Fréttablaðið - 14.04.2018, Side 32

Fréttablaðið - 14.04.2018, Side 32
Þetta var karlaheimur,“ segir dr. Ann Wol-bert Burgess um þann tíma sem hún liðsinnti atf e r l i sví s i n d a d e i l d bandarísku alríkislög- reglunnar, FBI, við rannsóknir á raðmorðingjum og nauðgurum á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. „Það voru engar konur sem kenndu í skóla FBI í Quantico á þessum tíma en það voru fáeinar konur sem unnu sem fulltrúar í nokkrum borgum Bandaríkjanna. En einu konurnar fyrir utan mig á þessum tíma í Quantico voru ritarar og almennt starfsfólk,“ segir Ann. Störf Ann og alríkisfulltrúanna Johns Douglas og Roberts Ressler á áttunda og níunda áratugnum og rannsóknir þeirra á hugarheimi rað- morðingja urðu kveikjan að vinsælli Netflix-þáttaröð, Mindhunter. Og aðalpersónur þáttanna eru byggðar á þríeykinu. Ann er væntanleg til landsins í boði MPM (Master of Project Management) við Tækni- og verk- fræðideild Háskólans í Reykjavík og segir frá þessu áhugaverða rann- sóknarefni næstkomandi miðviku- dag. Þá heldur hún einnig annan fyr- irlestur fyrir íslenskt fagfólk um það hvernig lögreglufulltrúar FBI leita gagna sem varpa ljósi á gerandann með því að skoða vettvang morðs. Þríeykið Ann starfar nú sem prófessor í geð- hjúkrunarfræðum við Boston Col- lege School of Nursing og er heims- þekkt fyrir rannsóknir sínar bæði á gerendum, og ekki síður þolendum, ofbeldisverka. Rannsókn Ann á 36 morðingjum og brotaþolum benti til mynstra og þátta sem virtust leiða til afbrotsins. Ann, Robert og John gerðu rann- sókninni og störfum sínum í FBI skil í bókinni Sexual Homicide: Pat- terns and Motive sem kom út árið 1988. Þá gáfu þau út bókina: Crime Classifi cation Manual: A Standard System for Investigating and Clas- sifying Violent Crimes nokkrum árum seinna, eða 1992. „Rannsóknin tók til 36 raðmorð- ingja sem áttu það sameiginlegt að hafa fróun af morðunum og 112 þolenda þeirra. Í rannsókninni voru borin kennsl á mynstur og hvatir morðingjanna,“ segir Ann og segir frá samstarfsfélögum sínum, John og Robert. John er sagður hafa bylt morð- rannsóknum með því að ræða við og rannsaka raðmorðingja. Robert er eignað hugtakið „serial killer“, eða raðmorðingi. Robert þróaði einnig fyrsta tölvu- gagnagrunn Bandaríkjanna sem innihélt skrá yfir óleysta glæpi. Gagnagrunnurinn reyndist mikil stoð í rannsóknum á raðmorðingj- um sem frömdu morð í mismunandi ríkjum Bandaríkjanna. „Bob hannaði verkefnið í fyrstu og kom með hugmyndina að því. Hann var nýr kennari í skóla FBI og hugsaði með sér að ef hann ætlaði að kenna afbrotafræði þá ætti hann að tala við afbrotamenn. Svo hann fór í fangelsin og hóf að taka viðtöl við fanga. John slóst í för með honum þegar hann hóf störf í skólanum og þeir tóku viðtölin saman í fangelsum. Hugarheimur raðmorðingja Dr. Ann Burgess er á leiðinni til landsins. Þekkt fyrir rannsóknir sínar á raðmorðingjum og þolendum. Rannsóknir hennar og tveggja alríkisfulltrúa á hugarheimi raðmorðingja urðu kveikjan að vinsælli Netflix-þáttaröð, Mindhunter. Ed Kemper Ed Kemper myrti ömmu sína og afa þegar hann var táningur að aldri. Hann var útskrifaður af geðsjúkrahúsi 21 árs gamall. Frá maí árið 1972 til apríl 1973 nam hann á brott og myrti átta manneskjur áður en hann gaf sig fram við lögreglu. Ed er á lífi og enn í haldi. Montie Ralph Rissell Montie Ralph Rissell nauðgaði konu fjórtán ára gamall og var sendur á geðsjúkrahús. Hann framdi hrottafengna glæpi í leyfum sínum frá afplánun á geðsjúkrahúsinu. Hann var handtekinn aftur nítján ára. Þá hafði hann myrt fimm manneskjur og nauðgað tólf konum. Monte er á lífi og er enn í haldi. Jerry Brudos Fjölmiðlar kölluðu Jerry skóblætis slátrarann. Brudos var sautján ára gamall þegar hann nam konu á brott. Hann gekk í hjónaband og eignað- ist tvö börn. Árið 1968 myrti hann fjórar konur, íklæddur kvenmannsfötum. Hann misþyrmdi líkum kvennanna og hélt eftir líkamspörtum þeirra. Jerry lést í fangelsi árið 2006. Mér var svo boðið til Quantico, höfuðstöðva FBI skólans, til þess að þjálfa