Morgunblaðið - 07.01.2018, Qupperneq 22
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Á svokölluðum þrettándafundi Sam-
taka atvinnulífsins í gær kallaði
Halldór Benjamín Þorbergsson
framkvæmdastjóri eftir ábyrgum
tóni í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum. Sagði hann að þrátt fyrir að
hagur sveitarfélaga hefði vænkast
aðeins á undanförnum árum hefði
breyttur hagur þeirra ekki verið í
neinum takti við hagsveifluna í land-
inu. Sagði Halldór að skuldir sveitar-
félaga hefðu aukist um tæp 80% á
hvern íbúa frá árinu 2007. Á sama
tíma hefðu almenn skuldahlutföll
verið að þróast í þveröfuga átt. „Í
Reykjavík eru skuldirnar 2,4 millj-
ónir króna á hvern íbúa. Þetta er
ekki sjálfbær þróun,“ sagði Halldór.
Áhyggjur af nýgengi örorku
Hann vék einnig að þróun nýgengi
örorku hér á landi sem hann sagði að
ætti að valda okkur öllum áhyggjum,
enda myndi kerfið á endanum kikna
undan þessu. Hann sagði að lands-
menn þyrftu að átta sig á hvað þyrfti
að gera til að snúa þessari miklu
öfugþróun við, eins og hann orðaði
það. Vitnaði hann í nýjar tölur um
nýgengi örorku, sem fjallað var um í
Morgunblaðinu í vikunni, en þar
kemur fram að nýgengi örorku á
árinu 2017 hafi dregist aðeins saman
frá metárinu 2016. „Þrátt fyrir það
erum við að missa um 1.500 einstak-
linga, með 75% örorkumat eða
meira, á ári. Til samanburðar er
náttúruleg fjölgun Íslendinga á ári
2.000 manns. Sem hlutfall af vinnu-
afli þá er 8,5% af vinnuaflinu með
75% örorku eða meira. Það þarf ekki
að framreikna þetta í mörg ár til að
sjá að þetta er ekki sjálfbær þróun.“
Mannfjöldi hefur fjórfaldast
Á fundinum fór Halldór m.a. yfir
ýmsar hagtölur og vinnumarkaðs-
mál, en rakti einnig í stuttu máli þró-
un íslensks hagkerfis á síðustu 100
árum, í tilefni af því að 1. desember
næstkomandi verða 100 ár frá því
Ísland varð fullvalda ríki.
Halldór sagði að lífskjarabreyt-
ingar hefðu verið miklar á tíma-
bilinu. Mannfjöldinn hafi til dæmis
vaxið fjórfalt, eða úr 90 þúsund upp í
340 þúsund. Fyrir 100 árum hafi
ungbarnadauði verið 46 börn á
hverja 1.000 íbúa, en hann nálgast
það að vera enginn í dag. Þá benti
Halldór á stórauknar lífslíkur al-
mennings, en karlmenn gátu átt von
á því að lifa til fimmtugs árið 1918, en
í dag eru lífslíkur þeirra metnar 80
ár. Konur hinsvegar gátu lifað til
sextugs fyrir 100 árum, en í dag
mega þær eiga von á því að verða 84
ára gamlar.
Atvinnuþátttaka
karla dregst saman
Halldór benti einnig á athyglis-
verða þróun í atvinnuþátttöku
kynjanna, en atvinnuþátttaka karl-
manna hefur dregist saman um 8%
síðan árið 1918. Atvinnuþátttaka
kvenna hefur hinsvegar tvöfaldast,
og farið úr 40% í 80% á síðasta ári.
Miklar breytingar hafa orðið á at-
vinnuháttum hér á landi eins og
Halldór benti einnig á, og til dæmis
var landbúnaður 40% af atvinnu-
starfseminni fyrir 100 árum en er nú
aðeins 1,8%.
Starfsemi hins opinbera hefði
hinsvegar aukist mikið, eða úr 3%
upp í rétt tæplega 20%. Hrósaði
Halldór í þessu samhengi Alþingi
fyrir ný lög um opinber fjármál en í
þeim felist viðleitni til þess að koma
böndum á opinberan rekstur.
Hann fór einnig yfir landsfram-
leiðsluna sem hefur 18 faldast á
tímabilinu frá 1918 til 2018.
Sveitarfélög úr takti
við hagsveifluna
Hagur „Vetur hagræðingar er framundan hjá mjög mörgum fyrirtækjum.“
Hagvöxtur
» Ef viðhalda á 3% hagvexti
án þess að auka skuldsetningu
þyrfti að tvöfalda útflutning á
næstu 20 árum.
» Útflutningur þarf því að
vaxa um 1.000 milljarða króna
á tveimur áratugum.
» Fjöldi Íslendinga hefur átt-
faldast frá því landið varð
frjálst og fullvalda ríki árið
1918, úr því að vera ríflega 91
þúsund í 340 þúsund.
Skuldir hafa aukist um 80% á hvern íbúa frá 2007
Morgunblaðið/Hari
Franska fyrirtækið Lactalis,
stærsti mjólkurvöruframleiðandi í
heimi, hefur keypt Siggi’s skyr,
sem er að mestu í eigu Íslendinga.
Fyrirtækið, sem stofnað var af Sig-
urði Kjartani Hilmarssyni, fram-
leiðir og selur skyr að íslenskri fyr-
irmynd í Bandaríkjunum.
