Fréttablaðið - 14.04.2018, Qupperneq 86
Stundum mæta
tuttugu, stundum
hundrað. Við eigum von
á góðri mætingu í kvöld.
Sólveig Jónasdóttir, formaður Vina
Indlands
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Þetta er félag sem er eingöngu byggt á sjálfboðaliðastarfi, það er enginn rekstrarreikn-
ingur þannig að allt söfnunarfé
sem ekki rennur í bankakostnað
fer beint til Indlands,“ segir Sólveig
Jónasdóttir, formaður samtakanna
Vinir Indlands sem voru stofnuð
árið 2000. Í dag eru meðlimir
kringum hundrað og hafa ýmist
einhver ástríðutengsl við Indland
eða vilja láta gott af sér leiða.
„Við vinnum þarna að ýmsum
verkefnum í samstarfi við indversk
góðgerðarsamtök, Action India,
en við tengjumst þeim gegnum
alþjóðasamtök húmanista. Stefna
okkar er að styðja við verkefni sem
þegar eru í gangi frekar en að fjár-
magna verkefni til fullnustu. Við
lítum á þetta sem hjálp til sjálfs-
hjálpar,“ segir Sólveig enn fremur
og bætir við að margir taki að sér
að styrkja börn, ekki ósvipað og
heimsforeldrar.
„Svo styrkjum við barnaheimili
þar sem börnin búa mestan part
ársins, höfum komið að byggingu
fjögurra fræðslumiðstöðva og
vinnum með aðilum sem endur-
hæfa fólk sem hefur sloppið úr
mansali. Nýjasta verkefnið okkar
er smálánaverkefni þar sem við
Leyndarmál indverskrar
matargerðar felst í kryddinu
Sólveig Jónasdóttir er formaður samtakanna Vinir Indlands og verður ein átta kokka sem elda gómsætan kvöldverð í
Múltí Kúltí í kvöld. MYND/SIgtrYggur ArI
Vinir Indlands styrkja um 600 börn um skólabúninga og skólabúnað á hverju
vori en skólaárið á Indlandi hefst í júní. MYND/VINIr INDLANDS
Í samtökin Vinir
Indlands bjóða
upp á gómsætan
indverskan kvöld-
verð til styrktar
starfsemi félags-
ins í Indlandi en
undanfarin sautj-
án ár hefur félag-
ið meðal annars
greitt skólabún-
að fyrir allt að 600
börn í Tamil Nadu
héraði.
lánum aðallega konum til að
byggja upp starfsemi, sér og sínum
til framfærslu.“
Í sautján ár hafa Vinir Indlands
sent peninga að vori þar sem
skólaárið í Indlandi byrjar fyrst í
júní. „Ríkisskólakerfið er börnum
að mestu leyti að kostnaðarlausu
en kostnaður við skólabúninga,
námsgögn og fleira er meiri en
margt fólk ræður við. Undanfarin
ár höfum við styrkt 600 börn til
skólagöngu á þennan hátt.“
Vinir Indlands fjármagna
verkefnin að stórum hluta með
því að halda kvöldverði nokkrum
sinnum yfir veturinn og selja
aðgang. Sólveig segir að það
sé allur gangur á aðsókninni.
„Stundum mæta tuttugu og
stundum upp í hundrað,“ segir
hún og bætir við: „Það virðist ætla
að verða mjög góð aðsókn núna
sem er yndislegt.“
Kvöldverðurinn er haldinn á
Barónsstíg þrjú í húsnæði Múltí
Kúltí og það verða átta manns sem
sjá um eldamennskuna að þessu
sinni. „Naanbrauð er í bígerð, það
verður lambaréttur, engiferkjúk-
lingur, linsubaunadahl og sitthvað
fleira,“ segir Sólveig sem þvertekur
fyrir það sem sumir halda, að það
sé flókið að elda indverskan mat.
„Það breytir miklu að nota bestu
kryddin og við birgjum okkur upp
þegar við förum út.“
Sólveig fer reglulega til Indlands.
„Ég hef farið þrisvar sinnum með
hópa, fór síðast í ágúst og ætla á
næsta ári aðra ferð. Við heimsækj-
um yfirleitt eitthvert af þessum
styrktarverkefnum, borðum góðan
mat og túristumst. Mér finnst að
þegar maður er búinn að kynnast
einhverju landi þá er um að gera
að borga til baka með því að sýna
öðrum. Og með því að koma með
eitthvað gott með sér heim og
leyfa öðrum að njóta.“
Gómsætu, indversku réttirnir
verða á boðstólum í Múltí Kúltí í
kvöld klukkan sjö. Verðið er 3.000
kr. og frítt fyrir börn undir 10 ára.
Þeim sem ekki komast, en langar
að styrkja vini Indlands, er bent á
að reikningsupplýsingar má finna
á vinirindlands.is.
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
Afmælistilboð
Kínahofið fagnar 30 ára afmæli
með frábærum tilboðum sem gilda frá 9. apríl til og með 15. apríl.
Veglegt hádegishlaðborð
8 bragðgóðir réttir ásamt úrval af sósum og meðlæti
Verð aðeins kr. 1.590 kr.
Gildir á milli kl. 11 og 14.
Freistandi kvöldtilboð
Allir kjúklinga, nauta, lamba og svínakjötsréttir af matseðli.
Hrísgrjón fylgja öllum réttum.
Verð aðeins kr. 1.590 kr.
10 KYNNINgArBLAÐ FÓLK 1 4 . A p r í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
7
5
-D
9
3
4
1
F
7
5
-D
7
F
8
1
F
7
5
-D
6
B
C
1
F
7
5
-D
5
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K