Fréttablaðið - 14.04.2018, Qupperneq 94
E lvar Páll Sigurðsson og unnusta hans, Eyrún Rakel Agnarsdóttir, hafa í nógu að snúast þessa dagana. Þau eignuðust sitt fyrsta barn á dög-
unum og síðustu vikur hafa snúist
um soninn sem er nú um sex vikna
gamall.
„Hann er algjör gullmoli og það
gengur allt vel. Heilsan er góð og
fæðingin gekk vel,“ segir Elvar Páll
og segir fæðingu drengsins hafa
verið sína stærstu stund.
Elvar Páll hefur raunhæfan mögu-
leika á því að verða yngsti bæjar-
stjórnarmaður svo lengi sem elstu
menn muna. Hann starfar nú á
auglýsingastofunni Pipar/TBWA og
spilar fótbolta með Leikni í Breið-
holtinu.
„Ég ráðlegg fyrirtækjum í hinum
stafræna heimi um markaðs-
setningu og stefnumótun á staf-
rænum miðlum,“ segir Elvar sem
segir umhverfið sem hann vinnur í
síbreytilegt. „Það er alltaf eitthvað
að bætast við í flórunni og því getur
stefnumótun og markaðssetning
oft verið mjög krefjandi, en það er
mikilvægt fyrir fyrirtæki að vera
sýnileg á réttan hátt á netmiðlum,“
segir Elvar um starf sitt.
Elvar Páll er sóknarmaður
Leiknis manna í Breiðholti en sleit
takkaskónum á barnsárunum með
Breiðabliki í Kópavogi þar sem
hann er fæddur, uppalinn og býr
enn. Hann gekki svo til liðs við
Leikni Reykjavík árið 2015. „Ég fór
til Bandaríkjanna beint eftir fram-
haldsskóla á fótboltastyrk. Þar lærði
ég líffræði,“ segir Elvar frá og segist
hafa fetað í fótspor eldri bróður
síns. „Bróðir minn lærði líka líffræði
og seinna læknisfræði, ég ætlaði að
feta sömu leið og hann.“
Elvar Páll kom heim og fann fljót-
lega hvað hann vildi gera í fram-
haldinu. „Ég vildi fara í aðra átt og
fór því í meistaranám í markaðs-
fræðum og alþjóðaviðskiptum í
Háskóla Íslands og sé ekki eftir
þeirri ákvörðun. Líffræðinámið
kemur þó að góðu gagni, það er gott
að byggja grunninn á vísindum og
gerir það að verkum að ég nálgast
oft verkefni á annan hátt en aðrir á
mínum starfsvettvangi”.
Elvar Páll ökklabrotnaði síðasta
sumar og hefur því verið frá fótbolta
í nokkurn tíma.
„Ég er enn ekki orðinn nógu
góður og er í endurhæfingu. Þetta
tekur tíma, þetta eru erfið meiðsli og
getur tekið langan tíma að jafna sig
á svona meiðslum, það reynir nefni-
lega verulega á ökklann í fótbolta
og maður þarf því að vera rúmlega
100 prósent góður í ökklanum áður
en maður getur farið aftur út á fót-
boltavöllinn.
Ég er alls ekki hættur í fótbolta en
í þessum meiðslum fór ég aðeins að
hugsa út fyrir boxið og fór að gera
hluti sem mig hafði alltaf langað til
að gera,“ segir Elvar Páll og segist í
kjölfarið hafa leitt hugann að því að
verða að gagni fyrir sinn heimabæ,
Kópavog.
„Ég hef svo sem aldrei verið mjög
pólitískur en ég hef alla tíð haft mik-
inn áhuga og fylgst með því sem er í
gangi í Kópavogi. Ég hef búið hér frá
fæðingu og fjölskyldan mín býr hér
mestöll. Mér þykir mjög vænt um
bæjarfélagið og vil því ólmur leggja
mitt af mörkum og gera gagn.
Ég flokka mig ekki sem hægri-
eða vinstrimann og vil miklu frekar
vinna eftir málefnum hverju sinni.
Þannig vil ég nálgast þetta og ég
tel að það sé besta leiðin til að gera
Kópavog betri og samkeppnishæfari
á öllum sviðum.
