Morgunblaðið - 23.02.2018, Síða 21

Morgunblaðið - 23.02.2018, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018 ✝ SæmundurHafsteinn Jóhannesson fædd- ist í Reykjavík 28. desember 1950. Hann lést 12. febr- úar 2018. Foreldrar hans voru Ragnheiður Kristinsdóttir, f. 24.12. 1918, d. 18.3. 1991, og Jóhannes Friðrik Sigurðsson, f. 7.1. 1923, d. 27.2. 1994. Bræður hans eru Kristinn Jóhannesson, kvæntur Áslaugu Erlu Guðna- dóttur, Sigurður Helgi Jóhann- esson, áður kvæntur Guðrúnu Ínu Einarsdóttur og Brynju Guð- mundsdóttur, og Jóhann Haukur Jóhannesson, kvæntur Eygló Kristinsdóttur. Þann 7.7. 1973 gekk Hafsteinn að eiga Guðmundu Magneu Magnúsdóttur, f. 30.8. 1950. steinn var mikill Breiðabliks- maður og landsliðsmaður í frjálsum íþróttum á áttunda ára- tugnum. Hann var formaður frjálsíþróttadeildar Breiðabliks í 10 ár og útnefndur Silfur- og Heiðursbliki. Hafsteinn var mik- ill áhugamaður um veiði. Hann var formaður Stangaveiðifélags- ins Stakks í nokkur ár, lék með leikfélaginu í Vík og var frímúr- ari í tæp fjörutíu ár. Var þar embættismaður í tíu ár, einnig stjórnarmaður í UMFÍ og Park- insonsamtökum Íslands. Hafsteinn vann fjölbreytt störf fyrri hluta ævinnar, í fiski á Eski- firði, við garðrækt og á verk- stæði Strætó í Kópavogi, versl- unarstörf hjá Kron, bókhald hjá Skeljungi og við ungmennastarf hjá félagsmálastofnun Kópavogs. Hafsteinn varð sveitarstjóri aust- ur í Mýrdal 1982 og gegndi því starfi í tuttugu ár. Fluttist síðan á Selfoss og vann sem fjármála- og starfsmannastjóri hjá Sýslu- manninum á Selfossi í tíu ár eða á meðan heilsan leyfði. Útför Sæmundar Hafsteins fer fram frá Selfosskirkju í dag, 23. febrúar 2018, klukkan 14. Börn þeirra eru 1) Magnús Orri Sæ- mundsson, f. 26.8. 1974, kvæntur Guð- rúnu Gísladóttur, f. 28.3. 1979. Börn þeirra eru Katla Magnea, f. 18.8. 2007, Stígur, f. 30.1. 2010, og Flóki, f. 20.6. 2015. 2) Jó- hanna Friðrika Sæmundsdóttir, f. 4.5. 1980. 3) Guðmundur Óli Sæ- mundsson, f. 6.7. 1987, d. 13.6. 1988. Hafsteinn ólst upp í austurbæ Kópavogs en eyddi flestum sumrum við sveitastörf í Höfða í Grýtubakkahreppi. Lauk gagn- fræðaprófi frá Lundi í Öxarfirði og prófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst 1973. Einnig lauk hann prófi í opinberri stjórn og stjórn- sýslu í Háskóla Íslands. Haf- Fallinn er frá góður drengur og vinur og eftir sitjum við með góðar minningar. Leiðir okkar lágu fyrst saman í keppni og félagsmálum hjá Breiðabliki, báðir kornungir. Hafsteinn var félagsmálamaður af guðs náð og frábært að starfa með honum. Leið hans lá til Víkur í Mýrdal sem sveitarstjóri. Hann hafði mikinn áhuga á veiðiskap og fljót- lega eftir að hann flutti í Vík fór hann að hafa afskipti af ánum þar, m.a. Vatnsá og Kerlingar- dalsá. Við fórum í margar ógleyman- legar veiðiferðir með þeim hjón- um og fjölskyldum okkar um landið. Hafsteinn var mjög iðinn og góður veiðimaður og veiddi oftast þótt aðrir fengju ekkert. Magn- ús, sonur hans, sagði eitt sinn „þetta er óþolandi, maður stend- ur í sömu sporum og pabbi, hann veiðir, ég ekki“. Hafsteinn var skemmtilegur félagi og uppátæki hans mörg. Hann fékk m.a. gamlan stöðu- mæli, sem hann setti niður við Frúarhyl í Vatnsá, sá sem ekki borgaði í stöðumælinn veiddi að sjálfsögðu ekkert í Frúarhyl. Nú þegar við kveðjum Haf- stein þökkum við honum góða samveru og sendum Möggu og fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja þau. Jón Ingi, Alda og fjölskylda. Horfinn er yfir móðuna miklu vinur og samstarfsmaður til margra ára, Sæmundur Haf- steinn Jóhannesson. Hafsteini, eins og hann var jafnan nefndur, kynntist undirritaður er við vor- um