Fréttablaðið - 05.05.2018, Síða 2

Fréttablaðið - 05.05.2018, Síða 2
Veður Í dag gefur suðvestanáttin aðeins eftir frá því sem hún var í gær, en þó verður víða strekkingsvindur. Áfram má búast við snjóéljum og fremur köldu veðri, en norðaustan- og austanlands verður sólskin og þokkalegar hitatölur yfir daginn. SJÁ SÍÐU 52 Keisaraveldi hins illa sagði sís á Laugavegi The 501st Legion eru alþjóðleg samtök Star Wars-aðdáenda sem spóka sig í nákvæmum eftirlíkingum búninga illmenna í myndunum og láta gott af sér leiða. Þeim rann blóðið til skyldunnar á Star Wars-deginum í gær og herjuðu á Laugaveginn vegfarendum til ánægju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK NÁTTÚRA „Það gæti komið eitthvert bakslag í viðkvæman gróður en ég held að þetta verði ekki varanlegt,“ segir Kári Aðalsteinsson, garðyrkju- stjóri hjá Kirkjugörðum Reykja- víkur. Þrátt fyrir kuldakast og snjókomu á vestanverðu landinu telur Kári að gróður sleppi að mestu leyti vel. „Það hefði verið mikið verra ef við hefðum fengið norðanátt. Af því að þá hefðum við fengið miklu meiri kulda með sól,“ segir Kári. Það séu fyrst og fremst runnategundir sem laufgist snemma sem gætu skaðast. Nefnir hann blátoppinn, runnateg- und sem oft laufgast snemma og er oft komin af stað um miðjan apríl. Kári segir að það sé allt í lagi að halda sínu striki í vorverkunum þrátt fyrir óveðrið. „Ef klakinn er farinn úr jarðveg- inum, þá er allt í lagi að byrja að planta. Það er í rauninni betra en að draga það fram í miðjan júní þegar jarðvegurinn er farinn að þorna. Þá eiga plönturnar erfiðara með að koma sér af stað,“ segir Kári. Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að suð- vestanáttin hafi náð hámarki í gær. „Það má segja að þetta séu leif- arnar af vetrinum að sækja á okkur. Þetta er kalt loft, ættað frá heim- skautasvæðum Kanada, sem fer stundum á flakk og það veldur órólegu veðri þar sem það kemur niður,“ segir Teitur. „Þetta er það kalt loft að þegar það fer yfir sjóinn vestan við landið, þá drekkur það í sig raka úr sjónum og myndar éljaklakkana og það steypist snjór yfir vestanvert land- ið,“ bætir Teitur við. Á milli skín svo sólin, sem er orðin það sterk í maí að hún nær að hita yfirborðið á milli élja. Teitur segir að suðvestanáttin verði áfram hvöss yfir helgina með svipuðu veðurlagi. „En það er miklu betra veður austan við Tröllaskaga og fyrir norð- austan og á Austurlandi er þurrt og bjart veður,“ bætir Teitur við. Búist er við að eftir helgi skipti veðrið um gír og verði mildara og blautara. Þetta er mjög ódæmigerð staða að sögn Teits. Algengara sé að kuldinn sæki að landsmönnum úr norðri á þessum árstíma. „Síðan er næsta vika ekki heldur alveg venjuleg fyrir það hvað hún er vætusöm. Vorið er nú yfirleitt þurr- asti árstíminn,“ segir Teitur. jonhakon@frettabladid.is Vætutíð leysir af kulda sem gæti ógnað gróðri Viðkvæmasti gróðurinn gæti skaðast í kuldakastinu sem íbúar á vestanverðu landinu finna fyrir. Búast má við að kalt verði fram yfir helgi. Veðurfræðingur spáir því að eftir helgina verði síðan óvenju mikil vætutíð miðað við árstíma. Kirkjugarðar Reykjavíkur eru á meðal fallegustu skrúðgarða landsins, enda vaskur hópur manna sem starfar þar. Miðað við veðurspána fram undan gætu þeir þurft að bregða sér í regngalla næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ef klakinn er farinn úr jarðveginum, þá er allt í lagi að byrja að planta. Það er í rauninni betra en að draga það fram í miðjan júní. Kári Aðalsteinsson, garðyrkjustjóri hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 • Fálkagötu 18 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is LÖGREGLUMÁL Héraðsdómur Suður- lands framlengdi í gær gæsluvarð- hald yfir manni á sjötugsaldri, ábúandanum á Gýgjarhóli II í Bisk- upstungum, sem grunaður er um að hafa orðið 65 ára gömlum bróður sínum að bana í lok mars. Gæsluvarðhald sem maðurinn var áður settur í hefði runnið út á mánudaginn en nýja varðhaldið er til fjögurra vikna og rennur út 4. júní. „Rannsókn málsins miðar vel og standa vonir til þess að unnt verði að afgreiða það fullrannsakað til héraðssaksóknara í maí,“ segir í tilkynningu um málið frá lögregl- unni á Suðurlandi. – gar Áfram í haldi eftir lát bróður Sá grunaði ber við minnisleysi vegna ölvunar. Þriðji bróðirinn var sofandi í herbergi á bænum. DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði Sindra Þór Stefánsson í eins mánaðar farbann í gær. Sindri er grunaður um aðild að þjófnaði á 600 Bitcoin-tölvum úr þremur gagnaverum en engin ákæra hefur verið gefin út á hendur honum. Sindri lýsti á Facebook furðu sinni á því að þrír lögreglumenn hefðu verið sendir til Amsterdam til að sækja hann og flytja heim. „Kom svo fyrir dómara í Reykjanesbæ þar sem mér var sleppt út en með farbanni. Til hvers var eiginlega verið að aug- lýsa eftir mér?“ Þorgils Þorgilsson, verjandi Sindra, segir skiljanlegt að Sindra finnist óeðlilegt að lýst hafi verið eftir honum og hann sagður stroku- fangi. „Maðurinn lýsir yfir sakleysi sínu þannig að það er eðlilegt að hann sé ósáttur við að vera dæmdur í gæslu- varðhald í tólf vikur. Svo fer hann úr fangelsi þegar honum er sagt að hann sé frjáls ferða sinna,“ segir Þor- gils. Þá segir Þorgils rannsóknina hafa tekið duglegan tíma. Það sé hins vegar erfitt fyrir hann að meta hvort sá tími hafi verið of langur í ljósi umfangs málsins. „En jú, mér finnst vera liðinn mjög langur tími. Margir mánuðir. Hvort þetta er óeðlilega langur tími er allt annar handleggur.“ – þea Eðlilega ósáttur segir verjandinn Sindri Þór Stefánsson í Héraðsdómi Reykjaness í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 5 . M A Í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 2 -3 6 5 8 1 F B 2 -3 5 1 C 1 F B 2 -3 3 E 0 1 F B 2 -3 2 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.