Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 84
Met var slegið í forsölu miða í íslensku leik-húsi fyrr á árinu þegar Borgar-leikhúsið hóf
sölu á sýninguna Rocky Horror
Show. Það kom í sjálfu sér ekki á
óvart. Verkið hefur notið vinsælda
víða um lönd allt frá því að var fyrst
sett á svið í Lundúnum árið 1973.
Vinsældirnar þá voru þó ekki eins
fyrirséðar, því upphaflega var búist
við að þessi skringilegi og tilrauna-
kenndi söngleikur yrði ekki á fjöl-
Stórir strákar
fá raflost
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um framhaldsmynd
sem floppaði.
meðal annars að hætta við sýningar
í fjölda bandarískra stórborga vegna
áhugaleysis. Richard O’Brien og
kvikmyndamógúlarnir sleiktu sár
sín, en rúmlega ári síðar fór boltinn
skyndilega að rúlla.
Í kjölfar óvæntra vinsælda hinnar
skringilegu bíómyndar Pink Flam-
ingos eftir John Waters á miðnætur-
sýningum í nokkrum kvikmynda-
húsum, var ákveðið að reyna slíkt
hið sama með Rocky Horror Pict-
ure Show. Nær samstundis braust
út Rocky Horror-æði í New York.
Myndin eignaðist ástríðufulla aðdá-
endur sem sáu hana jafnvel mörg
hundruð sinnum og kvikmynda-
sýningarnar urðu að sjálfstæðum
leikverkum, þar sem áhorfendur
mættu í klæðnaði aðalsöguhetjanna
og tóku að dansa og syngja í takt við
framvindu myndarinnar. Frá New
York breiddist æðið út um Banda-
ríkin og víðar um lönd. Stofnaðir
voru aðdáendaklúbbar og skipu-
lagðar voru ráðstefnur Rocky Hor-
ror-aðdáenda vítt og breitt. Innan
fárra ára var The Rocky Horror
Picture Show, þrátt fyrir floppið á
frumsýningarárinu, komin í hóp
þekktari kvikmynda.
Það er gömul saga og ný í Holly-
wood að velgengni mynda kveikir
þegar áhuga fjárfesta á framhalds-
myndum til að halda áfram að
nytja mjólkurkúna. Þrýstingurinn
á O’Brien að semja einhvers konar
framhald með gömlu aðalpersónun-
um var því talsverður. Næstu miss-
erin braut hann heilann um hvernig
endurvekja mætti Frank N. Furter
(sem var drepinn með leysigeisla-
byssu í myndinni – engin Hösk-
uldarviðvörun) og láta þau Brad
og Janet lenda í nýjum ævintýrum.
O’Brien samdi raunar slíkt handrit
og er rétturinn til að kvikmynda það
enn í höndum 20th Century Fox, en
litlar líkur eru þó taldar á að það
verði að veruleika úr þessu.
Handritið að þessari fyrirhuguðu
framhaldsmynd hefur lekið út og er
það mjög í anda gömlu myndarinnar,
með fjarstæðukenndum söguþræði
og áherslu á siðspilltar geimverur í
eggjandi korselettum. Jim Sharman
taldi hins vegar félaga sinn ofan af
því að reyna að herma um of eftir
gömlu myndinni og hvatti hann til
að teygja söguna frekar í aðrar áttir.
Niðurstaðan varð handritið „The
Brad and Janet Show“, þar sem Frank
N. Furter var fjarri góðu gamni, en
athyglinni fremur beint að afdrifum
þeirra Brads og Janetar eftir kynnin
af geimverunum með brókar sóttina.
Framleiðendur reyndust fúsir til sam-
starfs og undirbúningsvinna hófst af
kappi á árinu 1979.
Úthverfalíf og auglýsingaskrum
Grunnhugmynd O’Briens var að
nýja myndin skyldi gerast í dæmi-
gerðu bandarísku úthverfi, þar
sem Brad og Janet hefðu búið sér
heimili en þjáðust í ástlausu hjóna-
bandi. Í stað nostalgískra vísana
til lélegra bíómynda fimmta ára-
tugarins, beindi höfundurinn nú
spjótum sínum að lágkúrulegri
sjónvarpsmenningu samtíma síns
og geðveikrahælum. Íbúar smá-
borgarinnar lifðu og hrærðust í sjón-
varpsheimi, þar sem allt gekk út á að
fylgjast með gerviveröld sápuópera
og veruleikasjónvarpsþátta.