samtíða í diplómanámi í opin- berri stjórnsýslu og stjórnun við Endurmenntunarstofnun Há- skóla Íslands. Þessi fyrsta keyrsla þriggja anna náms hófst í byrjun árs 1998 og lauk í júní 1999. Hafsteinn var á þessum tíma sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Því starfi gegndi hann tvo áratugi. Við náðum prýðilega saman og áttum margar ferðir í hádegis- verð á Umferðarmiðstöðinni í Vatnsmýri. Við sóttum fundi í fé- lagi sem við báðir virtum mikils. Það var einkar þægilegt að eiga Hafstein að vini enda var honum umhugað um velferð þeirra er hann valdi að vinum, að ekki sé talað um fjölskylduna, sem hann mat mikils og sinnti vel. Næstu árin breyttust hagir okkar beggja. Undirritaður flutti frá Ísafirði og varð sýslumaður á Selfossi 2002. Sama árið lét Haf- steinn af starfi sveitarstjóra í Vík. Í upphafi næsta árs vorum við orðnir samstarfsmenn á sýsluskrifstofunni á Selfossi. Hann tók við starfi skrifstofu- stjóra embættisins. Gott var að eiga svo einbeittan samherja, er umhugað var um velferð starfs- manna og gengi sýsluskrifstof- unnar og ekki síður lögreglunnar í Árnessýslu. Við áttum stundum langar samræður um hag og fjár- mál embættisins og hvernig bezt myndi að koma þörfum embætt- isins um vandrataða stigu stjórn- sýslunnar. Reyndist hann hinn bezti bandamaður í þeim efnum, úrræðagóður að ráða fram úr að- steðjandi vanda. Okkur var vandi á höndum ár- ið 2009 eftir hið fræga hrun, þeg- ar kreppti að í ríkisrekstri líkt og víðast hvar í íslenzku þjóðfélagi. Það var erfið ákvörðun að skerða vinnutíma starfsmanna til að mæta því að samdráttur varð í fjárframlögum. Áttum við langar og strangar samræður um efnið, en þegar ákvörðun sýslumanns lá fyrir var hann hinn trausti og óbilandi samstarfsmaður og fylgdi þeim erfiðu ákvörðunum eftir. En ánægjustundirnar líka margar. Hann hafði forgöngu um að koma upp án kostnaðar at- hvarfi í kjallara sýsluskrifstofu með dyggum stuðningi starfs- fólks og þau náðu að halda mörg þorrablót án mikilla fjárútláta. Afar mikilvægt er að rækta mannleg samskipti og léttari hliðar tilverunnar. Það var hon- um lagið. Hafsteinn var einkar hjálp- samur og lét sig ekki muna um að skutla undirrituðum í flug til Keflavíkur um miðja nótt, ef svo bar undir. Eftir starfslok vegna ásóknar Parkinson-sjúkdómsins lét hann sig ekki muna um að að- stoða samborgara sína og moka fyrir þá snjó svo að þeir kæmust úr húsi. Faðir minn naut þess auk margra er áttu óhægt um vik. Leitt er að geta ekki fylgt hon- um síðustu sporin vegna annarra skuldbindinga. Hans góðu konu Magneu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum sendum við Þór- dís kona mín innilega samúðar- kveðjur. Við eigum margar góðar minningar um samveru með hon- um og Magneu. Megi hinn hæsti höfuðsmiður lífsins blessa minn- ingu Hafsteins og fjölskylduna. Genginn er góður drengur og líf mitt er auðugra fyrir það hafa átt hann að vini og samferðamanni. Hafi hann þakkir fyrir. Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suð- urnesjum og fyrrverandi sýslumaður á Selfossi. Okkar ágæti vinur Hafsteinn Jóhannesson er fallinn frá. Á kveðjustund streyma minning- arnar fram um Hafstein og þau ár sem liðin eru frá því við kynnt- umst honum fyrst. Kynnin hófust þegar þau Hafsteinn og Magnea bundust tryggðaböndum ung að árum. Hafsteinn var glaðlyndur og félagslyndur maður og naut þess að starfa með fólki. Hann var atorkusamur og hugmyndaríkur og hafði mörg áhugamál. Hann var íþróttamaður og sérlega áhugasamur um veiðar af öllu tagi og fjölskyldan fór oft í veiði- ferðir á meðan heilsa hans leyfði. Þær eru minnisstæðar dúkkurn- ar sem þau