Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2018, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 14.04.2018, Qupperneq 12
VELFERÐARMÁL „Það er alltaf hægt að ræða það hvort gera megi betur í þjónustu við börn. Okkur finnst gríðarlega mikilvægt að umræðan sé byggð á staðreyndum en ekki dylgj- um,“ segir Heiða Björg Pálmadóttir, starfandi forstjóri Barnaverndar- stofu, um opið bréf Jóhannesar Kr. Kristjánssonar fjölmiðlamanns til Halldórs Haukssonar, sviðsstjóra meðferðar- og fóstursviðs Barna- verndarstofu. Bréfið birtist í Frétta- blaðinu í fyrradag. Heiða Björg segir það algjör- lega óásættanlegt að ákveðnir ein- staklingar séu ranglega dregnir til ábyrgðar fyrir ákvarðanir sem eru teknar af stjórnvöldum, eins og gert sé í þessari grein. „Halldór er maður sem ég þekki og treysti og er gríðarlega faglegur og vandaður. Allar ákvarðanir um þróun meðferðarstarfs stofunnar eru teknar og eru á ábyrgð forstjóra Barnaverndarstofu en ekki ákveð- inna starfsmanna,“ segir Heiða Björg. Allar ákvarðanir séu teknar út frá faglegri þekkingu og því fjár- magni sem Barnaverndarstofa hefur milli handanna. Í grein sinni vísar Jóhannes til þess að meðferðarheimilum barna víðsvegar um landið hafi verið lokað. „Á sama tíma hefur þú lagt alla þína krafta í MST-meðferðar- kerfið,“ segir Jóhannes og bendir jafnframt á að MST-meðferðarkerfið sé í eigu bandarísks fyrirtækis sem Barnaverndarstofa greiði þóknanir fyrir að nota. Heiða Björg segir að MST-kerfið hafi valdið byltingu í meðferðar- starfi á Íslandi og sé gagnreynt úrræði frá Bandaríkjunum. Barna- verndarstofa hafi tölur sem sýni fram á árangur þess í meðferðarstarfi hér á landi. „Gjaldið felur ekki síst í sér þjónustu. Það er ráðgjöf og eftir- lit með framkvæmd meðferðarinnar frá erlendum sérfræðingum sem koma einnig reglulega til Íslands til þess að viðhalda og þjálfa nýja færni starfsfólks, sem rannsóknir hafa sýnt að virki. Þetta er allt gert til þess að tryggja gæði þeirrar þjónustu sem verið er að veita,“ segir Heiða. Hún bendir líka á að með þessu úrræði sé hægt að þjónusta upp undir 100 unglinga á ári á heimilum þeirra alls staðar á landinu. Kostnað- urinn við það sé svipaður og kostn- aðurinn við eitt meðferðarheimili þar sem eru sex rými, sem þýði að hægt sé að þjónusta á bilinu sex til tólf unglinga á ári. „Þessi ákvörðun um innleiðslu á MST var tekin áður en núverandi sviðsstjóri meðferðar- og fóstursviðs hóf störf hérna og reyndar áður en það svið varð til. Ástæðan fyrir því að við lokum meðferðarheimilum er að við höfum verið með þau hálftóm eða tóm mánuðum og árum saman,“ segir Heiða Björg og bætir við að í dag séu laus pláss á langtímameð- ferðarheimilum Barnaverndarstofu. Jóhannes segir líka í grein sinni að MST-kerfið virki ekki fyrir börn sem eru komin í lífshættulega neyslu fíkniefna. „Auðvitað er það þannig að það er ekkert eitt sem gagnast öllum. Þess vegna hefur það aldrei verið stefna Barnaverndarstofu að loka öllum meðferðarheimilum. Heldur hefur MST þvert á móti sýnt fram á þörfina á öflugri sérhæfðari meðferð með vistun. Við höfum verið að þróa meðferðarstarfið okkar áfram á þeim meðferðarheim- ilum sem eru til. Við höfum verið að taka inn meiri sérfræðivinnu og svo höfum við frá 2011 bent á þörfina á nýju meðferðarheimili á höfuð- borgarsvæðinu,“ segir Heiða Björg og bendir á mikilvægi þess að með- ferðarvinna byggist á margvíslegum úrræðum. Jóhannes bendir á að til sé mynd- band af börnum á einu meðferðar- heimila Barnaverndarstofu sem sýni þau sniffa gas „í helgarleyfi í sumar- bústað með starfsmönnum með- ferðarheimilisins“. Hann spyr hvers vegna barnaverndarnefndir þessara barna hafi ekki verið upplýstar. „Ég stend nú í þeirri meiningu að það hafi verið gert,“ segir Heiða Björg og tekur jafnframt fram að starfsmenn meðferðarheimilisins hafi alls ekki verið viðstaddir þegar börnin voru að sniffa. „Það eru til hér skrifleg fyrir- mæli til meðferðarheimilisins um að láta barnaverndarnefndir við- komandi barna vita,“ segir Heiða Björg. Barnaverndarstofa hafi enga ástæðu til að ætla að það hafi ekki verið gert. „En við erum að elta alla þræði uppi í því máli,“ segir Heiða Björg. Hún segir að málið hafi komið upp 2014 og svo hafi til- vist myndbandsins uppgötvast ári seinna. „Þá er farið í sérstaka skoðun á málinu og það liggur fyrir ítarleg greinargerð um það. Velferðarráðu- neytið var upplýst um þá vinnu og að ákveðnir verkferlar hefðu verið uppfærðir í framhaldinu.