Morgunblaðið - 23.02.2018, Side 16

Morgunblaðið - 23.02.2018, Side 16
Telja að Seðlabankinn geti orðið valdur að næstu kreppu Sigurður Nordal sn@mbl.is Með því að hindra innflæði fjár- magns og þar með áhrif peninga- stefnunnar á gengi krónunnar, gæti Seðlabanki Íslands þurft að þvinga fram samdrátt í innlendri starfsemi til þess að ná tökum á verðbólgunni. Mislesi bankinn stöðuna gætu að- gerðir hans valdið enn frekari sam- drætti í efnahagslífinu og meiri lækkun á eignaverði en markmiðið var í upphafi. Þetta er mat hagfræð- inga breska hagrannsóknarfyrir- tækisins Capital Economics, sem í fyrradag gaf út greiningarskýrslu um stöðu og horfur í efnahagsmálum á Íslandi undir yfirskriftinni: Hvað fór vel og hvað gæti farið illa? (What went right and what might go wrong?) Skýrsluhöfundar líta almennt afar jákvæðum augum á þróun mála hér á landi eftir bankahrunið og stöðu efnahagsmála um þessar mundir. Þeir benda meðal annars á að það séu engin greinileg teikn um að efna- hagslegur óstöðugleiki kunni að valda erfiðleikum á ný. Þvert á móti sé afgangur á viðskiptum við útlönd og í fyrsta sinn í sögunni séu eignir Íslendinga erlendis meiri en útlend- inga á Íslandi. Þá hafi skuldir heim- ila, fyrirtækja og hins opinbera minnkað niður fyrir það sem þær voru fyrir efnahagshrun og virðist nú vera vel viðráðanlegar. Kjarasamningar skapa hættu Sérfræðingar Capital Economics telja hins vegar að helsta hættan sem steðjar að efnahagsþróun hér á landi séu kjarasamningar sem myndu valda launahækkunum um- fram framleiðnivöxt. Framlengi fyrirtæki svo aukinn launakostnað áfram til viðskiptavina muni verð- bólga rjúka upp. Í kjölfarið þyrfti Seðlabankinn væntanlega að hækka vexti verulega. Skýrsluhöfundar benda á að Seðlabankinn hafi verið í slíkri stöðu á árunum 2004 til 2007 og hækkaði þá stýrivexti sína úr 5,2% í 13,3%. Hærri vextir drifu þá áfram innflæði fjármagns sem olli frekari styrkingu krónunnar. Það átti sinn þátt í að halda verðbólgu í skefjum þar sem verð á innfluttum vörum hækkaði minna en ella. 40% bindiskylda Þær breytingar sem gerðar hafa verið á regluverki síðan þá muni væntanlega ekki leiða til sambæri- legrar þróunar við slíkar aðstæður, að mati skýrsluhöfunda. Eftir inn- leiðingu innflæðishaftanna eru erlendir fjárfestar skyldaðir til þess að leggja 40% af fjárfestingu sinni inn á vaxtalausan innstæðureikning til eins árs, sem eins og fyrr segir hindrar flæði fjármagns inn í landið og dregur þar með úr áhrifum pen- ingastefnunnar á gengisþróun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Krónan Innflæðishöft draga úr áhrifum peningastefnunnar á gengisþróun.  Innflæðishöft geta haft neikvæðar afleiðingar fyrir hagvöxt að mati Capital Economics 16 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Breska sjóðastýringarfyrirtækið Lansdowne Partners flaggaði í Kauphöll Íslands í gær 11,3% hlut í Fjarskiptum, eða Vodafone á Íslandi, í gegnum sjóð sinn Lansdowne European Structural Recovery Fund. Sjóðurinn tvöfaldaði eign sína í Fjarskiptum í viðskiptum sem fóru yfir 10% mörkin í fyrradag. Engin viðskipti voru í Kauphöllinni með hluti í Fjarskiptum í gær, fimmtudag. Lansdowne flaggar yfir 10% hlut í Vodafone 23. febrúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 