Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 34
LESBÓK 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018 Hljómsveit gleðinnar og ósjálfráðu tónlist-arinnar sem hefur það mottó að koma áóvart er vöknuð til lífsins með hvelli. Í gær kom út ný plata sveitarinnar, Leður, en for- sprakki sveitarinnar, Óttarr Proppé, segir örlítið nýjan hljóm á plötunni, fágaðri. „Nýja platan hefur verið í löngu fæðingarferli. Elstu hugmyndirnar komu upp úr vinnuferðum árin 2011 og 2012 en það hefur lengi verið vinnu- ferli hjá Dr. Spock að loka okkur einhvers staðar af, þar sem menn komast ekki á fundi og fá helst ekkert að borða án þess að semja það upp í mat- inn sinn. Í haust fórum við að vinna upp úr þessu af krafti, sérstaklega eftir að ég losnaði úr ráðu- neytinu,“ segir Óttarr. Þú talar um nýjan hljóm? „Þetta er ennþá rugl og hrærigrautur, metal- kafli við hliðina á vals og svo framvegis, en að ein- hverju leyti er meiri fágun yfir hljómnum. Við höfum verið að vinna með Einari Vilberg upp- tökustjóra í stúdíói hans Hljóðverk, sem hefur einhvern veginn haft áhrif á hljóminn. Við höfum verið öruggari á hljóðmyndinni en oft áður sem gaf meira svigrúm fyrir ósjálfráðu skriftina; músíkina. Við vorum ekki með nema mjög óljós- ar hugmyndir um textana og lásum þá síðan í músíkina eins og hún kom af kúnni eftir á.“ Óttarr segir einkennismerki Dr. Spock að ekk- ert sé bannað. „Sum lög hafa hreinlega orðið til upp úr köfl- um þar sem spilagleðin hefur ært menn á milli laga á tónleikum. Þá er það hlutverk okkar söngvaranna að syngja eitthvað með. Frekar en að rembast við og ákveða: „Nú ætla ég að syngja um sumarnótt“ er gott að láta tónlistina frekar kalla á hljóð. Eitt gott nýtt dæmi er lagið Ele- fanto be sem varð til þannig að Finni [Guðfinnur Karlsson] var að syngja einhverja línu, ekki á neinu tungumáli sem við þekktum. Okkur fannst í upptökunum að lagið yrði að vera á spænsku og fengum spænskumælandi sérfræðing á svæðið til að hjálpa okkur að semja. Hann sagði að það væri nú kominn vísir að texta þarna í línunni hans Finna, um mjög sorgmæddan fíl, sem er mjög skemmtilegt því Finni talar ekki orð í spænsku.“ Lögin á nýju plötunni hafa fengið að flæða meira í vinnslunni en oft áður. „Við höfum verið óhræddari við að leyfa ein- hverjum karakter í lögunum að taka þau yfir og alls konar litlir djöflar vöknuðu upp. Áður vorum við oft að rembast við Dr. Spock, því enginn í hljómsveitinni veit almennilega hvaðan það nafn kemur. Núna erum við meira farnir að horfa í aðrar áttir en að vera að berjast við doktorinn. Þarna eru nýjar týpur en líka meitlaðar týpur. Við höfum oft sungið um gamla pirraða menn og það er gamall maður sem kemur í gegn í einu laginu sem tekur alveg rosalegt pirringskast. Það er svolítið viljandi gert að vera ekki að syngja lög um að fara í vinnuna eða klæða sig í sokka. Dr. Spock er hljómsveit sem er ætlað að fara í eitthvað ýktara og skrýtnara,“ segir Óttarr. Hvað er öðruvísi við að vinna á þennan hátt? „Það er tímafrekara en breikkar sviðið. Við er- um mjög ánægðir með sum lög þarna sem okkur hefði aldrei grunað að yrðu að því sem þau eru orðin. Lag eins og Smyglar smjöri vorum við að vinna með án þess að vita um hvað ætti að fjalla. Svo kom allt í einu línan „Hann hringdi kallinn“. Þá fórum við að velta fyrir okkur: Hver er kallinn og hvað í ósköpunum vill hann? Við sáum hann strax fyrir okkur sem gaur með eitthvað misjafnt en furðulegt í huga. Niðurstaðan var að auðvitað smyglar hann smjöri. Það lag, sem var mjög hressilegur rokkari, er því orðið að hressilegum rokkara með mjög dramatískri sögu af brjáluðu smjörburðardýri. Það verður gaman fyrir mig að kljást við hann á sviðinu af því þetta er stríð í lag- inu, milli söngvarans og smyglarans.