“ Heiða ætlar að tjá sig ítarlegar um málið í opnu bréfi til Jóhannesar sem birtist í Fréttablaðinu í næstu viku. jonhakon@frettabladid.is Segir mikilvægt að byggja ekki á dylgjum Forstjóri Barnaverndarstofu segir óásættanlegt að einstakir starfsmenn stofunn- ar séu ranglega dregnir til ábyrgðar fyrir ákvarðanir stjórnvalda. Barnaverndar- nefndir hafa verið upplýstar um að börn á meðferðarheimili hafi verið að sniffa. Fjölmiðlamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson lýsti óánægju sinni með starf Barnaverndarstofu í opnu bréfi í Fréttablaðinu. Auglýsing um kosningu til kirkjuþings og framlagningu kjörskrár Með vísan til 12. gr. starfsreglna um kjör til kirkjuþings, nr. 1075/2017 tilkynnir kjörstjórn þjóðkirkjunnar að kosning til kirkjuþings fer fram frá kl. 12:00 hinn 2. maí 2018 til kl. 12:00 hinn 7. maí s.á. Kosningin verður rafræn. Á kirkjuþingi eiga sæti 29 þjóðkirkjumenn kjörnir til fjögurra ára í senn. Eru 12 þeirra úr hópi vígðra manna, þ.e. presta og djákna og 17 leikmenn. Upplýsingar um frambjóðendur til kirkjuþings er hægt að nálgast á vefsíðu kirkjunnar kirkjan.is, eða á biskupsstofu. Kjörstjórn hefur, á grundvelli 9. gr. fyrrgreindra starfsreglna, samið kjörskrá vegna kosninga til kirkjuþings. Á kjörskrá eru þeir sem uppfylltu skilyrði kosningarréttar hinn 1. apríl 2018, sbr. 6. gr. starfs­ reglnanna. Kjósandi getur kannað á þar til gerðu vefsetri hvort nafn hans sé á kjörskrá. Við aðgang að vefsetrinu er notuð almenn innskráningar­ þjónusta sem kjörstjórn ákveður, s.s. rafræn skilríki eða Íslykill Þjóðskrár Íslands. Kjörskrá liggur enn fremur frammi á pappír kjós endum til sýnis á biskupsstofu og skrifstofum prófasta, sbr. 4. og 5. mgr. 9. gr. starfsreglna um kjör til kirkjuþings. Athugasemdir vegna kjörskrár skulu berast kjörstjórn eigi síðar en þremur sólarhringum áður en kosning hefst. Athugasemdir skulu sendar á netfangið kirkjan@kirkjan.is Reykjavík, 13. apríl 2018 f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar Hjördís Stefánsdóttir, formaður. Vilt þú gera Skaupið? RÚV leitar að réttum aðilum til að framleiða Áramótaskaupið 2018. Við köllum eftir tillögum þar sem settar eru fram vel útfærðar hugmyndir að nálgun, umgjörð, handriti og mönnun. Áramótaskaupið er ómissandi liður í hátíðarhöldum landsmanna og RÚV hefur metnað til að bjóða upp á framúrskarandi gott Skaup við hæfi sem flestra. Í stefnu RÚV kemur fram að samtal og samvinna við sjálfstæða framleiðendur og listamenn í landinu er aukið, nánar á www.ruv.is/2021 Nánari upplýsingar um helstu forsendur RÚV er að finna á vefnum www.ruv.is/skaup18 Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2018. Frá kr. 68.945 TENERIFE 25. apríl í 7 nætur Netverð á mann frá kr. 68.945 m.v. 2 í stúdíó.Tamaimo Tropical Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir á ski lja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra. FY RI R2 1 Heiða Björg Pálmadóttir, starfandi forstjóri Barnaverndar- stofu. BANDARÍKIN Brot úr væntanlegri bók James Comey, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti rak úr starfi alríkis- lögreglustjóra, birtust í fyrrinótt. Mátti þar finna harðorð ummæli um Trump. Var forsetanum meðal ann- ars líkt við mafíósa og hann sagður siðlaus og aftengdur sannleikanum. „Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta en ég veit ekki hvort núver- andi forseti Bandaríkjanna hafi verið með vændiskonum sem migu hvor á aðra í Moskvu árið 2013. Það er mögulegt, en ég veit það ekki,“ segir í bók Comeys og er þar vitnað í hina svokölluðu Steele-skýrslu þar sem Rússar eru sagðir eiga mynd- band af umræddu athæfi. Comey var rekinn þegar hann stýrði rannsókn á meintum tengslum Rússa við forsetaframboð Trumps. Bókin vekur greinilega ugg Repúblikana sem hafa ítrekað ráðist á hann undanfarið og minnt á að Demókrötum þótti lítið til Comey koma þegar hann tók upp rann- sókn á svokölluðu tölvupóstamáli Hillary Clinton á ný skömmu fyrir kosningar. „James Comey er LEKAMAÐUR og LYGARI. Næstum allir í Washington bjuggust við því að hann yrði rekinn fyrir hrikalega illa unnin störf. Hann lak LEYNILEGUM upplýsingum og það ætti að sækja hann til saka fyrir það. Hann laug að þinginu, EIÐ- SVARINN. Hann er veikgeðja og lygin slímklessa,“ sagði meðal annars í viðbrögðum Trumps á Twitter. – þea Trump kallar James Comey slímklessu James Comey. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 1 4 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 1 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 5 -8 5 4 4 1 F 7 5 -8 4 0 8 1 F 7 5 -8 2 C C 1 F 7 5 -8 1 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.