Fréttablaðið - 14.04.2018, Side 42
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind
GALLAJAKKI
13.990
502 REGULAR TAPER
13.990
Daníel Heiðar og skólabræður hans tóku þátt í frumkvöðla-samkeppni framhalds-
skólanna en komust ekki í úrslit.
„Það gerir ekkert til því við höfum
lært mikið af þátttökunni,“ segir
hann. Strákarnir hönnuðu loftljós
úr flotkúlum sem hefur rekið á land
við fjörur Íslands. Þeir tína upp
flotkúlurnar sem koma í nokkrum
litum og breyta þeim í falleg loft-
ljós með mikinn karakter. Flot-
kúlur menga fjöruna en þær eyðast
afar hægt í náttúrunni þar sem þær
eru gerðar úr plasti.
Daníel segir að þetta sé raun-
verulega skólaverkefni. Nem-
endum er skipt upp í hópa og hver
hópur á að stofna alvörufyrirtæki.
„Við létum fyrirtækið okkar heita
Norðurljós en síðan þurftum við að
finna viðskiptahugmynd og þróa
hana. Verkefnið var í tengslum
við frumkvöðlasamkeppni fram-
haldsskólanna sem sett var upp
í Smáralind 8. apríl síðastliðinn.
Við þurfum síðan að skila inn árs-
skýrslu um starf fyrirtækisins.
Hugmyndina fengum við þegar
okkur var boðið í heimsókn í
Sjávarklasann. Þar fengum við
fyrirlestur og fengum að skoða
hluti tengda hafinu, meðal annars
flotkúlur. Okkur var sagt að nauð-
synlegt væri að hreinsa fjörurnar
og leitað væri leiða til að endurnýta
flotkúlur/trollkúlur. Í framhaldinu
fórum við að velta fyrir okkur
hvað við gætum gert með svona
plastkúlu en þá kom upp hugmynd
að loftljósi sem varð niðurstaðan.
Við hófum síðan fjöruferðir í leit
að flotkúlum. Í upphafi fengum
við aðstoð við að tína flotkúlurnar
hjá samtökunum Bláa hernum og
Tómasi Knútssyni. Síðan höfum
við gert þetta sjálfir. Við notum
bara þær kúlur sem eru heillegar.
Við höfum sett upp ljós heima hjá
Gerðu loftljós úr flotkúlum
Daníel Heiðar Tómasson, nemandi í frumkvöðlafræði í Fjölbrautaskóla Garðabæjar, stofnaði fyrir-
tækið Norðurljós sem framleiðir loftljós úr flotkúlum ásamt nokkrum skólafélögum.
Loftljós úr flotkúlu sem mengaði fjöruna en strákarnir hafa fært í nýjan
búning með endurvinnslu um leið og þeir tóku þátt í frumkvöðlakeppni.
Snorri og Hlynur hafa hengt upp ljós á rólunni til gamans.
Þórður Helgi Friðjónsson, Hlynur Bergsson, Daníel Heiðar, Ragnar Áki Ragnarsson og Snorri Björn.
Daníel Heiðar er framkvæmdastjóri
Norðurljósa.
okkur og selt þrjú stykki. Ef áhugi er
fyrir hendi að kaupa ljós viljum við
halda áfram með þetta verkefni,“
segir Daníel sem er á öðru ári í FG.
Hann segist hafa verið ákveðinn
í að fara í frumkvöðlafræði frá
því hann var í grunnskóla. „Við
erum fimm strákar í teymi og það
hefur verið mjög skemmtilegt að
vinna saman,“ segir Daníel sem er
framkvæmdastjóri Norðurljósa en
einnig eru í hópnum Þórður Helgi
Friðjónsson fjármálastjóri, Hlynur
Bergsson markaðsstjóri, Ragnar
Áki Ragnarsson sölustjóri og Snorri
Björn starfsmannastjóri.
Daníel segist stefna á að taka
námið í FG á þremur árum og fara
síðan til útlanda í háskólanám.
„Draumur minn er að opna fyrir-
tæki eftir útskrift úr háskóla en ég
ætla að mennta mig í markaðs-
málum og hönnun,“ segir hann.
Þess má geta að sigurvegari
frumkvöðlasamkeppni framhalds-
skólanna tekur þátt í Evrópu-
keppni ungra frumkvöðla. Nær
500 framhaldsskólanemendur
tóku þátt í verkefninu sem Junior
Achievement á Íslandi stendur fyrir
en úrslit verða kynnt í lok mán-
aðar. Junior Achievement (JA) eru
alþjóðleg, frjáls félagasamtök sem
starfa í 123 löndum.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
5
-E
8
0
4
1
F
7
5
-E
6
C
8
1
F
7
5
-E
5
8
C
1
F
7
5
-E
4
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K