Fréttablaðið - 05.05.2018, Side 40

Fréttablaðið - 05.05.2018, Side 40
Allt í klessu vísar í hvernig manni líður sjálfum, það er allt í klessu í samfélaginu og allt í klessu í þessum myndum. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Í kynningu á sýningunni segir meðal annars: augu, eyru, hattur og nef rembast við að fæðast úr trapisum, sívalningum og afrifum á meðan skaparinn gerir sitt besta til að stía þeim í sundur. „Allt í klessu vísar í hvernig manni líður sjálfum, það er allt í klessu í samfélaginu og allt í klessu í þessum myndum,“ segir Guðmundur. „Það er eins og það sé búið að taka alls konar element og hræra þeim saman og gubba á strigann. Og tilfinningin í þessum frasa, allt í klessu, ég vildi að sú tilfinning myndi voma yfir sýningunni.“ Undanfarin ár hefur Guðmundur unnið mikið með karl- mennsku og feðraveldið þar sem myndefnið var gjarnan skeggjaðir karlar sem uppteknir voru við ýmsa iðju á borð við körfuknattleik, bjór- bruggun og skotveiðar en í þessari sýningu langaði hann að leita á ný mið. „Ég hafði ansi langan tíma til að vinna fyrir þessa sýningu en það gekk svolítið illa að koma sér að verki, meðal annars vegna þess að það eru breytingar í stíl og efnis- tökum hjá mér. Og það var miklu erfiðara en ég bjóst við að breyta svona og ég er ekkert alveg laus undan körlunum.“ Guðmundur hefur getið sér gott orð í listaheiminum á undanförn- um árum og haldið fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis, til að mynda einkasýningar í Aysa Geis- berg Gallery í New York. Einnig hefur verið fjallað um sýningar hans í ýmsum virtum listamiðlum, innlendum sem erlendum. Það má því teljast hugrekki að sprengja þægindarammann með því að leita á ný mið og snúa baki við feðra- veldinu og karlmennskunni sem viðfangsefnum. „Ég veit það ekki. Mér fannst allt í einu að það væri ekkert satt lengur að mér væri mjög umhugað um að fjalla um samfélagið og feðraveldið og svo framvegis,“ segir hann. „Karlarnir voru eiginlega orðnir faratæki fyrir mig að útbúa myndir og ég var farinn að búa til það sem fólk bjóst við af mér. Og orðinn þreyttur og pirraður á því.“ Sýningin er eins og áður sagði hluti af sýningaröð Harbinger Við endimörk alvarleikans þar sem viðfangsefnið er leikur í víðum skilningi og þáttur hans og vægi í sköpunarferlinu. „Harbinger hafði samband við mig vegna þess að þau eru með sýningaröð í gangi sem fjallar um leik og karlarnir sem ég var að gera pössuðu vel inn í það,“ segir Guðmundur. „En þó karlana vanti er leikur í framleiðslunni á myndunum hjá mér, ég er bara að leika mér með form og liti og það er leikur í myndunum svo ég passaði inn í þessa sýningaröð þó ég væri ekki að gera það sama og undan- farið.“ Guðmundur er búsettur á Íslandi en heldur reglulega sýningar í New York eins og áður sagði og einn- ig hér heima. „Hverfisgallerí tók mig að sér og ég var með fyrstu sýninguna hjá þeim í nóvember í fyrra. Fram undan er stór sýning í Hafnarborg í nóvember og ég veit ekkert hvað ég er að fara að gera þar en vonandi verður það orðið skýrara eftir þessa sýningu.“ Sýningin í Harbinger á Freyju- götu 1 stendur til 19. maí og er opin frá klukkan 12 til 17. Allt í klessu hjá Guðmundi Guðmundur að störfum við uppsetningu sýningarinnar í Harbinger. MYND/SiGtrYGGur Ari Í Harbinger lista- galleríi á Freyju- götu stendur nú yfir sýningaröðin Við endimörk alvarleikans þar sem viðfangs- efnið er leikur í víðum skilningi. Í dag klukkan fimm verður opn- uð sýningin Allt í klessu á verkum Guðmundar Thoroddsen. Við bjóðum Valgeir velkominn til starfa hjá okkur. Valgeir Einarsson Mäntylä er kírópraktor og löggiltur sjúkraþjálfari. 8 KYNNiNGArBLAÐ FÓLK 5 . M A í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 2 -A 7 E 8 1 F B 2 -A 6 A C 1 F B 2 -A 5 7 0 1 F B 2 -A 4 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.