Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 Ráðstefnan „Þögnin, skömmin og kerfið“ var haldin í Háskólanum í Reykjavík í gær, en þar var fjallað um nauðgun í víðu samhengi. Fjöldi fræðimanna, sálfræðinga og lög- manna og fulltrúa lögreglu fluttu er- indi, ásamt öðrum sem starfað hafa með brotaþolum. „Þarna talar fjöldi fagaðila saman og lýsir sinni sýn á þessu. Ég held að allir fagaðilar græði á því að eiga samtal hver við annan,“ segir Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og al- þingismaður, en hún flutti erindið „Viðhorf og viðmót. Reynsla og sýn réttargæslumanns“ á ráðstefnunni. Sjálf hefur hún verið lögmaður á Neyðarmóttöku Landspítalans í nokkur ár. „Við erum í þeirri stöðu að geta verið í góðum tengslum við alla aðila, hjúkrunarfræðinga, lækna, löggur, af því að við fylgjum brota- þola öll skrefin.“ Helga Vala segir til- ganginn með ráðstefnu eins og þeirri í dag, sé að efla þjónustu við brotaþola. „Tilgangurinn er alltaf að efla þjón- ustuna, að gera málsmeðferðina fag- legri sem á að leiða til þess að fleiri mál sem upplýsist, af því að það er líka forvörn í því.“ Hún telur hlutverk réttargæslu- manns vera fyrst og fremst að gæta hagsmuna brotaþola, en það sé vissu- lega hægt að nýta stöðu réttargæslu- mannsins til að tengja saman þá fag- aðila sem komi að málsmeðferð kynferðisbrotamála. „Réttargæslumaður er lögmaður, alltaf, og hlutverk lögmannsins er að gæta hagsmuna brotaþola í gegnum allt ferlið,“ segir Helga Vala m.a. Að hennar mati er afar mikilvægt að halda vel utan um brotaþola í með- ferð kynferðisbrotamála, ekki síst vegna hversu viðkvæm málin er, en einnig vegna veikrar stöðu brotaþola. „Aðild brotaþola í sakamálum er svo veik af því að brotaþolar eru vitni í eigin málum.“ Helga Vala segir brotaþolann vera á kantinum á meðan ákæruvaldið, það er hið opinbera, lögregla eða sak- sóknari, og ákærði, eða sakborning- ur, eru miðja málsmeðferðar nauðg- unarmála. „Brotaþolinn kemur inn í mál sem vitni sem er mjög sérstakt, hann upplifir sig stundum svolítið hliðsettan þó að málið varði árás á viðkomandi. Það er svolítið skrýtin staða.“ Stofnanir og félagasamtök stóðu að ráðstefnunni Ráðstefnan var haldin á vegum lagadeildar og sálfræðisviðs Háskól- ans í Reykjavík í samstarfi við Rann- sóknamiðstöð gegn ofbeldi við HA, lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, lögreglustjórann á höfuðborgarsvæð- inu og Aflið – Samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi. Ráðstefnan stóð frá kl. 13 til 17 og ráðstefnustjóri var Ólafur Börkur Þorvaldsson, dómari við Hæstarétt Íslands. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR, setti ráðstefnuna og Sigríður Á. And- ersen dómsmálaráðherra flutti ávarp. Á dagskrá voru eftirtalin erindi auk erindis Helgu Völu: „Ég ætlaði ekki að segja neinum frá.“ Hindranir og hvatar til að segja frá sem Bryndís Björk Ásgeirsdóttir dósent og Rann- veig S. Sigurvinsdóttir, nýdoktor við sálfræðisvið HR fluttu. „Ég var köll- uð lygari og fleira þaðan af verra“. Ákvörðun um að kæra nauðgun flutt af Svölu Ísfeld Ólafsdóttur, dósent við lagadeild HR. „Ég vissi að það myndi enginn trúa mér, því ég er karlmað- ur,“ sem Sigrún Sigurðardóttir, lekt- or og formaður Rannsóknamiðstöðv- ar gegn ofbeldi við HA, flutti. „En, hvað ef þetta var mér að kenna?“ flutt af Jokku G. Birnudóttur, starfskonu hjá Aflinu. Erindi um vilja til að mæta þörfum brotaþola var flutt af Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Reynslusaga var flutt rétt fyrir kaffihlé. „Ég missti allan kraft og lamaðist af hræðslu“, viðbrögð við nauðgun var flutt eftir hlé af Svölu Ísfeld Ólafsdóttur og Guðrúnu Katrínu Jóhannesdóttur fé- lagsfræðingi. „Ætti ég að kæra?“Á- skoranir þolenda sem leita á Neyð- armóttöku við ákvörðun um kæru var flutt af Berglindi Guðmundsdóttir, yf- irsálfræðingi sálfræðiþjónustu Land- spítala og dósent við læknadeild HÍ. Jón H.B. Snorrason, saksóknari við embætti ríkissaksóknara, flutti erindið „Pressar lögreglan um of á þolendur að kæra?“ Erindið „Lög- gæsla í þágu þolenda.“ var flutt af Pá- leyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, og síðasta erind- ið: „Trúið þið mér ekki?“ flutti Sigríð- ur Hjaltested héraðsdómari. Í lok málþingsins fóru fram umræður og málþinginu var síðan slitið. Ræddu um þögn og skömm á ráðstefnu í HR  Fagaðilar komu saman og fjölluðu um nauðganir Morgunblaðið/Hari Ráðstefna Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra flutti ávarp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.