Í síðustu kosningum beið ég sjálf-
ur eftir ungri manneskju í framboði
sem ég gæti tengt sterkt við. Mann-
eskju sem færi í stjórnmálastarf í
bænum með það markmið að gera
vel fyrir ungt folk, en fann enga. Það
sem hefur að mínu mati sárvantað
er að innan bæjarstjórnar sé ein-
hver sem talar máli ungs fólks. Ef
slík manneskja velst ekki til starfa,
þá verða málefnin hreinlega undir
að mínu mati,“ segir Elvar Páll og
bendir á að eftir því sem hann best
viti, þá hafi enginn undir þrítugu
starfað í bæjarstjórn Kópavogs í
langa tíð.
„Meðalaldurinn í bæjarstjórn
síðastliðin kjörtímabil hefur verið
um 50 ár. Mér finnst sú staðreynd
endurspeglast að mörgu leyti í
stefnu bæjarins í ýmsum málum.
Mér finnst til dæmis vanta að
lögð sé meiri áhersla á að byggja
húsnæði með ungt fólk í huga. Allar
lóðir bæjarins á síðasta kjörtímabili
voru til dæmis boðnar út til hæst-
bjóðenda og það leiðir af sér hærra
íbúðarverð og þannig er ekki byggt
fyrir nægilega fjölbreyttan hóp,
heldur meira fyrir hina tekjuhærri.
Það hafa sömuleiðis ekki verið
byggðar íbúðir fyrir námsmenn. Á
Kársnesinu hefði til dæmis verið
tilvalið að byggja fyrir þann hóp,“
segir Elvar Páll.
„Nú er á stefnuskránni að byggja
brú yfir til Reykjavíkur og það hefði
verið kjörið að byggja íbúðir ætl-
aðar nemendum þar,“ segir hann
til að taka dæmi um tækifæri sem
farið hefur forgörðum að hans mati.
Hann segir föðurhlutverkið einn-
ig hafa áhrif á sýn sína. „Við sóttum
um hjá dagmömmu fyrir strákinn
okkar hálfu ári áður en hann fædd-
ist, mér finnst það ekki í lagi. Það
þarf að aðstoða foreldra með ung
börn betur og svo þarf nauðsynlega
að brúa bilið á milli fæðingarorlofs
og leikskólans. Þá eru íþróttamál
bæjarins mér auðvitað mjög hug-
leikin, en íþróttir skipa stóran sess
í lífi mínu,“ segir Elvar Páll spurður
um helstu málefni sem brenna á
honum.
Meiddist á ökkla
og ákvað að bjóða sig fram
Elvar Páll Sigurðsson ákvað að taka slaginn. Fréttablaðið/Sigtryggur
Ungt fólk í stjórnmálum
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Elvar Páll Sigurðsson
og unnusta hans Eyrún
agnarsdóttir með son
sinn.
Um Elvar Pál
Foreldrar: Sigurður Þorsteinsson,
kennari í Kópavogsskóla, og Sigur-
borg Sigurðardóttir, lyfjafræðingur
í Apótekaranum, Salavegi.
Systkini: Sigurlaug, íþróttakennari
í Smáraskóla, og Arnar, bæklunar-
læknir í Gautaborg.
Hjúskaparstaða: Trúlofaður og í
sambúð.
börn: Einn sex vikna strákur.
uppáhaldsstaður á Íslandi: Skaga-
fjörðurinn, en það vita það ekki
margir að ég er 25% Skagfirðingur.
Hvað eldarðu oftast: Elda oftast
steiktan fisk, held ég, mikill aðdá-
andi.
uppáhaldsheimilisverkin: Er
mikið fyrir að ryksuga.
býrðu yfir einhverjum hæfileikum
sem fáir vita af? Get hreyft eyrun
á mér mjög hratt og líka nasirnar.
Hef mjög fáum sagt frá því.
Elvar Páll Sigurðs-
son er 26 ára gamall
Kópavogsbúi og skip-
ar þriðja sæti á lista
Samfylkingarinnar
í Kópavogi. Elvar
Páll er sóknar maður
Leiknismanna í
Breiðholti í fótbolta
en ökklabrotnaði síð-
asta sumar og þurfti
að gangast undir
aðgerð. Það var í
bataferlinu sem hug-
myndin kviknaði, að
bjóða sig fram.
1 4 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r38 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
7
5
-C
0
8
4
1
F
7
5
-B
F
4
8
1
F
7
5
-B
E
0
C
1
F
7
5
-B
C
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K