Sigurður mun
sitja áfram sem for-
stjóri Siggi’s skyr og
fyrirtækið verður
rekið sem sjálfstætt
félag í New York.
Stofnandinn hóf að
selja skyr árið 2006 á
útimarkaði í New
York, að því er segir í
tilkynningu Lactalis um
kaupin. Fram kemur í
frétt CNBC að reiknað sé með að
fyrirtækið muni velta um 200 millj-
ónum dollara í ár, jafnvirði 21 millj-
arðs króna. Fram kemur í tilkynn-
ingu að tekjurnar hafi aukist um
50% í fyrra og stefnt sé á að ná
sama árangri í ár.
Skyr fyrirtækisins er á meðal
fimm söluhæstu
vörumerkja í jóg-
úrti og tengdum
vörum í matvöru-
verslunum á borð við
Stop & Shop, Meijer
og Publix. Fyrir
skemmstu varð það
söluhæsta jógúrt-
vörumerkið í Whole
Foods.
helgivifill@mbl.is
Frakkar kaupa
Sigga skyr
Vænta 21 milljarðs króna veltu í ár
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur
véltæknibúnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig
öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr.
og EBITDA 25-40 mkr.
• Þekkt verslun með tölvur, síma og fylgihluti á frábærum stað. Velta
yfir 300 mkr.
• Vel innréttað kaffihús miðsvæðis í Reykjavík. Tækifæri fyrir öfluga
aðila að byggja enn frekar upp.
• Fjölskyldufyrirtæki sem vinnur að hönnun, prentun og framleiðslu
vara og lausna til fyrirtækja. Velta um 70 mkr. og hátt
hagnaðarhlutfall.
• Ráðandi hlutur í yfir 100 herbergja hótelkeðju í miðbæ Reykjavíkur.
Mjög góð og vaxandi velta.
• Sérhæfð fiskvinnsla í vönduðu 350 fm. leiguhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu. Velta um 260 mkr. Hagnaður af rekstri.
• Verslun sem byggir á erlendri skartgripalínu með tvær verslanir í
borginni. Stöðugur rekstur og góð afkoma.
• Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og
sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug
undanfarin ár og jákvæð afkoma.
• Ungt og vaxandi þjónustu- og verslunarfyrirtæki í tæknigeiranum.
Fjögur stöðugildi. Velta er um 85 mkr. á ári og góður hagnaður.
• Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða
dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
6. janúar 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 103.65 104.15 103.9
Sterlingspund 140.53 141.21 140.87
Kanadadalur 82.76 83.24 83.0
Dönsk króna 16.775 16.873 16.824
Norsk króna 12.802 12.878 12.84
Sænsk króna 12.71 12.784 12.747
Svissn. franki 106.22 106.82 106.52
Japanskt jen 0.9204 0.9258 0.9231
SDR 147.88 148.76 148.32
Evra 124.9 125.6 125.25
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.237
Hrávöruverð
Gull 1285.4 ($/únsa)
Ál 2228.0 ($/tonn) LME
Hráolía 67.89 ($/fatið) Brent
● IFS Greining mælir með kaupum á
hlutabréfum Eimskips í verðmati sem
birtist á þriðjudag og Morgunblaðið
hefur undir höndum. Verðmatið er 25%
hærra en markaðsvirði bréfanna var í
gær. Verðmatsgengið er 320 krónur á
hlut. Það lækkar þó um 18% frá fyrra
verðmati vegna þess að EBITDA-
framlegðarhlutfallið hefur dregist sam-
an og vegið meðaltal fjármagnskostn-
aðar hefur hækkað. Á móti vegur að
gengi bréfanna í evrum lækkaði um
30% frá því að síðasta verðmat var birt.
Gengi bréfa Eimskips var 255,75 krónur
á hlut í lok viðskiptadags í gær.
IFS Greining spáir því að EBITDA-
hagnaður félagsins muni aukast um
11% á árinu og að tekjur muni vaxa um
8%. Reiknað er með því að rekstrar-
kostnaður aukist um 6% vegna auk-
innar afkastagetu í flutningum og að
launakostnaður muni aukast um 12%
vegna kjarasamninga á Íslandi en þar er
um helmingur starfsmanna Eimskips.
helgivifill@mbl.is
Eimskip undirverðlagt
um 25% að mati IFS
STUTT
Feier, fjárfestingarfélag Hjörleifs
Jakobssonar og eiginkonu hans,
birtist á hluthafalista VÍS í vikunni
með 1,7% hlut sem metinn er á um
430 milljónir króna. Hjörleifur segir
í samtali við Morgunblaðið að hann
hafi fjárfest í VÍS vor.
Má telja líklegt að hann komi nú
fram á hluthafalista þar sem bréfin
hafi áður verið hýst á safnreikningi.
Gengi hlutabréfa í VÍS hefur
hækkað um 20% frá því í mars.
Hjörleifur segir að nokkru eftir
kaupin á VÍS hafi hann keypt 3,14%
hlut í Kviku.
Hjörleifur er kjölfestufjárfestir í
bílaumboðinu Öskju, Öryggis-
miðstöðinni, Límtré Vírneti, Nesbú-
eggjum og Samskipum með um 20-
50% í hverju félagi. helgivifill@mbl.is
Hjörleifur
með 1,7%
hlut í VÍS
Virði 430 milljóna
til að sjá gengið
eins og það er
núna á
Skannaðu kóðann