Draumur þeirra O’Briens og
Sharmans var að leiða saman sem
allra flesta af leikurunum úr fyrri
myndinni, jafnvel þótt flestir þeirra
yrðu látnir túlka nýjar persónur.
Þegar nær dró kvikmyndatökum
gengu þó sífellt fleiri úr skaftinu.
Susan Sarandon, sem leikið hafði
Janet, var orðin stórstjarna í Holly-
wood og gerði hærri launakröfur en
framleiðendurnir gátu staðið undir.
Eins þurfti að finna nýjan leikara í
hlutverk Brads, þar sem Barry Bost-
wick hafði öðrum hnöppum að
hneppa. Tim Curry hafði tekið vel
í að leika í nýju myndinni, en að
lokum náðust samningar ekki og
sama gilti um nokkra aðra úr gamla
hópnum. Allt kallaði þetta á sífelld-
ar endurskriftir á handritinu, sem
gerðu það flóknara og ruglingslegra.
Það var þó leikaraverkfall árið
1980 sem mestu breytti fyrir lokaút-
komuna. Verkfallið setti alla kvik-
myndaframleiðslu í Bandaríkjunum
í uppnám og var því ákveðið að taka
myndina upp í Englandi. Þar var
hvergi að finna tökustaði sem líkst
gætu bandarískum úthverfum. Því
varð úr að láta myndina alla gerast
í kvikmyndaveri, þar sem íbúarnir
væru gestir í sjónvarpssal í enda-
lausri beinni útsendingu. Brad og
Janet eru kölluð fram fyrir mynda-
vélina í spurningaleik og í kjölfarið
stíað í sundur. Brad er sendur á geð-
veikrahæli, þar sem sprautu glaðir
læknar ráða ríkjum, en Janet er
dubbuð upp sem sjónvarpsstjarna
sem sér að lokum í gegnum allan
tryllinginn og blekkingarnar.
Spámaður án föðurlands
Myndin sem að lokum kom út
úr þessu langa ferli umskrifta og
aðlagana hlaut nafnið „Shock
Treatment“ eða „Raflostið“ – sem er
kyndugt í ljósi þess að þótt í henni
sé talsvert vikið að geðsjúkrahúsum,
koma raflostsmeðferðir ekkert við
sögu. Skemmst er frá því að segja að
Shock Treatment varð enn meira
flopp en fyrri myndin og kostaði
framleiðendur sína stórfé. Gagnrýn-
endur voru upp til hópa neikvæðir
og aðalmarkhópurinn: Rocky
Horror- aðdáendur tóku myndinni
almennt illa. Tengingin við gömlu
myndina var óljós, ekki hvað síst í
ljósi breytinganna á leikaraliðinu og
yfirbragðið gjörólíkt.
Eftir á að hyggja hefðu þessi nei-
kvæðu viðbrögð ekki þurft að koma
á óvart. Á meðan fyrri myndin ein-
kenndist af fortíðarþrá og endurliti,
dró sú nýja upp martraðarkennda
framtíðarmynd. Furðulegur bræð-
ingur glysrokks áttunda áratugar-
ins og klisja úr vísindaskáldsögum
þess fimmta og sjötta var ekki jafn
yfirþyrmandi og ágengt myndmál
tónlistarmyndbanda níunda ára-
tugarins.
Velta má því fyrir sér hvort nei-
kvæðni Rocky Horror-aðdáenda í
garð nýju myndarinnar hafi tengst
því hversu föstum skotum Richard
O’Brien skaut á þennan sama hóp
í verkinu. Heilaþvegnu áhorfend-
urnir í sjónvarpssalnum í Shock
Treatment hafa mörg einkenni
Rocky Horror-unnenda, lifa sig inn
í útsendinguna á sama hátt og tíðk-
ast hafði á Rocky Horror-sýningum
og klæðast eins. Ef til vill var þetta
gaman örlítið of grátt fyrir hina
dyggu aðdáendur?
