Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 29
SEÐLABANKI ÍSLANDS auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er árlega af Seðlabanka Íslands. Tilgangur styrksins er að styðja framtak semmiðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf. Styrkfjárhæðin nemur 3 milljónum króna og verður úthlutað í apríl eða maí 2018. Hugsanlegt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda. Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands eigi síðar en 2. mars 2018. Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð eru að- gengileg á heimasíðu bankans og í afgreiðslu hans á Kalkofnsvegi 1. Nánari upplýsingar veitir Jón Þ. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra. Seðlabanki Íslands · Kalkofnsvegi 1 · 150 Reykjavík · Sími: 569 9600 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 Stór hluti norsku þjóðarinnarsat límdur við skjáinn síð-ustu daga ársins 2017 þeg-ar heimsmeistaramótin í at- skák og hraðskák fóru fram í Riyadh í Sádi-Arabíu, en auk vefmiðlanna var norska sjónvarpið, NRK, með beinar útsendingar frá viðureignum Magnúsar Carlsen. Niðurstaðan: hinn 48 ára gamli Indverji Wisvan- athan Anand varð heimsmeistari í atskák og Magnús Carlsen heims- meistari í hraðskák. Skákin er á mikilli uppleið í sjón- varpi og á netinu. Vandinn hefur verið sá að keppnisgreinin sem slík hefur þótt gera of miklar kröfur til þekkingar áhorfandans og ekki náð að fanga athygli Jóns og Gunnu. Eins og mótin eru matreidd nú til dags með skákskýringum, nær- myndum af keppendum, tímahraki og tölvugreiningu er að verða breyt- ing á. Þegar við bætist hátt verð- launafé eykst athygli stærstu fjöl- miðlanna; 250 þúsund dalir voru í 1. verðlaun í hvoru móti og má geta þess að CNN sýndi langan þátt um mótið. En heimsmeistaramótið beindi einnig athygli að bjánalegum skákreglum og atvik úr viðureign Magnúsar Carlsen í 1. umferð hrað- skákarinnar kallaði á sterk við- brögð: Magnus Carlsen – Inarkiev Síðasti leikur heimsmeistarans var 27. Ha7xb7+. Rússinn Inarkiev sá fram á að staða hans væri töpuð eftir 27. ... Hxb7 28. Bxe8+ og eftir uppskipti á hrókum á hvítur að vinna á umframpeðinu en lék þess í stað ólöglegum leik, 27. ... Re3+. Af mörgu vitlausu regluverki sem kom- ið hefur frá FIDE síðustu árin opnar ein sú vitlausasta á þann möguleika að sá sem leikur ólöglegum leik get- ur unnið skákina; Magnús lék nefni- lega 28. Kd3 og Inarkiev krafðist vinnings á þeirri forsendu að Magn- ús hefði leikið ólöglegum leik! Þótti mörgum býsna lágt lotið en viti menn: dómarinn féllst á að það væri réttmæt krafa! Stuttu síðar var svo farið að rýna í reglurnar og niður- staðan varð sú að skákinni skyldi haldið áfram eftir 27. leik hvíts. Inarkiev neitaði að tefla frekar en dómarinn var settur af og okkar maður í Sádi-Arabíu, alþjóðlegi dómarinn Omar Salama, var settur yfir viðureignir heimsmeistarans. Atvikið virtist slá Magnús Carlsen út af laginu fyrri keppnisdaginn en þann síðari náði hann vopnum sínum og að lokum hlaut hann 16 vinninga af 21 mögulegum. Karjakin og An- and komu næstir með 14½ vinning hvor. Minningarmót um Steinþór Baldursson Skáksamband Íslands og Skák- skóli Íslands hafa samvinnu um al- þjóðlegt mót skipað skákmönnum 20 ára og yngri til að minnast Steinþórs Baldurssonar, stjórnarmanns í SÍ, sem féll frá langt um aldur fram haustið 2016. 24 skákmenn hófu keppni á fimmtudaginn og tefldar verða sjö umferðir með tímamörk- unum 90 30. Eftir fyrstu tvær um- ferðirnar voru fjórir með tvo vinn- inga, þ. á m. Birkir Örn Bárðarson. Hinn 16 ára gamli Aron Thor Mai fékk á sig sjaldséða leið í Najdorf- afbrigði Sikileyjarvarnar en var öll- um hnútum kunnugur: Aron Thor Mai – Ljuten Apol (Færeyjar) Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Rc6 8. Rxc6 bxc6 9. e5 h6 10. Bh4 g5 11. fxg5 Rd5 12. Re4 Db6 13. c3 hxg5 14. Bxg5 dxe5? 15. Dxd5! Be7 15. ... exd5 er svarað með 17. Rf6+ og 18. Rxd5+ sem vinnur drottninguna. 16. Dd2 Bxg5 17. Rxg5 Bb7 18. O- O-O Dc7 19. Bc4 Hf8 20. Hhf1 Bc8 21. Bd3 - og svartur gafst upp. Skákin fangar athygli Jóns og Gunnu Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Magnús Carlsen vann Karjakin í 29 leikjum í 15. umferð HM í hraðskák. Skákdómarinn Omar Salama fylgist grannt með en hann hafði yfirumsjón með borði heimsmeistarans. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á fyrir öll tölvurými og gagnaver Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræsti- kerfi PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Fyrir þig í Lyfj Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi Öflug lausn við hálsból u !gu HUNANGS OG SÍTRÓNU- BRAGÐI APPELSÍNU- BRAGÐ SYKURLAUST Strefen 8,75 mgmunnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.