“ Maður hefur á tilfinningunni að það þurfi mikla orku í að vera í Dr. Spock, sé nánast eins og að vera atvinnuíþróttamaður? „Alveg frá því hljómsveitin var stofnuð höfum við verið í ákveðinni keppni um hvað við getum spilað hratt, hversu mikið við getum komið hver öðrum á óvart, höfum lagt ómöguleg verkefni fyrir Adda trommara, sem er með fullkomnunar- áráttu, og það er mikið mottó hjá hljómsveitinni að fara lengra og krefjast meira hver af öðrum. Margt af því besta sem við höfum upplifað hefur orðið til því menn hafa hreinlega verið búnir á því. Þá brotnar lagið niður eða söngvarinn hættir að geta sungið og fer að grenja. Það leysir eitt- hvað úr læðingi. Þetta er svona áhættumúsíser- ing. Það má líka segja að þetta hafi alltaf byggst á „live“ spilamennsku, sem er mögnuð því það verður svo mikið samspil við áhorfendur. Þá erum við dálítið að stríða og kveikja á áhorf- endum en sömuleiðis halda þeir okkur við efnið.“ Þið leggið mikið upp úr umgjörð í kringum Dr. Spock, er mikilvægt að koma á óvart? „Ég held það séu ákveðin viðbrögð við því hvað mikið af tónlist og menningu krefst lítils af þátttakendum og áhorfendum. Það er dálítið mikið af tónlist sem er til þess að létta lífið eða vera bara hugguleg og það má alveg vera meira um ögrun.“ Hvað er svo fram undan hjá Dr. Spock? „Við ætlum að kanna þennan endurnýjaða þrótt okkar, við erum búnir að vera í hálfgerðum dvala í sjö til átta ár. Við erum búnir að taka lof- orð af mannskapnum að vera til taks næsta árið og erum með metnaðarfullt plan um spilerí og upptökur.“ Þú sagðir einu sinni að rokkið gagnaðist þér í pólitíkinni. En gagnast pólitíkin í rokkinu? „Pólitíkin gengur út á að fá innsýn í hluti, túlka þá, skilja og vinna úr þeim. Fyrir mér er tónlistin líka þannig og það sem mér finnst skemmtilegast við tónlist er tækifærið til að bregðast við. Þess vegna finnst mér svo skemmtilegt að vinna hana í rauntíma, hafa ekki nákvæma hugmynd um hvernig textinn verður áður en lagið byrjar og þurfa einhvern veginn með hjálp undirmeðvit- undar að búa hann til í flæðinu. Í pólitík er harka í skoðanaskiptum og ákveðin undirliggjandi paranoja sem getur verið ágætis drifkraftur að færa yfir í músík. Ég held að tónlist sé það list- form sem er næst tilfinningalífinu og ef það eru djúpar og hættulegar ástríður einhvers staðar þá er það í pólitík. Reynslan af því hefur örugglega skerpt aðeins á tilfinningahnífunum í mér, það er ágætt.“ Dr. Spock er í banastuði þessa dagana. Frá vinstri: Guðfinnur Karlsson, Guðni Finnsson, Þorbjörn Sigurðsson, Óttarr Proppé, Arnar Þór Gíslason og Franz Gunnarsson. Morgunblaðið/Hari Ekki lög um að klæða sig í sokka Orkusprengjan Dr. Spock var hvað virkust á árunum 2005-2010 en hefur verið í örlitlum dvala síðustu árin. Hljómsveitin er hins vegar komin í banastuð og stefnir á spilamennsku en ný plata, Leður, kom út fyrir helgi. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is ’Margt af því besta sem viðhöfum upplifað hefur orðið tilþví menn hafa hreinlega veriðbúnir á því. Þá brotnar lagið nið- ur eða söngvarinn hættir að geta sungið og fer að grenja. Leiðsögn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, sem vera átti á Þjóðminjasafninu fyrir viku, frestaðist vegna veðurs en verður þess í stað í dag, sunnudag, klukkan 14. Katrín geng- ur með gestum um safnið með leiðsögn undir yfirskriftinni Galdrar, glæpir og glæfrakvendi. Forsætisráðherra með gestum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.