Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018 Sumum fannst það ákveðin niðurlæging þegar enska landsliðið í knattspyrnu leit- aði út fyrir landsteinana eftir þjálfara; réði fyrst Svein- Jörund Eriksson og síðar Fa- bio Capello. Undanfarin ár hafa heimamenn sinnt liðinu, Roy Hodgson, Sam Allardyce í korter og núna Gareth Sout- hgate, maður sem bjó yfir mjög takmarkaðri reynslu áður en hann tók við starfinu. Gengi liðsins hefur þó verið prýðilegt í hans tíð enda þótt HM verði fyrsti alvöru próf- steinninn. Ensku knattspyrnuliðin þrjúsem hófu leik í sextán liða úr-slitum Meistaradeildar Evr- ópu í vikunni náðu hagstæðum úr- slitum; Manchester City og Liverpool eru á leið í næstu umferð eftir að hafa leyst andstæðingana, Basel og Porto, upp í frumeindir sín- ar og það á útivelli og Tottenham Hotspur náði jafntefli eftir að hafa lent 2:0 undir gegn Ítalíumeisturum Juventus í Tórínó. Í næstu viku er röðin komin að tveimur liðum til við- bótar, Manchester United sem mæt- ir Sevilla og Chelsea sem glímir við sjálfa Börsunga. Ekki slæmur árangur að eiga fimm lið meðal þeirra sextán bestu í álfunni og mögulega, fari allt á besta veg, fimm lið meðal þeirra átta bestu. Synd væri þó að segja að sá árangur væri enskum knattspyrnu- stjórum að þakka en ekkert þessara liða býr að innlendum þjálfara og hefur ekki gert lengi. Raunar er enginn enskur stjóri eftir í Meist- aradeildinni og aðeins einn í Evr- ópudeildinni, Harry … nei ég meina Graham Potter, sem stýrir Ösku- busku þeirra Svía, Östersund, í 32 liða úrslitunum, einmitt gegn ensku liði, Arsenal. Að hugsa sér, af 48 liðum sem eft- ir eru í Evrópumótunum tveimur er aðeins eitt með enskan knattspyrnu- stjóra. Öðruvísi mér áður brá. Eggið er svo sannarlega farið að kenna hænunni. Það er svo sem gömul saga og ný en 26 ár eru síðan enskur knatt- spyrnustjóri stýrði liði til sigurs í ensku úrvalsdeildinni, Howard Wilkinson með Leeds United 1992. Síðasti enski stjórinn til að fagna sigri í Evrópukeppni var Bobby heitinn Robson sem gerði Barcelona að Evrópumeisturum bikarhafa 1997. Síðasti enski stjórinn til að skila ensku félagi Evróputitli var Howard Kendall en Everton vann Evrópukeppni bikarhafa undir hans stjórn á því herrans ári 1985. Síðan eru liðin 33 ár. Segi ég og skrifa. Ef til vill var það ógæfa enskra að það mót skyldi vera lagt niður? Síðasti Englendingurinn til að vinna stærsta Evrópumótið, sem þá hét Evrópukeppni meistaraliða, var Joe Fagan með Liverpool 1984. Von í Dyche og Howe Eigi þessari þurrkatíð í Evrópu að ljúka í ár verða Englendingar að leggja traust sitt á Potter og snjó- karlana hans í Östersund enda þótt róðurinn verði þungur eftir 3:0-tap í fyrri leiknum. Og ekki eru enskir sparkbændur líklegir til að uppskera í úrvalsdeild- inni á næstunni. Sex efstu liðin eru öll með útlenska karla í brúnni og fara þarf niður í sjöunda sæti til að hitta fyrir Englending, Sean Dyche hjá Burnley. Lið hans er „ekki nema“ 36 stigum á eftir toppliði Manchester City. Til að gæta fyllstu sanngirni þá hefur Dyche unnið þrekvirki hjá Burnley, sem er ekki stór klúbbur, og er annar af tveimur enskum þjálfurum sem geta látið sig dreyma um að taka einhvern tíma við einu af sex stærstu félögunum; hinn er Eddie Howe hjá Bourne- mouth sem nú vermir tíunda sæti úrvalsdeildarinnar. „Dreyma“ er raunar lykilorðið í þessu sambandi en ólíklegt er að Dyche og Howe verði efstir á óskalista stórveld- anna þegar