Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 27

Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 Þrettándinn Í dag er 13. og síðasti dagur jóla. Þá halda fjallbúar aftur til heimkynna sinna sem oft virðast vera fyrirmyndir bygginga í höfuðborginni. Hari Það er gott að búa og starfa á Íslandi og stöndum við fram- arlega á margan hátt í sam- anburði við önnur lönd. Því má þó ekki gleyma að önnur lönd vinna að umbótum sem bæta lífsgæði fólks og fyrirtækja í þeim löndum þannig að við þurfum stöðugt að bæta okkur til að dragast ekki aft- ur úr. Ísland á í harðri samkeppni við önnur lönd um atvinnu- uppbyggingu og hæft starfsfólk. Við verðum að sjá til þess að á Íslandi séu ávallt hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir fyrirtæki til vaxtar. Þannig byggjum við upp fjölbreytt at- vinnulíf með fjölbreyttum störfum sem aftur leiðir til þess að hér getum við skapað það vel- ferðarríki sem við viljum búa í. Bjartsýn Þegar við göngum til móts við nýtt ár 2018 er ekki hægt annað en að fyllast bjartsýni fyrir Ís- lands hönd. Við höfum nú lifað eitt lengsta hag- vaxtarskeið í sögu þjóðarinnar og hagur lands- manna heilt yfir góður. Kaupmáttur sjaldan verið meiri og góður gangur í efnahagslífinu. Við megum þó ekki sofna á verðinum og halda að hér getum við tryggt bestu skilyrði án þess að hlúa að styrkleikum okkar. Samtök iðnað- arins leggja í þessu skyni áherslu á bætta sam- keppnishæfni landsins og hafa talað fyrir um- bótum í menntamálum og nýsköpun, uppbyggingu innviða landsins og bætt starfs- umhverfi fyrirtækja. Atvinnulífið þarf á vel menntuðu og hæfu starfsfólki að halda. Gríðarleg eftirspurn er eft- ir fólki með iðn-, verk- og tæknimenntun. Ef okkur tekst ekki að laða fleira fólk í iðngreinar mun samkeppnishæfni okkar skerðast verulega og hætta á að við drögumst aftur úr, verðmæta- sköpun verði minni og lífsgæði ekki þau sömu og ella gæti orðið. Er það von mín að nú sé að hefjast sókn með aukinni umræðu um þessi mál, ekki síst í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Sonur minn kaus að fara úr hefðbundnu bók- námi í menntaskóla yfir í iðnnám og hefur aldrei séð eftir því. Hann hefur getað valið úr marg- víslegum spennandi og vel launuðum störfum frá því hann hóf nám við Tækniskóla Íslands. Það sama á við um félaga hans úr skólanum. Allir sinna þeir spennandi og áhugaverðum störfum. Okkar eigin fordómar eru mesta hindrunin gagnvart iðnnámi og því þarf nauð- synlega að breyta. Við höfum á síðustu áratug- um leyft okkur að líta þannig á iðnnám að það sé með einhverjum hætti óæðra öðru námi. Því hafna ég algerlega. Nýtum breytingar til góðs Mannkynið stendur frammi fyrir einni mestri tæknibyltingu frá örófi þar sem fjórða iðnbylt- ingin er staðreynd. Aukin sjálfvirkni og stafræn tækni hefur áhrif á daglegt líf okkar allra og breytir öllum framleiðsluaðferðum. Með þess- um öru breytingum mun tæknin leysa margt af hólmi og störf munu hverfa, á sama tíma og ný skapast. Aðalatriðið er að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem felast í þeim breytingum sem eru að eiga sér stað til að auka skilvirkni og lækka kostnað. Þau fyrirtæki sem ekki mun takast að tileinka sér nýjar framleiðsluaðferðir munu eiga undir högg að sækja. Það ber að fagna mörgum áherslum nýrrar ríkisstjórnar, ekki hvað síst loforði þeirra um af- nám þaks á endurgreiðslu rann- sóknar- og þróunarkostnaðar fyr- irtækja. Staðreynd mála er sú að nýsköpun á sér stað innan flestra fyrirtækja, ekki síst rótgróinna iðnfyrirtækja. Þessi aðgerð mun losa krafta úr læðingi um leið og hún kemur til framkvæmda enda hafa slíkir hvatar