Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.11.2017, Síða 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.11.2017, Síða 43
Tvær utangarðskonur Þó að Galdra-Dísa sé sjálfstætt framhald fyrri bókarinnar lofar Gunnar Theodór að lesendur hennar muni hitta aftur nokkrar af þeim persónum sem þeir kynntust í Drauga-Dísu. „Björn kemur líka fyrir í þessari bók þótt þau Dísa séu ekki lengur kærustupar, en þau eru ennþá bestu vinir,“ segir höfund- urinn og bendir á að þannig sé lífið oft, að hlutirnir gangi ekki alltaf upp eins og í æv- intýrunum. - Hvernig beitir Dísa kröftum sínum í þessari bók? „Ég reyndi að ímynda mér hvernig klár menntaskólastelpa sem býr yfir galdrahæfi- leikum myndi vilja nýta þá og auðvitað kviknar hjá henni ákveðin réttlætiskennd. Dísa kynnist flóttastúlku frá ímynduðu landi og þær finna sig strax saman af því að þær eru báðar hálfgerðar utangarðskonur. Þær ferðast til landsins hennar, Gambe- líu, og samhliða því vekur Dísa upp ævaforn öfl sem flækja málin enn meir. Þannig er sagan tilraun til að tvinna saman fantasíuna og raunveruna og fjalla um erfið efni á ævintýralegan hátt.“ Meira myrkur Þar sem tengingin við útlönd er sterkari í þessari bók er aðeins minna unnið með ís- lenskar þjóðsögur, þrátt fyrir að Dísa beiti auðvitað rammíslenskum göldrum. „Það er þó nokkuð meira um myrkrið í þessari bók, en unglingar eru gjarnan hrifnir af hryllingnum,“ segir Gunnar Theodór, sem telur þetta mestu unglinga- bókina sína hingað til, þótt hann sé fljótur að bæta við að hún sé vissulega fyrir fant- asíuunnendur á öllum aldri, svo fremi sem þeir séu dálítið hugrakkir. -Mér finnst Dísa algjör töffari og flott fyrirmynd fyrir unglinga. „Já, hún er breyskur töffari. Mér fannst einmitt mjög gaman að fyrri bókin fékk góða umfjöllun varðandi persónusköpun Dísu. Það er eitthvað sem ég hafði verið gagnrýndur fyrir í fyrstu skrifum mínum og tók sérstaklega til mín, svo það gleður mig að hafa náð að bæta úr því. Þá er að bíða og vona að lesendur nái jafngóðri tengingu við hana í þetta skiptið. Ég hafði ekki ætlað mér að skrifa framhald þegar ég lauk við Drauga-Dísu, en var sjálfur orðinn svo tengdur henni að ég var ekki reiðubúinn að kveðja Dísu alveg strax. Hún er bæði flókin og áhugaverð persóna að vinna með, enda búin að lenda í mörgu erf- iðu og lifa vægast sagt tímana tvenna,“ segir Gunnar Theodór sem segist búa yfir hugmynd að alla vega einni bók í viðbót um Dísu, en hann mælir með að þangað til hún sé tilbúin tökum við okkur Galdra- Dísu í hönd. Fantasían og raunveran tvinnaðar saman Dísa vekur upp ævaforn öfl í nýjustu bókinni um þessa rammgöldróttu unglingsstúlku. Þetta er myrk bók og aðeins fyrir hugrakka lesendur. Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Út er komin bókin Galdra-Dísa eftirGunnar Theodór Eggertsson.Þetta er önnur bókin um unglings- stúlkuna Dísu, en hún er sjálfstætt fram- hald bókarinnar Drauga-Dísa sem kom út 2015 og var tilnefnd til Íslensku bók- menntaverðlaunanna. Þetta er fjórða bók höfundar en hann fékk Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir fyrstu bók sína, Steindýrin, og fylgdi henni eftir með bókinni Steinskrípin. Hryllingur fyrir börn og unglinga „Foreldrar mínir voru bæði rithöfundar og mig langaði alltaf til að verða líka rithöf- undur,“ segir Gunnar Theodór sem er son- ur Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur og Eggerts Þórs Bernharðssonar heitins. „Þegar ég var unglingur hafði ég mestan áhuga á hryllingsmyndum