Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.11. 2017 VETTVANGUR Eldri Reykvíkingar muna ánefa eftir þessari flennifyrir-sögn sem slegið var upp á stærsta húsvegg Reykjavíkur, Nýja bíói, sem gnæfði innaf horni Lækjargötu og Austurstrætis: Dagleg ánægja milljóna manna. Og hver skyldi hafa hlotið þenn- an heiðurssess í borgarmyndinni; hvað var það sem talið var veita milljónunum svo ríka ánægju að ástæða þótti til að slá því upp með þessum hætti? Gleðigjafinn góði var Wrigley- tyggigúmmí! Tvær þrjár tyggjó- plötur voru undir fyrirsögninni og svo áberandi voru þær að sérhvert gestkomandi auga gat ekki farið á mis við boðskap- inn. Eftir nokk- urra ára sambýli við tyggi- gúmmíið hættum við Reykvík- ingar að taka eftir því en jafn- an þegar að- komumenn spurðu út í veggmyndina var maður þó ekki meira sam- dauna henni en svo, að manni þætti það ekki óþægilegt að tyggi- gúmmíi væri gert svo hátt undir höfði. Sá grunur læddist nefnilega að okkur að auglýsingin segði meira um þá sem umbæru hana en um tyggigúmmíið sem auglýst var. Svo var það líka hitt að í þá daga var enn reynt að sporna gegn því að auglýsendur kæmust alls staðar inn á gafl. Nú hafa allar slíkar varnir hrunið. Svo lítil er sjálfsvirðingin orðin að jafnvel Ríkisútvarpið lætur sig hafa það að brjóta landslög til að hala inn nokkra seðla til viðbótar á ólögleg- um áfengisauglýsingum og aðrir fjölmiðlar eru við sama heygarðs- hornið hvað það snertir, þó að ekki allir, og látum við þá ógetið um ábyrgðarleysi þeirra sem skirrast ekki við að koma vöru sinni á framfæri með þessum hætti. En erum við þá orðin alveg sam- dauna og meðvirk í auglýsinga- mennskunni? Getur verið að öllum finnist í lagi að láta Pepsí eiga deildarkeppni í íþróttum, Alvogen KR-völlinn og Wow-flugfélagið kaupa sig inn á bringuna á börn- unum sem stolt hlaupa um í fé- lagsbúningunum sínum? Um auglýsingar hugsa þau ekki frekar en húsveggurinn á Nýja bíói gerði um það sem á hann var málað. En berum við, hin full- orðnu, ekki einhverja ábyrgð? Og hverjir væru það þá sem ættu að axla þá ábyrgð? Hvað segjr Barna- verndarstofa, Umboðsmaður barna, forsvars- fólk íþrótta- félaganna, hvað segjum við, þú og ég? Enginn vill gera úr þessu hávaðamál og valda börnum sínum eða barnabörnum þar með leiðindum þó að ekki væri fyrir annað en verða uppvís að því að eiga nöldursama foreldra, ömmu eða kannski aðallega afa. Hvað um Neytendasamtökin? Er þeim alveg sama hvernig er aug- lýst? Látum það vera að fullorðið íþróttafólk fallist á að hlaupa um með auglýsingar til eigin fjár- mögnunar þótt það breyti því ekki að heldur er það hvimleitt á að horfa upp á svo niðurlægjandi framfærslu. Eflaust eru skoðanir eitthvað skiptar hvað fullorðin hlaupandi auglýsingaspjöld áhrærir. Öðru máli gegnir hins vegar um börnin. Ég held að við hljótum flest að vera sammála um að þau er verið að misnota. Og eitthvað meira en lítið er að ef við virkilega ætlum að láta það óátalið að börn séu látin hlaupa um sem lifandi auglýsingar fyrir Wow og gosdrykkjaframleið- endur, þessum fyrirtækjum eflaust til fjárhagslegs ávinnings og þar með til daglegrar ánægju. En varla okkur hinum, eða hvað? Dagleg ánægja milljóna manna ’Eflaust eru skoðanireitthvað skiptar hvaðfullorðin hlaupandi aug-lýsingaspjöld áhrærir. Öðru máli gegnir hins vegar um börnin. Ég held að við hljótum flest að vera sammála um að þau er verið að misnota. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@altingi.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Ragnar Önundarson átti sviðs- ljósið í vikunni þegar hann gagn- rýndi prófílmynd af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur alþingismanni. Eftir mikið fjaðrafok á netinu, þar sem fæstir voru á hans skoðun, sagði Ragnar meðal annars: „Ég er víst orðinn einn aðalmaðurinn á Face- book! Það sem þarf að ræða í því samhengi er krafan um pólitíska rétthugsun, krafan um að fólk rit- skoði sjálft sig og tjái sig eins og það má ætla að aðrir vilji heyra...“ Guðmundur Andri Thors- son svarar honum: „Þú þrástagast á þessu hugtaki „póli- tísk rétthugsun“ vegna þess að fólk hneykslast réttilega á óvenju búralegri og fruntalegri at- hugasemd þinni um facebook- prófílmynd Áslaugar Örnu, þar sem þú lést að því liggja að hún væri að bjóða upp á áreitni með myndinni. Það er fjarri lagi að svo sé. Enginn skilur hvað þú ert að gefa í skyn, enda langar engan inn í þann þankagang sem að baki býr.“ Helga Vala Helgadóttir birtir mynd af hálfberu baki með húðflúri og spyr á Facebook: „Ber öxl og tattoo … má það?“ Sigríður Ingi- björg Ingadóttir skrifar á Face- book eftir kastljósþátt þar sem fjallað var um sögur stjórnmála- kvenna af áreitni: „#metoo byltingin snart mig mjög djúpt. Ég varð svo reið að ég er eig- inlega ekki enn bú- in að jafna mig. Allt það öráreiti sem við konur verðum fyrir frá barnsaldri mótar okkur og setur okkur skorður...“ AF NETINU FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐA Ég var greind með slitgigt og hef fundið fyrir verkjum í hægri mjöðminni um árabil. Á tímabili varð ég svo slæm að ég þurfti að fá sprautur og sterk verkjalyf fyrir mjöðmina. Eftir að ég fór að taka NUTRILENK öðlaðist ég hreinlega nýtt líf. Ég hef notaðNUTRILENKGOLD síðan í september 2012 með frábærum árangri, og þá meina ég ÁRANGRI. Ragnheiður Garðarsdóttir, leikskólakennari Nutrilenk fyrir liðina GOLD NNA Vertu laus við LIÐVERKINA Eitt mest selda efnið fyrir liðina hér á landi ÉG ÖÐLAÐIST NÝTT LÍF MEÐ NUTRILENK GOLD.” Náttúrul egt fyrir liðin a Gildir á alla viðburði í húsinu Nánar á harpa.is/gjafakort Gjafakort Hörpu hljómar vel um jólin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.