Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.11.2017, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.11.2017, Page 20
Hlýlegt horn í stofunni. Púðinn Notknot frá hönnunarhúsinu Umemi kemur vel út í fallegum hægindastól. Kamilla Ingibergsdóttir, jóga- og hugleiðslukennari, flytur innhreint kakó frá Gvatemala sem hún notar mikið í starfi sínuog sér til heilsubótar og hefur verið að halda svokallaða kakó- hugleiðslu um nokkurt skeið. Kamilla býr í fallega innréttaðri íbúð í Vesturbænum sem býr yfir miklum sjarma. Hún segir stílinn á heimilinu bæði litríkan og kósí. „Mér finnst gaman að hafa liti í kringum mig og laðast að litríkum húsbúnaði, myndum, púðum og alls konar sem myndi kannski flokk- ast sem skrítið glingur, eins og dvergastyttum, glimmerlömpum, skeljum og kristöllum,“ útskýrir Kamilla og bætir við að vellíðan, litadýrð og notagildi skipti mestu máli þegar kemur að því að innrétta heimilið. Kamilla verslar víða inn á heimilið; í antíkbúðum, Góða hirðinum, Litríkt og kósí Kamilla Ingibergsdóttir, jóga- og hugleiðslukennari, hefur komið sér vel fyrir í bjartri íbúð í Vesturbænum í Reykjavík. Stíllinn einkennist af litríkum húsbúnaði og skemmtilegum smá- hlutum sem Kamilla hefur safnað á ferðalögum víðsvegar um heiminn. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Kamilla Ingibergsdóttir IKEA, netbúðum og verslunum sem selja hönnunarvörur. „Mér finnst meira að segja gaman að kaupa inn á heimilið í túristabúðum en ég ferðast mikið og finnst gaman að sjá hvernig útlit hlutar getur breyst í mismunandi umhverfi og uppstillingu. Það er gott að æfa sig í að sjá möguleikana í öllu.“ Þá sækir hún jafnframt innblástur alls staðar að. „Hvert sem ég fer; í náttúrunni, á fallegum heimilum og stöðum sem ég heimsæki og sé myndir af í bókum, tímaritum og á Instagram.“ Aðspurð hver sé eftirlætisstaður Kamillu á heimilinu svarar hún: „Ég held að upphaldsstaðurinn haldist í hendur við þægilegasta staðinn á heimilinu en það er tungan í tungusófanum. Það er mjög þægilegt að sitja þar umkringd púðum að lesa, hugleiða eða horfa á eitthvað sniðugt á Netflix.“ Morgunblaðið/Hari Smekklegir smáhlutir eiga sinn stað í baðherberg- isglugganum. HÖNNUN Fjölbreytt dagskrá í Hafnarborg 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.11. 2017 Sunnudaginn 12. nóvember verður fjölbreytt dagskrá í Hafnarborg frá klukkan 14 til 16 í tengslum við sýningarnar Japönsk nútímahönnun 100 og Með augum Minksins – Hönnun, ferli, framleiðsla. Á dag- skránni eru meðal annars áhugaverðir fyrirlestrar og Fjölskyldusmiðja.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.