og langaði að skrifa hryllingsbækur fyrir fullorðna, en endaði á að skrifa hrylling fyrir börn og unglinga. Þannig fór ég heldur ekki í sam- keppni við neinn í fjölskyldunni,“ segir hann og hlær. Gunnar Theodór kláraði fyrstu bókina sína þegar hann starfaði á frístunda- heimili, þar sem hann var með söguklúbb fyrir krakka, og vinnur mikið með íslenska þjóðsagnaarfinn og erlendar hrollvekjur og furðusögur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dagur Hjartarson hefur gefið út ljóðabók sem kallast á við fyrstu ljóðabókina hans. 12.11. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 Gestir utan úr geimnum bbbbm Eftir Ævar Þór Benediktsson. Teikningar: Rán Flygenring. Mál og menning 2017. Eins og fyrri bækur í sama bókaflokki um bernskubrek Ævars vísindamanns er um sprellfjöruga og æsispenn- andi sögu að ræða. […] Ég naut þess virkilega að lesa fyrri bækurnar tvær, og gaf þeim fjórar stjörnur í umfjöll- un hér í blaðinu, en það verð- ur að segjast að mér finnst Gestir utan úr geimnum enn betri. […] Ævar Þór Benediktsson hefur enn og aftur skrifað frábæra bók og hún er ekki bara fyrir börn því fullorðnir munu líka hafa gaman af lestrinum, sérstaklega ef hann fer fram með barninu. Ingveldur Geirsdóttir Birtan yfir ánni bbbbn Ljóð eftir ýmsa höfunda. Gyrðir Elíasson þýddi. Dimma, 2017. Innbundin, 382 bls. Gyrðir hefur áður gefið út þýðingar, bæði ljóð og sögur, og hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir þessi rit- störf. Og nú bætir hann enn í púkkið. Birtan yfir ánni er stórt safn ljóða eftir 53 skáld frá 24 löndum. […] Gyrðir hefur traustatök á máli og orðaval hans er í senn fjöl- breytt og aðgengilegt […] Birtan yfir ánni hef- ur verið mér til hugarhægðar í allt sumar, einkar þekkileg bók með fjölbreyttum kveð- skap sem í senn veitir ánægju og vekur til um- hugsunar. Bókin er snoturlega úr garði gerð af hálfu forlagsins. Sölvi Sveinsson Fyrstu forsetarnir Eftir Guðna Th. Jóhannesson. Sögufélag, 2016. Bókin er lipurlega skrifuð en hún er fyrst og fremst end- ursögn á meginlínum í starfi fyrstu fjögurra forseta lýð- veldisins. Hún getur varla tal- izt meiri háttar sagnfræðilegt verk enda umfjöllun um for- seta örríkis á eyju í Norður- Atlantshafi tæpast efniviður í slíkt verk. Höfundur hefur augljóslega kynnt sér margvíslegar heimildir, sem snerta forseta okkar, og dregur ályktanir af þeim. Ef eitt- hvað má um þær ályktanir segja er það kannski fyrst og fremst að Guðni gerir meira úr aðild forseta að myndun ríkisstjórna en efni standa til. Engu að síður er bók Guðna gagnlegt upp- lýsingarit um megindrættina í þessari sögu í 100 ár en frásögnin hefst hinn 1. desember 1918 og sem slík á hún ekki sízt erindi við nýj- ar kynslóðir. Styrmir Gunnarsson Hrafnamyrkur bbbmn Eftir Ann Cleeves. Snjólaug Bragadóttir þýddi. Ugla 2017. Kilja. 334 bls. Þetta er ein af þessum þægilegu glæpasögum, þar sem nokkurs konar kyrrð rík- ir þrátt fyrir glæpi. Teng- ingar fólksins gera það að verkum að ótti sem slíkur grípur ekki um sig, lífið geng- ur áfram sinn vanagang að mestu en engu að síður eru eyjarskeggjar á varðbergi. […] Sagan rennur ágætlega og persónu- sköpun höfundar er ágæt. Ann Cleeves lýsir eyjarskeggjum eins og þeir eru, en víndrykkja 16 ára stúlkna í boði fullorðinna passar ekki inn í aðrar lýsingar. Þetta er ekki bara glæpa- saga heldur saga fámennis með kostum þess og ekki síður göllum. Steinþór Guðbjartsson Úr umsögnum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.