fulltrúa í því að tala við þolendur nauðgana,“ segir Ann um upphaf samstarfsins. Mættu andstöðu í upphafi „Á kvöldin þegar við áttum lausa stund frá vinnu hlustaði ég á fulltrúana tala um viðtölin sem þeir voru að taka við dæmda morðingja. Ég sagði þeim að viðtölin fælu í sér mikilvægar uppgötvanir og að þeir ættu að setja þau upp sem rannsóknar- verkefni, svo þeir hefðu upplýsingar og gögn til að deila með öðrum sem rannsaka morð. Á þriggja ára tímabili fór ég stundum til Quantico og stundum komu þeir til mín til Boston til að vinna að þessu verkefni,“ segir Ann frá. Voru þetta spennandi tímar? Og mættuð þið andstöðu frá FBI í fyrstu? „Þetta voru mjög spennandi tímar vegna þess að þetta voru nýjar upp- lýsingar og enginn hafði nokkru sinni áður rannsakað hóp raðmorð- ingja. Fulltrúarnir söfnuðu upplýs- ingum með 57 blaðsíðna spurninga- lista sem gerðu okkur kleift að flokka morðin í skipulögð og óskipulögð. Og þetta var upphafið að flokkunar- ferlinu fyrir óleyst morð. FBI streittist á móti í fyrstu en um leið og það varð ljóst hversu nytsamt verkefnið var í rannsókn mála og því að varpa ljósi á morðingjann þá studdi stjórn FBI vel við rannsókn- ina. Við fengum styrk frá National Institute of Justice árið 1981. Eins og kemur reyndar fram í einum þátta Mindhunter,“ rifjar Ann upp. Vanræksla og ofbeldi í æsku Hver eru algeng persónueinkenni raðmorðingja og raðnauðgara? Hvað einkennir hugarheim þeirra? „Karlarnir voru nær allir hvítir, gáfaðir, oft elstir í systkinaröð- inni og oft frá millistéttarheim- ilum en áttu erfitt á unglingsárum. Lykilatriði hjá öllum þessara karla var þróun á fantasíum þeirra um nauðganir og morð. Margir karl- anna gátu rakið fantasíur sínar til barnæsku. Hvað mótar þá? Þeir voru líka sjálfir þolendur ofbeldis og oft van- ræktir af feðrum sínum á mikil- vægum tíma í lífi ungra drengja.“ Vel máli farnir Þegar Ann er beðin um að rifja upp minnisstæðustu málin segir hún tvo raðmorðingja hafa vakið sérstaka athygli sína. „Mál Eds Kemper er mér minnisstæðast. Vegna þess að hann var svo vel máli farinn og hann hafði ekki eingöngu myrt fjölskyldu- meðlimi heldur líka skólafélaga sína. Viðtöl við hann gáfu mikla innsýn í fantasíur hans frá unga aldri um nauðganir og morð. Hann komst einnig undan réttvísinni í langan tíma. Hann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín. Annar mjög forvitnilegur rað- morðingi er Montie Rissell, sem nauðgaði fórnarlömbum sínum og myrti þau. Fórnarlömbin urðu tólf á fjögurra ára tímabili. Hann nauðgaði sjö þeirra, fimm nauðgaði hann og myrti. Hans hugarheimur var mjög ólíkur Eds Kemper en þeir áttu það sameiginlegt að vera afar vel máli farnir. Hann gat lýst smáat- riðum glæpum sinna,“ segir Ann frá. Kölluð til sem sérfræðingur í rétti Ann vinnur enn að rannsóknum á þolendum en að auki vinnur hún að verkefni sem felur í sér endur- hæfingu slasaðra hermanna. Hún er oft kölluð fyrir dómstóla sem sér- fræðingur í nauðgunarmálum. „Ég starfa sem ráðgjafi jafnframt því að ég met ástand þolenda fyrir rétti og ber vitni um áhrif nauðgunarinnar á líf þeirra. Ég er núna að vinna að rann- sókn á eldri þolendum sem eru með minnisglöp í við- leitni til þess að greina hegðun sem þeir þróa með sér þegar þeir geta ekki greint frá því að þeim hafi verið nauðgað. Þetta á sér stað á elliheimilum þar sem gerandinn er annaðhvort annar íbúi á heimilinu eða starfs- maður í aðhlynningu,“ segir Ann. „Ég rek einnig meðferðar- stöð fyrir slasaða hermenn í Boston College þar sem þeir stunda æfingar og sækja fræðslu tvisvar í viku. Markmiðið er að bæta líkamlegt ástand þeirra og styrk og minnka einkenni áfallastreitu- röskunar.“ Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Sjá nánar á Fréttablaðið+ Lengra viðtal við Ann má lesa á frettabladid.is. Dr Ann Burgess er konan á bak við eina aðalsögu- hetju hinna vinsælu þátta Mindhunter. 1 4 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 5 -6 7 A 4 1 F 7 5 -6 6 6 8 1 F 7 5 -6 5 2 C 1 F 7 5 -6 3 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.