Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Side 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Side 43
hana, „Ástin er mesta skáld í heimi. Að elska er að yrkja fegursta ljóð í víðri veröld,“ sagði Þórbergur Þórðarson. Þegar maður er í þessu ástandi, ástfanginn eða í ástarsorg, þá er lífið frábærlega fallegt eða ömurlega ömurlegt og þessi bók er skrifuð í þessu tvennskonar ástandi. Menn eru annaðhvort yfir sig ást- fangnir og þá er lífið svo ótrúlega fallegt að það er list og fegurð í öllu og allt er ljóðrænt, mánudagur í október, klunnalegur dans eða skakkar tennur geta verið það fallegasta í öll- um heiminum, en í ástarsorginni er sama lífið bara ömurlega glatað og allt er hræðilegt, meira að segja sólin getur skinið of skært.“ – Ástarsorg Tómasar er þó aðeins í upphafi, upp frá því er hann sífellt að finna ný og ný af- brigði af sannleikanum. „Hann endar þó á því að loka sig af í Dala- tangavita og hlusta á Bee Gees sem í grunninn eru bara þrír ástsjúkir bræður að semja diskó- lög um það að vera í ástarsorg.“ – Bee Gees, sú vanmetna hljómsveit, en samkvæmt titli bókarinnar fjallar hún líka um lífsspeki ABBA. „Lífsspeki ABBA, hvað er nú það. Að mínu mati er Abba einn vanmetnasti listgjörningur sögunnar, þetta er einn tærasti spegill mann- legrar tilveru. Þar erum við með hjón sem eru að semja lög um ástina og harminn og hjóna- skilnað. Síðan fara hjónin að skilja en halda áfram að gera stórbrotin lög, en þó alltaf í formi poppsins, gleðipoppsins; glimmer, hrað- ur taktur, píanó og endalausar Evróvisjón- hækkanir, en með þessum mikla harmi, diskótragík. Bókin er í raun eins og eitt ABBA-lag, spruðlandi gleði þar sem allt er sett fram í nánast poppstíl, mikil skemmtun, en viðfangsefnið er svo mannlegt, nánast harmrænt. Frásögnin frá sjónarhorni þessara ein- staklinga er nánast naive, barnaleg. Þó þeir séu orðnir 22 ára eru þeir að stíga sín fyrstu skref inn í heim fullorðinna og nálgast allt með augliti barnsins, hrifnæmir eins og börn. Manneskjan er alltaf að ganga í gegnum nýtt skeið og við verðum sífellt eins og barn að nýju, maðurinn er að eilífu barn, þó að hann eldist og verði gamall, hann er sífellt að feta einhverja nýja braut og það gerir hann svo fal- lega áhugaverðan.“ Adolf Smári Unnarsson hefur mikið dálæti á ABBA. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon þeir verði helst að verða aðeins hræddir.“ Hefurðu lengi velt því fyrir þér að skrifa sögu á þessum nótum? „Þessi bók hefur verið í vinnslu í hátt í fjög- ur ár. Þetta er því mjög mikið unnin bók; ég hef legið yfir henni, lagt hana frá mér aftur og aftur í allan þennan tíma. Vildi vanda mig því efnið kallaði mjög sterkt á mig og þurfti sinn tíma. Þessi saga fær líklega að njóta sín sem svolítið sérstök í mínu höfundarverki því mér finnst ólíklegt að ég geri eitthvað svipað þessu aftur, að minnsta kosti ekki á næstu árum.“ Stefán Máni: Mér finnst stór- skemmtilegt að hræða fólk. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 26.11. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 Það sem lifir dauðann af er ástin bbbbn Eftir Kristján Árnason. Ljóð og ljóðaþýð- inar – úrval. Mál og menning gefur út, 2017. 128 bls. Kristján Árnason er af- kastamikill þýðandi og hefur íslenskað bæði ljóð, leikrit og sögur. … Þessi bók er fjöl- breytt safn af þýðingum Kristjáns, að sönnu brota- kennt og úr ýmsum áttum en ei að síður mjög læsilegt og sýnir vel þau traustatök sem hann hefur á máli og formi þannig að úr verður mjög bitastæður kveðskapur og sum- ar þýðingarnar snilldargóðar. Sölvi Sveinsson Grænmetisætan bbbbm Eftir Han Kang. Ingunn Snædal íslenskaði. Forlagið bókaútgáfa 2017. Kilja, 204 bls. Líklegt er að það sé mis- jafnt hve langt lesendur eru komnir í sögunni þegar þeir átta sig á rót alls þess sem Yeong-hye gerir. Lengi virð- ist hún gjörsamlega hafa tap- að vitinu en þegar allt kemur heim og saman ætti að vera hverjum manni skiljanlegt að þetta var leiðin hennar til að komast undan því að hafa enga stjórn á eigin lífi auk ævi- langrar misnotkunar. Sagan gerir okkur örlítið betur kleift að skilja þá sem í daglegu lífi eru kallaðir „geð- sjúklingar“. Stundum er bara hægt að leggja ákveðið mikið á eina manneskju áður en hún fer að leita að leiðum burtu frá raunveruleik- anum. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Heimför  Eftir Yaa Gyasi. Ólöf Eldjárn þýddi. JPV útgáfa, 2017. Kilja 416 bls. Þetta er stórmerkileg frumraun þar sem bókin hef- ur allt það sem góð skáld- saga getur haft til brunns að bera. Hún er hreyfiafl, tundurþráður uppljómunar, spennandi, skemmtileg, hug- ljúf, sár og tætandi, fyrir ut- an að vera feikilega vel skrif- uð. Heimför er síðasta bókin sem Ólöf Eldjárn þýddi en hún lést áður en bókin kom út. Þess má geta að þýðing hennar er ákaflega vel úr garði gerð, þar sem framandi orð og um- hverfi er fært í afar auðskilinn, flæðandi, fal- lega orðaðan og aðgengilegan búning. Júlía Margrét Alexandersdóttir Predikarastelpan bbbbn Eftir Tapio Koivukari. Sigurður Karlsson þýddi. Sæmundur, 2017. 327 bls., innb. … Predikarastelpan er ekki aðeins bók um ástandið í Finnlandi eftir stríð, hún er um svo margt annað líka, hún er um mannlegt eðli og mannlega hegðun, hvernig fólk bregst ólíkt við að- stæðum. Hún er um sakleysi og hvernig sumir svífast einskis við að svipta aðra sakleysi. Hún er um klókindi, sjálfsbjargarviðleitni, miskunn- arleysi og misrétti, stéttaskiptingu og vald- níðslu. Hún er líka um það hvernig karlar í skjóli valds síns misnota sér lægra settar konur og stúlkur, rétt eins og enn í dag, sem hefur opinberast í átakinu #metoo. En þessi bók er líka um ást, væntumþykju og gæsku. Hún er um fólk í öllum sínum fjölbreyttu lit- um, í henni er skemmtilegt persónugallerí, og líka húmor. Þessi magnaði finnski húmor sem liggur undir niðri. Og Tapio er meistari í því að segja ekki of mikið, en segja samt allt sem segja þarf. Kristín Heiða Kristinsdóttir Úr umsögnum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.