Morgunblaðið - 10.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2018
Bergþór Ólason,þingmaður
Miðflokksins, skrif-
aði athyglisverðan
pistil hér í blaðið í
gær þar sem hann
benti á að skatta-
hækkanir væru
framkvæmdar strax en að skatta-
lækkanir eða það sem koma mætti
á móti skattahækkununum fengi að
bíða.
Nefndi hann fjármagnstekju-skatt sem dæmi, þar sem
skatthlutfallið væri hækkað en beð-
ið með að útfæra gjaldstofninn,
þannig að raunávöxtunin ein yrði
skattlögð. Niðurstaðan væri hærri
skattlagning.
Þá nefndi Bergþór að talað værium að skattar mættu ekki
lækka í uppsveiflu og spurði hvort
þau rök mæltu þá ekki með niður-
skurði ríkisútgjalda. „Ef eyðsla
almennings er hættuleg fyrir efna-
hagslífið, er eyðsla ríkisins eitthvað
betri?“
Hann benti á að stjórnmálamennhrósuðu sér af útgjaldaaukn-
ingu í innviði, sem þurfi að efla, en
spurði hvað væri þá með skatt-
greiðendur. „Eru þeir ekki mestu
innviðirnir? Er ekki ástæða til að
efla þá með myndarlegum skatta-
lækkunum?“ spurði þingmaðurinn.
Þetta er ábending sem á mikinnrétt á sér. Stjórnmálmenn
gleyma því iðulega þegar þeir kom-
ast í aðstöðu til að leggja á skatta
að þeir eiga að huga að hags-
munum skattgreiðenda.
Skattgreiðendur, með öðrumorðum almenningur, eiga rétt
á að halda sem mestu af því sem
þeir afla í eigin vösum. Algengar
afsakanir um efnahagslegt góðæri
eða hallæri koma því ekkert við.
Bergþór Ólason
Skattgreiðendur
skipta líka máli
STAKSTEINAR
Guðlaugur Þór Þórðarson, settur
dómsmálaráðherra, skipaði í gær
átta héraðsdómara sem taldir voru
hæfastir samkvæmt mati dómnefnd-
ar sem fjallar um hæfni umsækjenda
um dómaraembætti á grundvelli
dómstólalaga, að því er fram kom í
tilkynningu. Skipuð voru: Arnar Þór
Jónsson, Ásgerður Ragnarsdóttir,
Ástráður Haraldsson, Bergþóra
Ingólfsdóttir, Daði Kristjánsson,
Helgi Sigurðsson, Ingiríður Lúð-
víksdóttir og Pétur Dam Leifsson.
Að lokinni skipun í embættin rit-
aði settur dómsmálaráðherra bréf og
kom með því á framfæri við dóms-
málaráðherra athugasemdum um
verklag og reglur um veitingu dóm-
araembætta. Dómsmálaráðherra
hefur lýst opinberlega yfir vilja sín-
um til þess að endurskoða þær regl-
ur. Var bréfið jafnframt sent alls-
herjar- og menntamálanefnd
Alþingis. Í bréfinu segir Guðlaugur
Þór m.a. að þrátt fyrir að hann hafi
tvívegis sent tölvupósta til starfs-
manns nefndarinnar hafi nefndin lát-
ið líða hjá að svara veigamiklum at-
hugasemdum og spurningum
ráðherra. „Settur ráðherra er til að
mynda enn engu nær um innbyrðis
vægi þeirra sjónarmiða sem lágu til
grundvallar mati nefndarinnar,“
segir hann. Þá hafi nefndin ekki út-
skýrt hvernig hið svokallaða „heild-
stæða mat“ hennar fór fram.
Átta nýir héraðsdómarar skipaðir
Ráðherra gagnrýnir vinnubrögð dómnefndar og telur breytingar nauðsynlegar
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Mikið álag er um þessar mundir á
Landspítalanum en fjöldi sjúklinga
hefur leitað til spítalans síðustu daga
vegna inflúensutilvika og slysa. „Það
er árstíðabundin uppsveifla í starf-
seminni sem við þekkjum alveg. Til
viðbótar við mikla inflúensu eru aðr-
ar pestir að ganga sömuleiðis. Síðan
hefur það mikil áhrif á starfsemina
hjá okkur að það hafa mjög margir
komið hingað með brot og ákomur
vegna alls kyns hálkuslysa,“ segir
Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoð-
armaður forstjóra Landspítalans.
Hún bendir jafnframt á að flensan
herjar einnig á starfsfólk spítalans
sem er nú þegar undirmannaður.
„Á sama tíma og við erum að
glíma við skort á starfsfólki sér-
staklega hjúkrunarfræðingum og
þurfum við því að loka rýmum. Þetta
er svona keðja og hún er aldrei
sterkari en veikasti hlekkurinn“.
Starfa náið með heilsugæslum
Anna beinir því til fólks að leita al-
mennt til heilsugæslunnar fyrst ef
erindið er ekki áríðandi.
„Við beinum því almennt til fólks
að ef það telur sig geta nýtt þjónustu
heilsugæslunnar og læknavaktar-
innar að fara þangað fyrst. Að sama
skapi ef það áríðandi ef fólk telur sig
alvarlega veikt að það komi hingað.
Það er bæði þannig að við sendum á
heilsugæsluna í forskoðanir og
sömuleiðis sendir heilsugæslan fólk
til okkar. Þetta er náin samvinna“.
Anna segir fólk almennt fara eftir
þeim tilmælum að leita fyrst til
heilsugæslunnar en álagið þar hefur
einnig aukist. „Það er áríðandi að
fólk leiti læknisaðstoðar ef það telur
sig þurfa þess. Það á ekki að draga
það ef það telur gagn í að leita á
heilsugæsluna og ef það telur sig al-
varlega veikt, þá kemur það hingað.“
Aukið álag á
Landspítalanum
Mikið um inflúensutilvik og hálkuslys
Morgunblaðið/Ómar
Spítali Árstíðabundni flensufarald-
urinn er ögn meiri í ár en áður.
HVAÐ HENTAR
ÞÍNU STARFSFÓLKI?
Hjá okkur færðu ljúffengan mat
úr fyrsta flokks hráefni.
• Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti.
• llmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum.
• Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi.
• Brakandi fersk salöt og ávexti.
• Við komum til móts við ykkar óskir
kryddogkaviar.is
kryddogkaviar@kryddogkaviar.is
Sími 515 0702 og 515 0701
Veður víða um heim 9.1., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 6 alskýjað
Akureyri 8 skýjað
Nuuk -6 snjóél
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló -3 þoka
Kaupmannahöfn 3 heiðskírt
Stokkhólmur -2 heiðskírt
Helsinki 0 heiðskírt
Lúxemborg 6 heiðskírt
Brussel 4 skýjað
Dublin 7 súld
Glasgow 3 skýjað
London 5 þoka
París 7 súld
Amsterdam 3 þoka
Hamborg 3 heiðskírt
Berlín 4 heiðskírt
Vín 6 skýjað
Moskva -5 heiðskírt
Algarve 14 rigning
Madríd 3 rigning
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 14 léttskýjað
Róm 13 rigning
Aþena 12 skýjað
Winnipeg -6 skýjað
Montreal 0 snjókoma
New York 4 heiðskírt
Chicago -1 þoka
Orlando 21 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:06 16:06
ÍSAFJÖRÐUR 11:41 15:40
SIGLUFJÖRÐUR 11:26 15:22
DJÚPIVOGUR 10:43 15:28