Magnea útbjuggu af veiðimönnum af ýmsu tagi. Þar mátti finna þolinmóða veiðimann- inn, lygna veiðimanninn og fleiri karaktera sem Hafsteinn hafði sérlega gaman af að útbúa. Dýrmæt minning frá seinni ár- um er um afann sem með mikilli þolinmæði aðstoðaði sonarsoninn við að tína köngulær í garðinum og lítill drengur kom inn í eldhús með lófann fullan af ofursmáum kóngulóm til að fá krukku hjá ömmu. Það er sárt að sjá á eftir mönn- um sem hafa mikið að gefa fjöl- skyldu sinni og samferðamönn- um. Við vottum vinkonu okkar Magneu og börnum þeirra, Magnúsi og Jóhönnu, og allri fjöl- skyldu Hafsteins okkar dýpstu samúð og vitum að minningar um góðan dreng lifa. Sigríður Hlíðar og Karl Jeppesen. Hafsteinn varð fljótt hluti af hópnum okkar sem samanstóð af bekkjarsystrum úr MR og fjöl- skyldum þeirra, hann var mað- urinn hennar Magneu og varð strax vinur okkar allra. Hann var glaður á góðum stundum, sem voru vissulega margar og marg- víslegar í áranna rás. Ferðalög, árshátíðir og alls kyns uppákom- ur, alls staðar var Hafsteinn hrókur alls fagnaðar og fremstur meðal jafningja. Hann var stór í eiginlegri og óeiginlegri merk- ingu, hann talaði hátt og söng hátt og hann var stór og sterkur og hafði verið keppnismaður í frjálsum íþróttum þegar hann var yngri. Svo sagði hann svo vel frá að unun var á að hlýða. Hafsteinn var sveitarstjóri í Vík í Mýrdal og bjuggu þau Magnea þar í um 20 ár. Ferðin sem hópurinn okkar fór í til Víkur árið 1992 er ógleymanleg þeim sem tóku þátt í henni. Þá var Hafsteinn með yrðling í bílskúrn- um og hrafnsungi elti hann eins og hundur. Hann ók með okkur á pallbíl niður á Mýrdalssand og fyrir Hjörleifshöfða. Þar sýndi hann okkur ýmsa fugla sem urpu þar og fræddi okkur um það sem bar fyrir augu. Við fengum líka að smakka hjá þeim Magneu salt- aðan fýl – lostæti sem er ekki á hvers manns diski. Við fylgdumst með því þegar óvæginn sjúkdómur fór að sýna sig og vera til ama. Lengst af tók Hafsteinn tilkomu hans með ró og af karlmennsku. Hann talaði jafnvel um herra Parkinson sem ferðafélaga sinn og gerði góðlát- legt grín að honum. Seinna bætt- ust fleiri vágestir við og þegar þeir tóku völdin smátt og smátt var fátt um varnir. Nú er barátt- unni við þessa óboðnu gesti lokið og Hafsteinn hefur hlotið hvíld. Mikil sorg er nú kveðin að Magneu vinkonu okkar, Magnúsi og fjölskyldu og Jóhönnu. Megi almættið styrkja þau og styðja um ókomna tíð. Við söknum vinar í stað og sendum samúðarkveðj- ur til allra sem þekktu Hafstein og voru honum nánir. Bekkjarsystur úr 6.-X í MR 1970, Áslaug, Ásta, Bergþóra J, Bergþóra S, Helga F, Helga GS, Hrefna, Ingibjörg, Mar- grét, Marta, Ólöf B, Ólöf HG, Ragnheiður, Sigríður ÁH, Sigríður H, og Sigrún. Sæmundur Haf- steinn Jóhannesson sem við hittum þig þá fékkst þú okkur til að gleðjast og allar okk- ar áhyggjur fóru út um gluggann, að því leyti varst þú svo ótrúlega einstakur. Við áttum góðar stundir sam- an á Kleppsveginum. Þú komst oft og fékkst að taka hádegislúr- inn þinn hjá okkur og alltaf vor- um við jafn spennt að fá þig. Litli körfuboltinn sem við keyptum handa þér var þitt uppáhalds leikfang hjá okkur, og færni þín með hann var alveg með ólíkind- um. Þegar við hugsum til baka, þá eru þetta ein af okkar allra ánægjulegustu minningum, boltaleikur með þér. Í hverri ein- ustu heimsókn hjá okkur var stofuglugginn rosalega áhuga- verður, að sjá þig standa við gluggann okkar tímunum saman að horfa á bílana á Sæbrautinni og hrópa, eins og þú værir að reyna að stýra umferðinni. Þar sátum við með þér og hlógum öll saman. Þú fangaðir hjörtu okkar um leið og við kynntumst þér og skil- ur eftir