Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 22
MATUR Það lá vel á Eyþóri þegar blaðamaður hitti hann enda var kokkteill fráPublic House valinn drykkur ársins 2018 á nýafstaðinni keppni, „Reykja-vík Cocktail Weekend“. Drykkurinn ber nafnið Osusume og inniheldur plómu sake, gin með grænu tei, engifersíróp, yuzu og sítrónusafa. Kokkteill ársins 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018 Eyþór Mar Halldórsson, yfirmat-reiðslumaður og eigandi Public House –Gastropub við Laugaveg, segir að hug- myndin á bak við staðinn hafi verið að opna smáréttastað með asískum áhrifum. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta líka pöbb. „Við erum með tíu bjórtegundir á krana en ein- hverjar þrjátíu í heild. Þetta er svona stemn- ingsstaður eins og heyrist á tónlistinni. Áhersl- an er á að allir réttirnir geti verið í bitastærð, tilvaldir til að deila,“ segir hann og er ham- borgarinn helsta undantekningin. Frá upphafi var áherslan á að opna ekki dæmigerðan „fín- an“ veitingastað heldur bar þar sem hægt væri að fá hágæðamat. Allur maturinn er gerður frá grunni, sem dæmi eru hamborgarabrauðin heimatilbúin og sömuleiðis sósurnar. Réttirnir eru ennfremur mjög fallegir á að líta. „Ég er búinn að vera að gera matseðla í mörg ár. Margir réttir sem fóru á seðilinn hér eru réttir sem pössuðu ekki inn annars staðar en passa algjörlega fyrir þennan stað. Það eru margir réttir sem maður setur kannski ekki á seðilinn þótt þeir séu frábærir því þeir eiga ekki við konseptið,“ segir hann en Public House hefur undirtitilinn „gastropub“ sem er ákveðin tegund af stað þar sem hægt er að fá gæðamat með bjórnum. „Ég fór árið 2008 á gastropub í New York sem heitir Spotted Pig. Þetta er frægur staður með michelin-stjörnu. Ég varð heillaður af þessari hugmynd þá; að opna bar með háklassamat,“ segir Eyþór en staðurinn Public House var síðan opnaður í maí 2015. Síðan þró- aðist hugmyndin áfram og fór alltaf meira í átt- ina að japönskum áhrifum, útskýrir hann. Heillaður af hreinu bragði Eins og áður segir eru réttirnir undir asískum áhrifum. Af hverju færðu innblástur frá þessari matargerð? „Þetta er svo hreint bragð,“ segir Eyþór en þess má geta að hann er einnig með hina vin- sælu staði Pablo Discobar og Burro. „Ég er búinn að opna íslenskan veitingastað og líka ítalskan, japanskan og suðuramerískan. En einhvern veginn fer ég alltaf aftur í þetta bragð, súrt og sætt, í staðinn fyrir að vera að flækja þetta með sósum. Þegar maður horfir á japanska matargerð er líka mikið um staka rétti,“ segir hann og að þetta sé ólíkt franskri matargerð þar sem þrír réttir er vaninn. Morgunblaðið/Eggert Tilvalið til að deila ’ Við erum meðtíu bjórtegundirá krana en ein-hverjar þrjátíu í heild. Þetta er svona stemnings- staður eins og heyr- ist á tónlistinni. Áherslan er á að allir réttirnir geti verið í bitastærð. Eyþór Mar Halldórsson heillaðist af hugmyndinni um að bera fram hágæðamat á bar eftir að hafa heimsótt hinn þekkta stað Spotted Pig í New York. Nú rekur hann staðinn Public House þar sem smáréttir með asísku ívafi eru í fyrirrúmi við hlið bjórsins. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Reyktur lundi með bláberja yuzu og sykruðum heslihnetum. Andarlæri í pönnuköku með engifersósu. Eyþór Mar Halldórsson er yfirmat- reiðslumaður og eigandi Public House – Gastropub við Laugaveg.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.