Morgunblaðið - 10.01.2018, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2018
Íslensk kvikmynd trónir á toppi lista
yfir þær kvikmyndir sem mestum
miðasölutekjum skiluðu kvikmynda-
húsum hér á landi á árinu 2017, líkt
og árið 2016. Í fyrra var það kvik-
mynd leikstjórans Óskars Þórs Ax-
elssonar, Ég man þig, en árið 2016
Eiðurinn eftir Baltasar Kormák.
Miðasölutekjur af Eiðnum voru tæp-
ar 64 milljónir króna og fjöldi seldra
miða um 47 þúsund en Ég man þig
gerði gott betur því miðasölutekjur
af henni voru 76,6 milljónir kr. og
fjöldi seldra miða 47.368, að því er
kemur fram í tilkynningu frá
FRÍSK, Félagi rétthafa í sjónvarpi
og kvikmyndum.
Flestir sáu Stjörnustríð
Athygli vekur að sú kvikmynd
sem aflaði næstmestra miðasölu-
tekna í fyrra er einnig íslensk, Undir
trénu eftir leikstjórann Hafstein
Gunnar Sigurðsson. Tekjur af henni
námu 67,7 milljónum króna og seldir
miðar voru 42.427 talsins. Samanlagt
skiluðu þessar tvær íslensku kvik-
myndir því um 144,3 milljónum
króna í miðasölu og hefur það aldrei
gerst áður að íslenskar kvikmyndir
séu í tveimur efstu sætum þessa ár-
lega lista frá því mælingar hófust, að
því er fram kemur í tilkynningunni.
Hafa ber í huga að miðaverð er
hærra á íslenskar kvikmyndir og því
skiluðu þær meiru í miðasölukassa
bíóhúsanna en nýjasta Stjörnu-
stríðsmyndin, Star Wars: The Last
Jedi, þótt mun fleiri miðar hafi verið
seldir á hana. Tekjur af henni námu
67,5 millj.kr. en seldir miðar voru
50.645 og er kvikmyndin sú eina á
árinu 2017 sem rauf 50 þúsund miða
múrinn.
Aðsókn minni
Heildartekjur af miðasölu á allar
kvikmyndir sem sýndar voru í ís-
lenskum kvikmyndahúsum í fyrra
voru 1.688.453.577 kr. og segir í til-
kynningu FRÍSK að þær séu á pari
við tekjur ársins 2016 sem voru
1.689.720.455 kr. Aðsókn hafi dregist
saman um 3,4% milli ára og jafngildi
því að hver Íslendingur hafi farið
rúmlega fjórum sinnum í kvik-
myndahús á árinu öllu.
Hlutfall íslenskra kvikmynda af
miðasölutekjum var 11,22% í fyrra
en 6,6% árið 2016. Samtals voru 17
íslenskar kvikmyndir og heimild-
armyndir sýndar 2017, tveimur fleiri
en árið á undan. Vinsælasta íslenska
heimildarmyndin á árinu var myndin
um Reyni sterka, sem rúmlega 2.200
manns sáu.
Bandarískar 85%
Bandarískar kvikmyndir áttu 85%
af markaðnum sé horft til tekna en
87% sé horft til aðsóknar, segir í til-
kynningunni og að það sé ögn lægra
hlutfall en árið 2016 en þá voru
bandarískar kvikmyndir með um
90% af markaðnum. Eins og sjá má
af töflunni hér fyrir neðan voru þrjár
af 20 vinsælustu kvikmyndum ársins
íslenskar en hinar 17 eru úr smiðju
bandarísku kvikmyndastúdíóanna,
eins og það er orðað í tilkynning-
unni. Þar segir einnig að stórfyr-
irtækið Disney hafi gert það gott hér
á landi þar sem kvikmyndirnar sem
sitja í 3. til 6. sæti listans séu afurðir
þess. Erlendar kvikmyndir frá öðr-
um löndum en Bandaríkjunum hafi
því átt 3,4% af markaðnum þegar lit-
ið sé til miðasölutekna.