Aðrir benda á þá ranghugmynd
sem felist í því að reyna að búa til
framhaldsmynd sem miðist að
unnendum jaðarmyndar af þessu
tagi. Aðdáendur Rocky Horror
Picture Show hafi einmitt laðast
að myndinni þar sem hún hafi ekki
fallið í kramið. Þannig hafi hver og
einn getað uppgötvað hana á sínum
eigin forsendum og þannig synt
gegn straumnum. Útilokað sé því að
búa til mynd sem gagngert miðist að
þessum viðtökuhóp, sem vilji ekki
láta hugsa fyrir sig.
Á allra síðustu árum hefur Shock
Treatment þó eignast nokkurn hóp
unnenda. Skiptir þar máli að tón-
listin í henni er prýðileg og af svip-
uðum gæðum og í fyrri myndinni. Í
annan stað má segja að sú spásögn
um firrt sjónvarpssamfélag sem í
henni birtist hafi ræst ótrúlega vel
með veruleikasjónvarpsþáttum
samtímans. Raflostið talar því betur
til samtíma okkar en ársins 1981
þegar það var frumsýnt við litlar
undirtektir.
stöðu aðalleikarans, Tims Curry, í
hlutverki hins gjörspillta og sturl-
aða vísindamanns Franks N. Furter.
Curry og O’Brien þekktust frá því að
þeir unnu saman að uppsetningu
á söngleiknum Hárinu nokkrum
árum fyrr. Hlutverkið smellpass-
aði fyrir hinn unga Curry og lagði
grunninn að glæstum ferli hans sem
stendur enn.
Það lá því beint við að fá Tim
Curry í aðalhlutverkið þegar ákveð-
ið var að koma söngleiknum á hvíta
tjaldið tveimur árum síðar. Banda-
ríski kvikmyndarisinn 20th Century
Fox tryggði sér kvikmyndaréttinn
og sumarið 1975 var The Rocky
Horror Picture Show frumsýnd
vestan hafs og austan. Þrátt fyrir
að framleiðandinn og stór hluti
leikarahópsins væri bandarískur,
var myndin tekin upp í Bretlandi
þar sem notast var við gamlar bygg-
ingar og leikmuni frá Hammer-kvik-
myndafyrirtækinu, sem framleitt
hafði margar af gömlu hryllings-
myndunum sem Rocky Horror
Show vísaði svo mjög til.
Sígandi lukka
Viðtökur kvikmyndahúsagesta
ollu framleiðendunum sárum von-
brigðum. Aðsókn var afar dræm og
stefndi í stórtap á myndinni. Þurfti
SiðSPilltar geimverur í
eggjandi korSelettum.
unum nema í fáeinar vikur.
Það var ungur bresk/nýsjálenskur
leikari, Richard O’Brien, sem skrif-
aði verkið og samdi lögin í söng-
leiknum, en við sviðsetninguna
naut hann aðstoðar ástralsks leik-
stjóra, Jims Sharman. Söguþráður-
inn er hálfgert rugl, enda hugsaði
O’Brien mest um að hræra saman
sínum ólíku áhugamálum, sem
snerust að miklu leyti um ódýrar
gamlar bíómyndir, sem helst fjöll-
uðu um vísindaskáldskap og sígilda
bandaríska rokk og ról-tónlist.
Raunar hafði listamaðurinn nánast
þráhyggjukenndan áhuga á hvers
kyns amerískri dægurmenningu.
Rocky Horror Show var óður til
gömlu geimmyndanna, en í verk-
inu er líka teflt saman klisjum um
bandarískt millistéttar-úthverfalíf
sjötta áratugarins og kynlífsbyltingu
og glysrokk þess áttunda. Siðprúðu
turtildúfurnar Brad og Janet, hold-
tekjur ameríska draumsins, lenda í
skuggalegum ævintýrum hjá kynóð-
um geimverum í gotneskum kastala
og ganga á vald holdlegum fýsnum
sínum. Saman við skringilegan og
örlítið dökkan söguþráðinn var
svo blandað glaðværri og kröftugri
dægurtónlist.
Velgengni verksins í Lundúnum
var ekki hvað síst að þakka frammi-
5 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R44 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
0
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
2
-6
2
C
8
1
F
B
2
-6
1
8
C
1
F
B
2
-6
0
5
0
1
F
B
2
-5
F
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K