þegar sannað gildi sitt bæði hér á landi sem og erlendis. Eins er vert að minna á nauð- syn þess að lækka tryggingargjald fyrirtækja eins og stjórnvöld raunar lofuðu að gera fyrir um tveimur árum síðan. Þar með geta fyrirtæki ráðið fleiri starfsmenn eða greitt hærri laun og verðmætasköpunin verður áþreifanleg. Samkeppnishæfni Íslands er háð traustum og öruggum innviðum, ekki síst samgöngum og framboði raforku um land allt. Vegakerfi lands- ins er víða í hörmulegu ásigkomulagi. Samtök iðnaðarins kynntu nýlega skýrslu um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi og var það fyrsta heildstæða úttektin sem birt hefur verið. Þar kom fram hrópandi þörf fyrir innviða- uppbyggingu á ýmsum sviðum, ekki hvað síst í vegamálum, dreifikerfi raforku, fráveitum og fasteignum hins opinbera. Aðgerða er þörf og nú er að skapast svigrúm til framkvæmda eftir því sem dregur úr hagvexti. Heilbrigt atvinnulíf forsenda góðra lífskjara Gott og heilbrigt atvinnulíf er forsenda góðra lífskjara. Samstarf atvinnurekenda og launþega þarf að vera gott. Það eru blikur á lofti varðandi endurskoðun kjarasamninga. Það er einlæg von mín að okkur takist að viðhalda þeim góða kaupmætti sem tekist hefur að skapa hér á und- anförnum misserum. Það er eitt af stóru verk- efnum nýs árs og raunar forsenda þess að leggja grunn að frekari stöðugleika. Stjórnvöld hafa hins vegar ekki gengið á undan með góðu fordæmi og endurskoðun á hlutverki kjararáðs blasir við á árinu. Hjá Samtökum iðnaðarins tökum við fagn- andi á móti nýju ári með öllum þeim áskorunum sem árið mun færa okkur. Samtökin hafa sjald- an verið öflugri og metnaður stjórnar og starfs- manna mikill fyrir öflugri iðnaði, umbótum sem bæta hag fólks og fyrirtækja og tryggja það að Ísland verði í fremstu röð. Eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur » Við verðum að sjá til þess að á Íslandi séu ávallt hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir fyrirtæki til vaxtar. Guðrún Hafsteinsdóttir Höfundur er formaður Samtaka iðnaðarins. Ísland í fremstu röð Öflugt menntakerfi er forsenda framfara og leggur grunninn að áframhaldandi velsæld þjóð- arinnar. Í sáttmála ríkisstjórn- arinnar er boðað til stórsóknar í menntamálum þar sem skapandi og gagnrýnin hugsun, læsi og þátttaka í lýðræðissamfélagi verður áfram undirstaða íslenska skólakerfisins. Í fjárlögum þessa árs má sjá skýr merki þess að sóknin sé hafin og munu nem- endur og starfsfólk skólanna verða vör við á komandi misserum. Yfir 4 milljarða hækkun milli ára Fjárveitingar til framhalds- og háskólastigs- ins hækka um tæpa 4,2 milljarða króna miðað við fjárlög 2017 eða um 5,8%. Það er veruleg og kærkomin innspýting í báða málaflokka. Aukin framlög til menntamála bæta samkeppnishæfni þjóðarinnar til lengri tíma litið og styðja við uppbyggingu fjölbreyttara hagkerfis. Ísland er auðlindadrifið hagkerfi og því er mikilvægt að renna fleiri stoðum undir það, stoðum sem byggjast á hugviti og nýsköpun. Nýsköpun á sér stað í öllum atvinnugreinum og er drifin áfram af færni, þekkingu og getu til þess að þróa nýjar hugmyndir og hrinda þeim í fram- kvæmd. Skólakerfið þarf að taka mið af þessu og undirbúa nemendur fyrir að leysa flókin við- fangsefni. Þannig gerum við Ísland að gildandi þátttakanda í þeirri tækniþróun sem á sér stað um heim allan og hefur áhrif á daglegt líf fólks. Tökum á brotthvarfi Um 18.000 nemendur stunda nám við rúm- lega 30 framhaldsskóla um land allt. Rík- isstjórnin vill tryggja framhaldsskólum frelsi og fjármagn til eigin stefnumótunar innan ramma framhaldsskólalaga. Framlög til þess- ara stofnana hækka um 1.290 