Fréttablaðið - 14.04.2018, Qupperneq 110
Raunfærnimat
Fyrir fjallamennskunám FAS
Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi
býður uppá raunfærnimat í fjallamennsku í
samvinnu við Framhaldsskólann í Austur-
Skaftafellssýslu, upplýsingar um fjalla-
mennskunám má sjá á fas.is
Raunfærnimat gefur einstaklingum með 3
ára starfsreynslu tækifæri á að fá reynslu og
þekkingu metna til eininga. Matið er fyrir 23
ára og eldri.
Einfalt ferli sem er þér að kostnaðarlausu.
Tími: u.þ.b. 8 klst. á vorönn 2018
Staður: Nýheimar, Höfn
Verkefnisstjórar: Sólveig R. Kristinsdóttir og
Sædís Ösp Valdemarsdóttir
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Fræðslunetinu í síma 560 2030
hjá Sædísi í síma 842 4655
Kynntu þér málið!
„Við erum tríó og verðum með
tónleika í Skyrgerðinni á Selfossi
í kvöld,“ segir söngkonan Bergljót
Arnalds. „Þeir sem spila með mér
eru Guðmundur Eiríksson píanó-
leikari sem var í bandinu sem gerði
„Oh, what a kiss“ frægt og Leifur
Gunnarsson kontrabassaleikari.
Þeir eru báðir Selfyssingar og við
eigum það öll sameiginlegt að hafa
farið í tónlistarnám í Danmörku á
sínum tíma og hafa ættartengingu
við svæðið fyrir austan fjall.“
Þau kalla sig Bergljótu og Spila-
púkana og hefja leik klukkan 20.30.
„Þetta verður skemmtileg kvöld-
stund og Skyrgerðin er sérstakur
staður sem minnir ögn á Iðnó.
Þar er yndislegur matur, frábærir
kokkar og svo ætlum við að hafa
fullt af hringborðum í salnum þar
sem fólk getur þá notið þess að fá
sér kokteil meðan við flytjum tón-
listina,“ segir Bergljót sem er nýbúin
gefa út disk með eigin lögum. Þau
munu hljóma í Skyrgerðinni og líka
þekkt lög Edit Piaf, Ellu Fitzgerald,
Ellyjar Vilhjálms og fleiri. Tríóið
lofar skemmtilegri kvöldstund með
ljúfum tónum. – gun
Kalla sig Bergljótu og Spilapúkana
Við viljum hvetja fólk til að göfga andann og gera sér glaðan dag með því að koma á sýninguna okkar í Grósku salnu m
á Garðatorgi 1. Þar verður mikið
um dýrðir,“ segir Rúna Tetzschner
myndlistarkona. Þar á hún við
sumarsýningu Grósku, samtaka
myndlistarmanna í Garðabæ sem
verður opnuð 18. apríl milli klukkan
20 og 23.
„Fjölbreytnin er jafn mikil og lista-
mennirnir eru margir. Við vinnum í
ýmsa miðla, flest erum við með mál-
verk eða aðrar myndir en aðrir með
skúlptúra,“ segir Rúna sem er ein af
sjö í stjórn samtakanna. Hún segir
listafólkið í Grósku annaðhvort búa
í bænum eða hafa við hann önnur
Bjóða sumarið velkomið með sýningu
Gróska, samtök
myndlistarmanna
í Garðabæ, opnar
sumarsýningu á
miðvikudaginn,
síðasta vetrardag, í
sal á Garðatorgi 1.
Rúna er ein af sjö manna stjórn Grósku. FRETTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Einvaldurinn, verk eftir Birgi Rafn
Friðriksson.
Guðmundur, Bergljót og Leifur tengjast öll Suðurlandinu.
tengsl og gangast þar fyrir ýmsum
viðburðum. Skyldu þeir vinna
saman að myndlistinni líka?
Fyrir þessa sýningu erum við hvert
í sínu lagi að undirbúa en við stönd-
um fyrir námskeiðum og þá erum
við saman á þeim.“
Rúna tekur fram að Rakel Björk
Björnsdóttir söngkona og Kristinn
Þór Óskarsson gítarleikari verði
með tónlistaratriði við opnunina
og boðið verði upp á léttar veitingar.
Sýningin verði svo opin áfram til
22. apríl. gun@frettabladid.is
1 4 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R54 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
7
5
-7
B
6
4
1
F
7
5
-7
A
2
8
1
F
7
5
-7
8
E
C
1
F
7
5
-7
7
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K