Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Sérkenni sveinanna jólasýning á 3. hæð
Guðmundur Ingólfsson – Á eigin vegum í Myndasal og á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudagur 7. janúar: 2 fyrir 1 af aðgangseyri
Jólatré úr safneign Sýning í lestrarsal
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770
Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
ANGE LECCIA - LA MER 2.11. - 4.2.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR - Valin verk úr safneign 7.4.2017 - 31.12.2019
PABLO PICASSO 22.7.2017 - 14.01.2018
Jacqueline með gulan borða (1962) / Jacqueline au ruban jaune (1962)
COMPARATIVE VANDALISM 26.8. - 21.1.2018
- Heimildaljósmyndir úr verkefni Asgers Jorn
Scandinavian Institute of Comparative Vandalism
ORKA 14.9. - 7.1.2018
Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
Safn Ásgríms Jónssonar og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
eru lokuð í desember og janúar.
Söfnin opna aftur 2. febrúar 2018.
Listahátíðin Ferskir vindar verður
sett í dag kl. 14 á Sunnubraut 4 í
Garði af forsetafrú Íslands, Elizu
Reid og verður í kjölfarið haldin
leiðsögn um sýningarsvæðin sem
hefst kl. 15. Alþjóðlegur hópur
listamanna hefur starfað í Garði á
Reykjanesi frá 16. desember í
fyrra og sýnir nú afraksturinn í
margs konar listaverkum. Sýn-
ingar og aðrir viðburðir hátíð-
arinnar standa yfir til og með 14.
janúar.
Hátíðin var fyrst haldin í janúar
árið 2011 en listrænn stjórnandi
hennar er myndlistarkonan Mireya
Samper. Að þessu sinni vinna 50
listamenn af ýmsum þjóðernum í
Garði og fara sýningar og viðburðir
fram víða, m.a. í Garðskagavita,
Gerðaskóla, Útskálahúsi og Sunnu-
braut 4 en dagskrá má finna á vef
hátíðarinnar, fresh-winds.com. Með
Ferskum vindum gefst listamönn-
um úr ólíkum listgreinum tækifæri
á að kynnast landi og þjóð, verða
fyrir áhrifum af náttúrunni og
samfélaginu og skilja eftir sig spor
í formi litsköpunar, eins og Mireya
komst að orði í samtali við Morg-
unblaðið þegar Ferskir vindar voru
haldnir öðru sinni, árið 2012.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hátíðarstjóri Mireya Samper hefur haft veg og vanda af Ferskum vindum
allt frá því listaveislan var fyrst haldin í Garði á Reykjanesi árið 2011.
Listahátíðin Ferskir
vindar hefst í Garði
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Útgáfan figureight Recordstengist Figure 8 hljóð-verinu í Brooklyn, New
York. Þar stýrir Shahzad Ismaily
málum, en hann er Íslandsvinur
mikill og hefur unnið með marg-
víslegum hérlendum tónlistar-
mönnum og koma sumir þeirra við
sögu á plötunni sem er hér til um-
fjöllunar. Nýverið gekk Hildur Mar-
al Hamíðsdóttir til liðs við útgáfuna,
sem framkvæmdastýra, og gefnar
hafa verið út plötur með Indriða,
Gyðu Valtýsdóttur, JFDR og Aaron
Roche. Áhersla er á natni, næmni
Stórra högga á milli
og djúpskilning á milli listamanna
og útgefenda og nær væri að tala
um einhvers konar samvinnufélag
en pýramídalaga rekstur. Segja má
að andi Shahzad Ismaily liggi þarna
yfir, en maðurinn er öðlingur og
höfuðsnillingur.
Úlfur Hansson á, þrátt fyrir til-
tölulega ungan aldur, að baki lang-
an, gifturíkan og æði fjölbreytilegan
feril. Byrjaði í þunga- og harð-
kjarnarokki (lék á bassa í Swords of
Chaos) en hefur svo spilað með fólki
eins og Jónsa og Ólöfu Arnalds,
numið fræði hjá Fred Frith og
Zeenu Parkins, skrifað fyrir Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og Kronos-
kvartettinn og smíðað eigin hljóð-
færi, eins og segulhörpuna og Já-1
hljóðgervilinn. Og fleira, margt
fleira mætti tilgreina.
Úlfur býr nú í Brooklyn og því
voru hæg heimatökin við að rúlla
plötunni inn á band. Úlfur hefur lýst
því að hann sé búinn að vera eins
grár köttur í Figure 8 hljóðverinu,
þó að platan hafi reyndar verið tek-
in upp á fleiri stöðum. Það eru val-
menni mikil sem koma að plötunni,
Randall Dunn upptökustýrir og á
meðal hljóðfæraleikara eru Gyða
Valtýsdóttir, Greg Fox (Liturgy),
Skúli Sverrisson, Zeena Parkins og
Shahzad Ismaily auk Úlfs sjálfs.