milljónir króna miðað við fjárlög 2017, eða 4,4%. Okkur er full alvara með því að efla framhaldsskólastigið og með auknum fjárveitingum er lögð meiri áhersla á að ná markmiðum um fjármögnun framhaldsskólastigins og takast á við þær áskoranir sem helst er við að etja eins og brott- hvarf úr námi. Þannig rennur aukningin að stórum hluta í að auka þjónustu við nemendur sem búa yfir lítilli hæfni í íslensku og stærð- fræði við lok grunnskóla og til þess að hækka hlutfall þeirra sem ljúka námi til stúdentsprófs á tilsettum tíma í 60% á árinu 2018. Í mennta- og menningarmálaráðuneytinu er þegar hafin vinna við kortlagningu framhaldsskólakerfisins og ítarlega greiningu á stöðu og þróun fram- haldsskólanna. Þá verður unnin aðgerð- aráætlun til að sporna enn frekar gegn brott- hvarfi. Öflugra háskólastig Hver króna sem sett er í háskólastigið skilar sér áttfalt til baka. Því leggur ríkisstjórnin mikla áherslu á að efla háskólastigið og að fjár- mögnun þess nái meðaltali OECD-ríkjanna fyr- ir árið 2020 og Norðurlandanna árið 2025 í sam- ræmi við áætlanir vísinda- og tækniráðs. Mikilvægt skref í þessa átt er stigið í fjárlögum árs- ins 2018 þar sem framlög til há- skólastigsins eru aukin um tæpa 2,9 milljarða eða 6,9% miðað við fjárlög 2017. Með þessari hækkun er ætlunin að efla bæði kennslu og rannsóknir svo bæta megi þjón- ustu við nemendur og styrkja al- þjóðlegt samstarf. Ég get glöð tekið undir það sem kom fram í bókun háskólaráðs Háskóla Ís- lands um að hér sé stigið áþreif- anlegt skref í átt að sambærilegri fjármögnun Háskóla Íslands og háskóla annars staðar á Norðurlöndum. Þannig er stuðlað að því að háskólar á Íslandi standi jafnfætis ná- grannaríkjunum að gæðum háskólamenntunar og rannsókna. Framlög til rannsókna eru ein- mitt aukin með 136 m.kr hækkun til rannsókn- arstofnanna á háskólastigi eða 11,8%, með 390 m.kr aukningu í Aldarafmælissjóð Háskóla Ís- lands en það jafngildir tæplega 56% hækkun. Markmið með þeim sjóði er að efla rannsóknir og nýsköpun sem munu efla atvinnulífið og auka verðmætasköpun fyrir þjóðarbúið. Listaháskólinn kominn á dagskrá Liður í því að styðja við hugverkadrifið og skapandi hagkerfi er að hlúa að listum og öðr- um skapandi greinum. Listaháskóli Íslands gegnir mikilvægu hlutverki í að varða þá leið og mennta nemendur í listskapandi greinum. Á þessu ári munu framlög til skólans hækka um tæpar 73 m.kr eða 6,7%. Er hækkuninni m.a. ætlað að efla rannsóknarstarf við skólann og koma til móts við bráðavanda skólans í húsnæð- ismálum. Að auki verður 30 m.kr varið til þarfa- greiningar og hönnunarsamkeppni um nýtt hús fyrir Listaháskólann. Í dag er skólinn í fimm mismunandi byggingum í borginni og er ástand þeirra misgott. Það er því ánægjulegt en ekki síður mikilvægt að unnið sé að varanlegri lausn sem mun efla skólann til framtíðar. Stórsókn í menntamálum Ríkisstjórnin hefur hafið stórsókn í mennta- málum líkt og ofangreind yfirferð sýnir svart á hvítu. Á yfirstandandi kjörtímabili verða fleiri skref stigin til þess að efla menntun í landinu. Þessi vinna mun skila sér í öflugra samfélagi og betri lífskjörum fyrir þjóðina. Ég hlakka því til að leiða þá vinnu í samstarfi við hagsmunaaðila menntakerfisins. Tækifærin eru fjölmörg, það er okkar að nýta þau. » Á yfirstandandi kjör- tímabili verða fleiri skref stigin til þess að efla menntun í landinu. Þessi vinna mun skila sér í öflugra samfélagi og betri lífskjörum fyrir þjóðina. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningarmálaráð- herra. liljaalf@gmail.com Menntun í öndvegi Eftir Lilja Dögg Alfreðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.