Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar ast réttað árið 1965, þegar Breið- holtið var að byrja að byggjast.“ Vorum reknir úr Hálogalandi Ólafur var ekki nema 13 ára þegar hann byrjaði að halda fé, niðri við Hálogaland í Reykjavík árið 1957. „Við félagi minn byggðum okk- ur lítinn húskofa, með leyfi Lárusar heitins sem þar bjó, en hann var þá að hætta með búskap í Hálogalandi. Hann stakk upp á að við fengjum okkur kindur í þetta litla hús. Það varð úr, og við félagarnir keyptum hvor sína gimbrina sunnan úr Foss- vogi og stofnuðum félagsbú. Við höfðum heilmikið fyrir þessu, þurft- um að sækja hey í poka allan vetur- inn til nágrannabónda í Vogunum. Eftir tvö ár í Hálogalandi vorum við reknir þaðan með kindurnar okkar vegna byggingar Sólheimablokk- anna og fluttum okkur þá á Gelgju- tanga við Elliðaárvog.“ Ólafur hélt áfram sínum fjárbú- skap, einn frá 1961 þegar félagi hans var kominn í hestamennsku, og seg- ist hafa verið með flest fé árið 1966 þegar hann fór utan til náms í búvís- indum. „Þá var ég 22 ára með 40 kindur í gömlu Fjárborg, við Blesugróf. Ég átt til smölunar og því hafi hann ver- ið sendur í útréttir í Þingvallasveit, Ölfusi og Selvogi, enda hafi hann verið sæmilega markglöggur. „Ég á minningar frá síðasta fjárrekstrinum frá Hafravatni niður í Breiðholtsgirðingu. Breiðholts- réttin var heilmikil rétt við Blesu- gróf og þar var gríðarleg réttar- stemning og fjöldi fólks mætti þangað á réttardaginn. Þar var síð- Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Það var mikil samstaða meðalsauðfjárbænda í Kópavogi,og sumir voru líka bændurmeð annan búskap. Gestur í Meltungu var aðalmaðurinn en hann var líka með mjólkurkýr. Einn- ig voru fjárbú á Vatnsenda, í Fífu- hvammi, Smárahvammi, á Gunn- arshólma og Geirlandi. Í Reykjavík voru líka sveitabýli með fé, til dæmis Bústaðir, Hólmur, Reynisvatn, Engi, Ártún, Breiðholt og Gufunes. Þorgeir í Gufunesi var þekktari sem hestamaður og var með stórt kúabú, en hann fór að fjölga fénu um 1960 og var langfjárflestur hér á sjöunda áratugnum. Af þeim 60 árum sem ég hef haldið fé á Stór-Reykjavíkur- svæðinu var ég í 20 ár með fé í Kópa- vogi. Ég er eini maðurinn sem í dag er í báðum félögunum,“ segir Ólafur R. Dýrmundsson sem sent hefur frá sér smáritið Sauðfjárbúskapur í Kópavogi, þar sem hann greinir frá þróun sauðfjárræktar í Kópavogi frá því um miðja 20. öld. „Aðeins eitt sauðfjárbýli er núna í Kópavogi, á Vatnsenda, og ég er eini sauðfjárbóndinn sem eftir er í Reykjavík utan Fjárborgar í Hólms- heiði, en þar eru nú 11 hjarðir.“ Kolgraður brjálaður hrútur „Þetta hafa verið skemmtileg sextíu fjárbúskaparár hjá mér, ég á margar góðar minningar frá þeim og þetta var samfélag fjölbreytts fólks sem hjálpaðist að. Í bókinni minni segi ég nokkrar skemmtilegar sög- ur, til dæmis frá því þegar við flutt- um hrút á Trabant. En ég flutti líka eitt sinn hrút í gömlum strætó hér innanbæjar, neðan úr Múlahverfi í skammdeginu. Félaga minn og mig langaði í mislitt fé, en hrútur þessi var fallega flekkóttur, hyrndur og öflugur. Hann var kolgraður og brjálaður, braut strax alla rimla í jötunni,“ segir Ólafur og hlær að þessu ævintýri frá því hann var 18 ára. „Ég fékk dásamlega falleg lömb að vori, höttótt og bíldótt.“ Ólafur segist enga hesta hafa Síðasti örbóndinn í höfuðborginni Hann var 13 ára þegar hann keypti sína fyrstu kind og fór að halda fé í Reykjavík. Hann hefur verið með fé undanfarin 60 ár og er nú eini sauð- fjárbóndinn sem eftir er í Reykjavík, utan Fjárborgar í Hólmsheiði. Forseti Íslands sæmdi Ólaf Dýrmundsson heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag, fyrir störf á vettvangi íslensks landbúnaðar. Ljósmynd/Alþýðublaðið Fossvallarétt Dýrmundur Ólafsson, faðir Ólafs, dregur hér fé Ólafs sonar síns í Meltungudilkinn, á meðan sonurinn var við doktorsnám í búvísindum í Wales. T.v er Gestur Gunnlaugsson, bóndi í Meltungu, og t.h er Guðrún Jónsdóttir, systir Hansínu sem var einnig með fé í Meltungu. Mynd frá 1970. Ljósmynd/Kópavogsblaðið Fjárbændur í Kópavogi Svanfríður I. Arnkelsdóttir og Arnór A. Guðlaugs- son við fjárhús sín haustið 1970, í hvamminum neðan Digranesvegar. Styggur Geisli er forystublendingur og Ólafur vinnur nú í að spekja hann. Hann er dugnaðarkind sem heimtist seint í haust úr Engidal við Hengil. Hissa Kollóttu kindur Ólafs eru nú flestar Strandafé að ætt. Sú svarta, sem stendur innst, er skapmikil og getur verið mannýg, einkum á sauðburði. Salsakommúnan er hljómsveit sem leikur kröftuga, dansvæna tónlist undir áhrifum frá tónlistarhefðum Suður-Ameríku. Salsakommúnan verður með nýársdansleik í Iðnó í kvöld laugardag kl. 20. Á tónleik- unum mun sveitin leika lög af sinni fyrstu breiðskífu í bland við aðra salsaslagara. Áður en sveitin stígur á svið verður boðið upp á salsadans- kennslu frá Salsa Iceland. Húsið opn- ar kl. 20, salsakennsla hefst kl. 20:30 og síðan stígur Salsakommúnan á svið kl. 21.30. Liðkið nú legg! Endilega … Morgunblaðið/Ómar Salsa Hægt er að dansa úti að sumri. … dansið salsa í Iðnó kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.