Arborescence vísar í marg-
víslegar greinar sem þó spretta af
einum og sama staðnum og þannig
rúllar platan. Hún er fjölbreytt,
»Hún er stutt, sjölög á ca. hálftíma og
þær ólíku hugmyndir
sem hér eru viðraðar
lúta lögmáli skilvirkn-
innar ef svo má segja.
Plötuumslagið Umslag Arbores-
cence prýðir mynd af glöðum Úlfi.
Arborescence er plata
Úlfs Hanssonar, sem
hann gefur út á merk-
inu figureight Records.
Sjö laga verk þar sem
víða er komið við, hljóð-
rænt sem tónrænt.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Okkur þótti tíu ára afmælið ágætis
tímamót til að hugsa um það hvert við
vildum fara með þetta allt saman og
við vorum sammála um það að við
vildum stækka og gera meira,“ segir
Anna Bergljót Thorarensen, einn
stofnandi leikhópsins Lottu og leik-
kona í sýningum hans, en á þessum
tímamótum hefur Lotta nú sýningar
að vetrarlagi og á sviði innandyra.
Lotta hefur haft þá sérstöðu að sýna
verk sín utandyra á sumrin, í Elliða-
árdalnum og víða út um landið, en í
dag, laugardag, frumsýnir Lotta
Galdrakarlinn í Oz í Tjarnarbíói. Og í
framhaldinu segir Anna Bergljót
standa til að leggjast í flakk með sýn-
inguna, fram til vorsins.
Dusta ryk af fyrri sýningum
Undanfarin ellefu sumur hefur
Lotta ferðast með útileiksýningar út
um allt land en á hverju ári hefur
hópurinn sett upp nýjar sýningar
sem hafa notið mikilla vinsælda og
síðan lifað áfram á geislaplötum sem
víða eru til og börn á öllum aldri hafa
notið að hlýða á.
Í tilefni af tíu ára afmælinu segir
Anna Bergljót hafa verið ákveðið að
dusta rykið af fyrri sýningum hópsins
og endurvekja þær innandyra. Byrj-
að er á byrjuninni, Galdrakarlinum í
Oz, sem var fyrsta verkið sem sér-
staklega var skrifað fyrir Lottu og
var frumsýnt í Elliðaárdalnum í maí
2008. Höfundur leikgerðar þessa sí-
gilda verks er Ármann Guðmunds-
son. Það fjallar um ævintýralegt
ferðalag Kansas-stúlkunnar Dórót-
heu og Tótó, hundsins hennar, til
ævintýralandsins Oz. Þar kynnist
hún heilalausu Fuglahræðunni,
hjartalausa Pjáturkarlinum og hug-
lausa Ljóninu auk þess að lenda í
klóm vondu Vestannornarinnar. Vin-
irnir lenda í allskyns hremmingum og
leita á náðir Galdrakarlsins ógurlega í
Oz. Lög og söngtexta sömdu Ármann
Guðmundsson, Baldur Ragnarsson,
Eggert Hilmarsson, Anna Bergljót,
Rósa Ásgeirsdóttir og Snæbjörn
Ragnarsson, leikstjóri er Ágústa
Skúladóttir og leikarar auk Önnu
Bergljótar þau Baldur Ragnarsson,
Huld Óskarsdóttir, Rósa Ásgeirs-
dóttir og Sigsteinn Sigurbergsson.
Lotta færir sig inn
„Já, Galdrakarlinn í Oz var fyrsta
leikritið sem Leikhópurinn Lotta lét
skrifa sérstaklega fyrir sig og við
frumsýndum í Elliðárdalnum vorið
2008, svo að núna á þessi sýning tíu
ára afmæli,“ segir Anna Bergljót. „Af
því tilefni höfum við ákveðið að dusta
af henni rykið og setja hana upp aft-
ur, og færum okkur inn. Það væri fá-
ránlegt að ætla að sýna eitthvað úti í
þessari frosthörku.“ Hún hlær.
„Planið er að endurvekja þessar
gömlu sýningar okkar og lengja leik-
árið, sýna ekki bara á sumrin heldur
færa okkur inn í veturinn líka.“
Hún segir að þegar þau félagarnir í
Lottu hafi rætt hvað þau ættu að gera
á þessum tímamótum, tíu ára afmæl-
Dusta rykið af
Galdrakarlinum
Lotta frumsýnir Galdrakarlinn í Oz í Tjarnarbíói
Ljósmynd/Birta Rán Björgvinsdóttir
Ævintýri Baldur Ragnarsson sem Fuglahræðan, Sigsteinn Sigurbergsson
sem Pjáturkarlinn, Rósa Ásgeirsdóttir sem Dóróthea og Anna Bergljót sem
Ljónið. Hún segir standa til að leggjast í ferðalag um landið með sýninguna.