þig ógleymanlegar minn- ingar. Að fá ekki að kynnast þér enn betur og búa til fleiri minn- ingar er erfiðasta tilhugsun sem við getum hugsað okkur. Við er- um þó einstaklega þakklát fyrir þær minningar sem þú skilur eft- ir, og munu þær verma hjörtu okkar að eilífu. Þegar við hitt- umst næst skulum við leika sam- an með bolta. Við elskum þig, fallegi, ein- staki engill, Steinunn og Vilhjálmur Theodór. Aðlögun hjá dagforeldrum er oft erfið en fyrir Henrik var þetta ekkert mál, það var eins og hann hefði fæðst inn í okkar dagskrá. Hann lék sér í ró og næði og án þess að rífast um allt. Borðaði vel, stundum svo vel að ég hugs- aði hvar hann geymdi allan þenn- an mat. Hann svaf vel og ekkert mál að leggja hann út í vagn. Bjarni sagði eitt sinn að hann hefði verið eitthvað skapvondur, mér fannst það frekar skondið þar sem ég gat ekki einu sinni ímyndað mér Henrik fúlan. Ynd- islegan dreng eins og hann er erf- itt að finna. Oft sat ég á gólfinu og setti stút á varirnar og beið eftir kossi frá einhverjum af litlu krílunum mínum, Henrik var aldrei lengi að spotta þetta hjá mér og kom hlaupandi til mín. Opnaði munn- inn og gaf mér koss og það ekki einn heldur marga í röð. Mikið á ég eftir að sakna þín, litli gullmolinn minn, hvíldu í friði. Þín dagmamma Hulda. Elsku litli vinur okkar og sól- argeisli foreldra sinna, Henrik, er fallinn frá eftir allt of stutta viðveru hér á jörð. Dagurinn kveður, mánans bjarta brá blikar í skýja sundi. Lokkar í blænum, leiftur augum frá, loforð um endurfundi. Góða nótt, góða nótt, gamanið líður fljótt, brosin þín bíða mín, er birtan úr austri skín. Dreymi þig sólskin og sumarfrið, syngjandi fugla og lækjarnið. Allt er hljótt, allt er hljótt ástin mín, góða nótt. (Ási í Bæ) Elsku Elísabet, Bjarni og Björn Elí. Sú sorg sem fyllir hjörtun er hafin yfir öll orð. Við vinkonurnar viljum þó senda okkar dýpstu og innilegustu sam- úðarkveðjur og megið þið finna styrk til að takast á við sorgina. Hugur okkar og hjörtu eru hjá ykkur og fjölskyldum ykkar. Ykkar vinkonur, Kristín, Guðbjörg, Elín, Oddný, Vala, Guðrún Lilja, Maríanna, Bergný, Guðný og fjölskyldur. Útfararþjónusta Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AGNETE SIMSON. Guðný Magnúsdóttir Guðmundur Magnússon Ragnhildur Gunnarsdóttir Una Þóra Magnúsdóttir Hörður Högnason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÆGIR BACHMANN BESSASON loftskeytamaður og kaupmaður, Þrúðvangi 2, Hafnarfirði, lést í faðmi eiginkonu sinnar og dætra á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 17. febrúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. febrúar klukkan 14. Sérstakar þakkir eru veittar starfsfólki Ölduhrauns fyrir góða umönnun. Guðný Sigríður Arnbergsdóttir Stefanía, Lilja, Íris Ragnhildur og Ingveldur tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR frá Guðnabæ, Hagaflöt 11, Akranesi, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða föstudaginn 16. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 27. febrúar klukkan 13. Allan H. Sveinbjörnsson Jón H. Allansson Heiðrún Janusdóttir Sesselja L. Allansdóttir Sigurbjörn Hafsteinsson Sigurrós Allansdóttir Steindór Óli Ólason Sveinbjörn Allansson Lisbet Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN FRIÐRIKSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, hjúkrunarheimilinu Eiri, áður Stangarholti 30, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 27. febrúar klukkan 13. Gylfi M. Einarsson Katrín J. Björgvinsdóttir Valgarð Einarsson Linda María Stefánsdóttir Margrét Ástrún Einarsdóttir Ævar Einarsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.