blaut kakóbaunin er
möluð verður hún dálítið eins og
súkkulaðimauk sem er svo sett í
poka og vakúmpakkað þar sem
það harðnar og verður eins og
klump ur. Svo sker maður lít-
inn bita af klumpnum og bræðir
hann saman við soðið vatn. Þetta
er algjör súperfæða, stútfull af
magnesíum sem er vöðvaslak-
andi, en á sama tíma veldur efnið
theobromin því að hjartsláttur-
inn eykst og blóðflæði til heilans,
þess vegna nota margir þetta við
skapandi störf. Svo er líka an-
andamide í kakói sem er efnið
sem heilinn framleiðir þegar við
erum glöð. Þannig að það er mjög
falleg tenging á milli kakósins og
hjartans og vellíðunar. Ekki nóg
með að kakóið opni hjartað og
sé örvandi þá hreinsar það líka
kransæðarnar við hjartað og lækk-
ar blóðþrýsting. Það er auðvitað
til fullt af rannsóknum sem sýna
hvað súkkulaði er gott fyrir heils-
una, sérstaklega hjartað.“
Súkkulaði-shamaninn
Kamilla fór í sína fyrstu
kakóathöfn í Reykjavík síðastliðið
vor og heillaðist upp úr skónum.
Hún ákvað að elta baunina uppi,
fara til heimkynna hennar og
kynnast hennar ævafornu menn-
ingu og manninum sem vinnur
við að breiða hana út, bandaríska
grasalækninum Kieth Wilon,
betur þekktur sem súkkulaðis-
hamaninn. Kieth þessi er eins og
hálfgerð rokkstjarna í San Marcos.
Áður en hann ákvað að setjast
þar að fyrir fimmtán árum bjó
hann í Pennsilvaníu og vann við
grasalækningar. Hann ferðaðist
mikið vegna áhuga síns á plöntum
og áhrifum þeirra og eitt þessara
ferðalaga leiddi hann að Atitilan-
-vatni. Þar kynntist hann ævaforn-
um kakóathöfnum og ákvað að
„Ég er frekar mikið „no bullshit“ kona, raunsæ og jarðbundinn en ég leyfi mér samt líka að vera með opinn huga og
fljúga hátt,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir. Eftir að hafa keyrt sig út í vinnu við íslenska tónlistarbransann í tíu ár fór hún í
„burnout“ – eða kulnun – og breytti lífi sínu í kjölfarið.
Orðið
yfir
fæðu
guðanna,
„kakawa“ eða
cacao, kemur
fyrst fyrir í rit-
máli á landsvæði
Mayanna í Mið-Ameríku, í Mexíkó og
Gvatemala, um 1000 fyrir Krist. Orðið
„chocolate“ er samsett úr mexíkósku
indíánamáli; „choco“ þýðir froða,
og „atl“ þýðir vatn, en í upphafi var
súkkulaðis aðeins neytt í drykkjar-
formi
„Þetta kakó sem ég drekk og sem við
notum í athöfnunum er auðvitað ekki
á sömu plánetu og Nesquick, þetta er
tvennt algjörlega ólíkt.“
Levi’s Kringlunni - Levi’s Smáralind - Levi’s Glerártorgi
501 SKINNY
Kr. 13.990
28 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017