172 kvikmyndir sýndar 2017
Alls voru 172 kvikmyndir teknar
til sýningar í kvikmyndahúsum á
síðsta ári, samkvæmt tilkynning-
unni, sjö myndum færra en árin 2015
og 2016. Samkvæmt svari FRÍSK
við fyrirspurn blaðamanns eru kvik-
myndir sem sýndar voru á sér-
stökum kvikmyndahátíðum í tak-
markaðan tíma almennt ekki inni í
þessum tölum.
Að lokum skal þess getið að í til-
kynningunni segir að vinsældir kvik-
mynda séu metnar út frá miðasölu-
tekjum en ekki aðsókn. „Þetta er
gert svo að hlutfall boðsmiða eða af-
sláttarmiða í umferð hafi ekki áhrif á
vinsældir kvikmynda,“ segir þar.
helgisnaer@mbl.is
Vel sótt Úr kvikmyndinni Ég man þig sem frumsýnd var í maí í fyrra.
Tvær íslenskar á
toppnum í fyrsta sinn
Miðasölutekjur
af Ég man þig um
76,6 milljónir kr.
Miðasölutekjur kvikmyndahúsanna og aðsóknartölur
Nr. Kvikmynd Miðasölutekjur Aðsókn
1 Ég man þig 76.591.704 kr. 47.368
2 Undir trénu* 67.736.250 kr. 42.427
3 Star Wars: The Last Jedi* 67.546.351 kr. 50.645
4 Thor: Ragnarok* 49.740.365 kr. 38.039
5 Guardians of the Galaxy - Vol. 2 48.257.615 kr. 36.961
6 Beauty and the Beast (2017) 47.232.358 kr. 38.552
7 Despicable Me 3 (Aulinn ég 3) 46.971.174 kr. 44.009
8 Fast and Furious 8 (The Fate of the furious) 36.608.463 kr. 29.256
9 Dunkirk 35.975.196 kr. 28.074
10 Spider-man: Homecoming (2017) 35.375.104 kr. 27.250
11 Hjartasteinn 34.440.662 kr. 22.684
12 Wonder Woman 33.737.593 kr. 25.799
13 Pirates of the Caribbean – Salazar’s Revenge 32.952.662 kr. 25.495
14 La La Land 32.695.466 kr. 25.913
15 IT (2017) 32.642.023 kr. 24.766
16 Kingsman: The Golden Circle (2017) 29.273.597 kr. 22.942
17 Logan 29.088.190 kr. 22.394
18 Justice League+ 28.629.380 kr. 21.393
19 The Lego Batman Movie 28.547.463 kr. 27.443
20 Baywatch 28.054.448 kr. 22.805
Vinsælustu kvikmyndirnar 2017
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari kemur fram á tónleikum í
Hljóðbergi, sal menningarsetursins
Hannesarholts við Grundarstíg, í
kvöld klukkan 20.
Í frétt um tónleikana á síðu
Hannsarholts segir: „Víkingur gef-
ur Hannesarholti vinnu sína og vill
með því stuðla að því að Hannesar-
holt lifi áfram. Sjálfseignarstofn-
unin hefur starfað í tæp fimm ár
með dyggum stuðningi stofnenda
en til að Hannesarholt eigi framtíð
þarf að koma til breiðari stuðn-
ingur frá samfélaginu.“
Á efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir Philip Glass og J.S. Bach. Vík-
ingur hugðist hljóðrita nú í janúar
verk eftir Bach, meðal annars í eig-
in umritun, til útgáfu á öðrum diski
sínum hjá hinni virtu útgáfu
Deutsche Grammophon. Hann hef-
ur nú frestað upptökum um nokkr-
ar vikur og hyggst leika verkin á
nokkrum tónleikum þangað til.
Uppselt er á tónleikana í Hann-
esarholti í kvöld.
Víkingur Heiðar styrkir Hannesarholt
Morgunblaðið/Einar Falur
Styrktartónleikar Víkingur Heiðar
við flygilinn í Hljóðbergi.
Bragð af
vináttu
• Hágæða gæludýrafóður
framleitt í Þýskalandi
• Bragðgott og auðmeltanlegt
• Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna
Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi.
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 7.50, 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8, 10.15 Sýnd kl. 5.30
Sýnd kl. 5.30, 10.30