þau þurfa að stjóra sig upp næst. Fyrst verður örugglega horft til Ítalíu, Þýskalands, Spán- ar, Portúgals, Frakklands, Argent- ínu eða hvað þessi lönd öll heita. Þrír aðrir Englendingar starfa við knattspyrnustjórnun í ensku úrvalsdeildinni; Sam Allardyce hjá Everton (9. sæti), Roy Hodgson hjá Crystal Pa- lace (15. sæti) og Alan Pardew hjá West Bromwich Albion (20. sæti) en með fullri virðingu fyrir þeim ágætu herrum þá eru þeir komnir fram yfir síðasta söludag; alltént frá bæjardyrum toppliðanna séð. Skoska hlíðin fölnar Eftir að sir Alex Ferguson settist í helgan stein er skoska hlíðin heldur ekkert sérlega fögur. Tveir Skotar þjálfa nú í ensku úrvalsdeildinni, David Moyes hjá West Ham United (12. sæti) og Paul Lambert hjá Stoke (19. sæti). Stýri þeir liði til meistaratignar í Englandi eða Evr- óputitils skal ég byrja að hlusta á kántrítónlist! Nei, það er ekki um auðugan garð að gresja og vandséð hvaðan næsti „enski“ titill á að koma. Að veðja á Steven Gerrard er ekki verri kostur en hver annar, það er að hann vinni loksins Englandsbikarinn þegar hann verður tekinn við Liverpool af málmhausnum Jürgen Klopp. Lykilsögnin í þessu sambandi er sem fyrr „að dreyma“. Enginn vill sjá Englending! Eyðimerkurganga enskra knattspyrnustjóra held- ur áfram; þeir sitja hvergi við kjötkatlana og sá eini sem eftir er í Evrópukeppni í vetur þjálfar Öskubuskusund eða hvað það ágæta lið nú heitir. Gareth Southgate Hliðið í suðri AFP Sadio Mané og Mohamed Salah fagna einu af mörgum mörkum Liverpool á Dragao-leikvanginum í Porto í vikunni. ’ Besti árangur ensks knattspyrnustjóra í ensku úrvals- deildinni, sem sett var á laggirnar sumarið 1992, er annað sæti. Það var enginn annar en Kevin Keegan sem stýrði New- castle United þangað veturinn 1996-97. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is SIMBABVE HARARE Helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu, Morgan Tsvangirai, lést í vikunni, 65 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Fráfall hans er mikið áfall fyrir stjórnarand- stöðuna enda standa fyrstu frjálsu kosn- ingarnar fyrir dyrum eftir að einræðisherr- ann Robert Mugabe hrökklaðist frá á liðnu ári eftir þrjátíu ár á valdastóli. BRETLAND LUNDÚNIR Allar stjörnurnar sem mæta á Brit-verðlaunin í næstu viku fá hvíta rós til að næla í barminn til stuðn- ings #TimesUp-herferðinni. Þetta á við um gesti, kynna og þá sem troða munu upp á hátíðinni. Fastlega er reiknað með því að stjörnurnar taki framtakinu vel enda hefur #TimesUp-herferðin þann tilgang að stemma stigu við kynferðislegri áreitni í afþreyingarbransanum. NÝJA-SJÁLAND AUCKLAND Tísku- tímaritið Vogue, af öllum miðlum, hefur gefi ð hinum nýbakaða forsætisráð- herra landsins, hinni 37 ára gömlu Jacindu Ardern, nýtt gælunafn: Antítrump. Gælunafnið skýrir sig sennilega sjálft en Vogue er á því að Ardern sé allt sem Donald Trump Bandaríkja- forseti er ekki. Með ítarlegu viðtali við ráðherrann fylgir tískuþáttur þar sem Ardern klæðist nýsjálenskri hönnun. ÁSTRALÍA CANBERRA Malcolm Turnbull for- sætisráðherra hyggst banna kynmök milli ráðherra og starfsliðs þeirra eftir að Barnaby Joyce aðstoðarforsætis- ráðherra varð uppvís að því að sænga hjá konu úr starfsliði sínu. Engar reglur voru brotnar en Turnbull gagnrýnir Joyce eigi að síður fyrir dómgreindar- leysi. Svona geri menn ekki. Joyce verður sendur í leyfi eftir helgina.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.