100.34 100.82 100.58 Sterlingspund 139.84 140.52 140.18 Kanadadalur 79.19 79.65 79.42 Dönsk króna 16.587 16.685 16.636 Norsk króna 12.77 12.846 12.808 Sænsk króna 12.38 12.452 12.416 Svissn. franki 106.98 107.58 107.28 Japanskt jen 0.9328 0.9382 0.9355 SDR 145.36 146.22 145.79 Evra 123.53 124.23 123.88 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.5238 Hrávöruverð Gull 1323.5 ($/únsa) Ál 2189.5 ($/tonn) LME Hráolía 65.05 ($/fatið) Brent ● Fermetraverð í Miðbæ Reykjavíkur er að meðaltali 40% hærra en gengur og gerist í Hafnarfirði, Breið- holti og Árbæ, mið- að við fyrstu níu mánuði síðasta árs. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka. Helst eru það Vesturbær og Seltjarnarnes sem eiga roð í Miðbæinn. Arion banki bendir hins vegar á að miðborgarálagið hafi í flestum tilfellum lækkað að undanförnu, sem þýði að úthverfin hafa hækkað hraðar í verði en miðborgarkjarninn. Það bendi til að ákveðin mettun hafi orðið í Miðbænum þar sem verðið var orðið verulega hátt, og hækkunarþrýsting- urinn hafi færst lengra út á jaðarsvæðin. Miðborgarálagið hefur lækkað að undanförnu Íbúðir Útverfi hafa hækkað hraðar. STUTT Hrein jógúrt Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt! Engin aukefni Meira af Omega-3 fitusýrum Meira er af CLA fitusýrum em byggja upp vöðva g bein kkert undanrennuduft n manngerðra ansfitusýra biobu.is - Lífrænar mjólkurvörur • • • s o • E • Á tr Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Hagnaður Eimskips nam 16,8 millj- ónum evra á síðasta ári, jafngildi lið- lega 2 milljarða króna á núverandi gengi, samanborið við 21,9 milljóna evra hagnað 2016. Neikvæð breyting á gengismun á milli ára að fjárhæð 5,8 milljónir evra hafði mest áhrif, að því er fram kemur í afkomutilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 57,2 milljónum evra og jókst um 7,0% milli ára. Tekjur Eimskips á síðasta ári námu samtals 664,0 milljónum evra, jafngildi 82,5 milljarða króna, og hækkuðu þær um 150 milljónir evra eða 29,2% frá árinu 2016. Í áætlunar- siglingum jókst magn um 4% og hækkuðu tekjur af þeim um 58 millj- ónir evra eða 15%. Í flutningsmiðlun jókst magnið um 41% og hækkuðu tekjurnar um 92 milljónir evra eða 69%. Þar af voru 73,2 milljónir evra vegna nýrra fyrirtækja. Eiginfjárhlutfall Eimskips var 53,2% í árslok og námu nettóskuldir 102,8 milljónum evra. Gylfi Sigfússon forstjóri segir í afkomutilkynningu að árið 2017 megi kalla „ár vaxtar“ hjá Eimskip, þar sem flutningsmagn, tekjur og EBITDA hafi aldrei verið hærri. „Ár- ið var frábært í flutningsmiðlunar- starfseminni með nýjum fyrirtækjum í samstæðunni og innri vexti. Félagið stóð frammi fyrir erfiðleikum í áætl- unarsiglingum vegna sjómannaverk- fallsins í byrjun ársins og ójafnvægis í flutningum tengdum Íslandi sem hef- ur aldrei verið meira og hafði nei- kvæð áhrif á rekstrarafkomu.“ Stjórn Eimskips leggur til að greiddur verði arður til hluthafa sem nemur um 1.269 milljónum króna eða sem samsvarar 61% af hagnaði ársins 2017. Minni hagnaður Eimskips  Tekjur jukust um tæpan þriðjung  EBITDA upp um 7% Morgunblaðið/Eggert Flutningar Gylfi segir að árið 2017 megi kalla „ár vaxtar“ hjá Eimskip.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.