Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.11.2017, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.11.2017, Blaðsíða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.11. 2017 Ó perutónlist Verdis ómar um Lunda- kaffihúsið í Parma á Ítalíu þegar blaða- maður gengur þar inn. Það er notalegt um að litast, kertaljós og kósíheit og á píanóinu er uppstoppaður lundi í glerkassa. Glæsi- leg kona er á þönum við barinn; hún er hávaxin, grönn, með hnút í ljósa hárinu, í svartri dragt og með rauðan varalit. Óperusöngkonan og veitinga- húsaeigandinn Halla Margrét Árna- dóttir rýkur á blaðamann og heilsar með virktum. Hún er íslensk í húð og hár en hefur smitast af ítölsku fasi; tal- ar mikið og brosir mikið. Hún gefur sér tíma frá amstri dagsins og sest niður yfir kaffibolla og eftir að lækkað hefur verið í Verdi hefjum við spjallið. Heimsfræg á einni nóttu Halla Margrét hefur búið á Ítalíu síð- asta aldarfjórðung en þangað fór hún ung til náms í óperusöng eftir söng- nám hér heima og mikið Eurovision- ævintýri. Ófáir Íslendingar muna eft- ir henni þegar hún söng lagið Hægt og hljótt svo eftirminnilega. Hún segir að þessi mikli söng- áhugi hafi alltaf verið til staðar, frá blautu barnsbeini. „Afi var organisti þannig að ég ólst upp við pedalana á orgelinu hans heima og söng Hærra minn guð til þín þegar ég var þriggja ára, alla sálmana. Ég saug alla tónlist í mig. Eins þegar ég var í sveitinni, þá var sungið í fjósinu. Og þegar ég var að æfa fimleika var alltaf sungið í sturtunum. Við bjuggum til kór og sungum hástöfum. En ég áttaði mig þá ekki á því að ég yrði söngkona, það kom seinna,“ segir Halla Mar- grét um upphafið að söngferlinum. „Svo verð ég þess happs aðnjót- andi að verða heimsfræg á Íslandi á einni nóttu,“ segir hún og á við Eurovision-ævintýrið. Halla Mar- grét fór árið 1987 fyrir hönd Íslands til Belgíu. Þar lentum við í því kunn- uglega sextánda sæti en Johnny Logan stóð uppi sem sigurvegari með lagið Hold me now. Gente di Mare, ítalska lagið sem lifað hefur góðu lífi, lenti í þriðja sæti það árið. „Þegar ég verð fræg þá standa mér allar dyr opnar í dæg- urlagaheiminum. Ég var náttúrlega gullkista fyrir útgefendur og það bjuggust allir við að ég myndi halda áfram á þessari braut. Ég fór í raun á móti mörgum og bauð þeim birg- inn og sagði nei,“ segir hún. „Það er erfitt að vera frægur á Ís- landi og ég var ekki tilbúin; ég var óþroskuð og gat ekki höndlað frægð- ina. Þetta var mikil reynsla fyrir mig en ég ætlaði mér aldrei að verða poppsöngkona. Einhvern veginn hef ég alltaf valið erfiðu leiðina frekar en þá auðveldu,“ segir Halla Margrét sem segist hafa ákveðið að kúpla sig út og einbeita sér að óperusöngnámi, fyrst hérlendis og síðar á Ítalíu. „Eflaust hafa einhverjir í faginu upplifað það sem hroka, að segja skilið við frægðina á Íslandi. Þannig að ég skildi við þennan heim kannski dálítið á flótta. Og ég sé það í dag, svona eftir á.“ Fussað og sveiað Ung og óþroskuð valdi Halla Mar- grét þá að hefja nám í óperusöng. „Þegar maður er söngnemi, er það svolítið eins og nemi sem er að læra á fiðlu, það er eiginlega ekki hægt að hlusta. Á meðan þú ert að vinna röddina þína er óþægilegt að hlusta á hana. Íslendingar voru vanir þess- ari fallegu Hægt og hljótt-rödd sem mér þykir mjög vænt um. En til þess að syngja óperusöng þurfti ég að þróa röddina á annan hátt. Þá kem- ur mjög hrátt tímabil. Ég gleymi því aldrei að það kom hingað aust- urrískur óperusöngvari og hélt söngnámskeið sem ég fór á ásamt mörgum öðrum. Síðan voru loka- tónleikar og auglýsing var sett í sjónvarp og útvarp: komið og hlustið á Höllu Margréti syngja óperusöng. Það var allt troðfullt! Þetta var nátt- úrlega auðmýking fyrir mig því ég var ömurleg á þessum tíma sem óp- erusöngkona. Og þetta skemmdi fyrir mér. Bæði fyrrverandi og verð- andi kollegar fussuðu og fannst ég ömurleg og trúðu ekki á mig. Þetta var bara byrjunin, ég fékk vonda dóma víða. Þannig að það var mjög erfitt fyrir mig að sanna fyrir óp- eruheiminum að ég hefði eitthvað í þetta,“ segir Halla Margrét og seg- ist sjálf alltaf haft trú á sjálfri sér. „Ég er alin upp við íþróttir þar sem maður er alltaf í kappi við sjálf- an sig að gera betur, og þetta heim- færi ég yfir á óperuna. Á hverjum degi verð ég að þjálfa mig, æfa mig; ég verð að að vera betri en í gær. Ég þarf að standa mig á sviðinu og ekki klikka. Þetta er það sama eins og að vera í fimleikum eða fótbolta. Maður fer tvö skref áfram og eitt tilbaka.“ Barðist á hverjum degi Eftir „heimsfrægðina“ á Íslandi hélt hún til frekara náms til Ítalíu með reynsluna og lítið barn í farteskinu. „Ég kom hingað út og reyndi að gleymast. Þá kemur í ljós að ég er enginn mezzósópran, þó svo að ég geti sungið það í dag. Ég hef mjög breitt raddsvið, næ langt niður og fer hátt upp. Það var mjög erfitt þegar söngkennarinn stakk upp á að skipta yfir í sópran og það fóru mörg ár í það. Ég er dramatískur sópran, er með stærri, dýpri og dramatískari rödd,“ útskýrir Halla Margrét. Halla Margrét segist aldrei hafa verið betri söngkona en nú. Hún myndi gjarnan vilja syngja meira á Íslandi því hún segir hamingjuna vera tífalda þeg- ar sungið er fyrir landa sína. Morgunblaðið/Ásdís Ég var þessi hættulega Halla Margrét Árnadóttir, óperusöngkona og veitingahúsaeigandi í Parma á Ítalíu, talar um sönginn, ástina sem hún fann á rauðu ljósi og lífið á Ítalíu. Hún hefur fært margar fórnir til að koma sér áfram og hefur getið sér gott orð sem óperusöngkona á Ítalíu. Hún hefur þurft að bjóða háttsettum mönnum í spilltum óperuheimi birginn þegar verðið fyrir gott hlutverk var kynlíf. Hún ber höfuðið hátt og segist syngja til að gefa af sér, ekki fyrir frægðina. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Á tímabili stóð mér til boða stórt hlutverk en þeg-ar ég gerði mér grein fyrir því hvað ég þurfti aðborga fyrir það hlutverk þá svaraði ég: ég fór ekki sexþúsund kílómetra til þess að vera mella. Ég fór sex þúsund kílómetra og færði margar fórnir til þess að syngja. Þetta svar mitt varð mjög örlagaríkt.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.