Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 8
FRANCES MCDORMAND Leikkonan, sem fer á kostum í kvikmyndinni Three Billboards Outside Ebbing, Missouri, og talin er eiga mikla möguleika á Óskarsverðlaunum, fæddist í Illinois-ríki 23. júní 1957 og verður því 61 árs í sum- ar. Hún var ættleidd af kanadískum hjónum, Noreen Eloise, hjúkrunarkonu frá Ontario, og Vernon Weir McDormand, presti frá Nova Scotia, sem búsett voru í Pittsburg í Pennsylvaníu og þar ólst stúlkan upp. Frances Louise McDormand, jafnan kölluð Fran, nam leiklist í Bethany Col- lege í Vestur-Virgínu, skammt handan ríkjamæranna, og framhaldsnám í fræð- unum stundaði hún í þeim kunna Yale-háskóla í Connecticut. Herbergisfélagi hennar þar var Holly Hunter, einnig heimsfræg og margverðlaunuð leikkona. Eftir útskrift lék McDormand á sviði víðs vegar um landið en lék fyrst í kvik- mynd 1984; í Blood Simple, sem leikstýrt var af Coen-bræðrum. Skömmu síðar giftist hún öðrum þeirra, Joel, og þau eru enn harðgift. McDormand vakti strax mikla athygli í fyrstu kvikmyndinni en lék ekki að ráði á þeim vettvangi á ný fyrr en nokkrum árum síðar. Hélt sig að mestu við leik- sviðið með frábærum árangri og var fljótlega tilnefnd til hinna eftirsóttu Tony- verðlauna fyrir leik í verkinu A Streetcar Named Desire, sem nefnt hefur verið Sporvagninn Girnd á íslensku, og vann verðlaunin síðar meir fyrir Good People. McDormand hefur komið víða við á glæsilegum ferli. Mikið leikið á sviði, í kvikmyndum og í sjónvarpi. Margir muna eftir henni í Mississippi Burning frá 1988 og Fargo sem frumsýnd var 1996 og hún hlaut Óskars- verðlaun fyrir. Frammistaða McDormand í Three Billboards Outside Ebbing, Missouri er stórbrotin. Litlu munaði þó að hún tæki hlutverkið ekki að sér. Fannst verkið engu að síður mjög gott þegar hún las það fyrst, persónan sem henni var boðið að leika frábær, en svaraði þó: „Nei, takk. Ég er of gömul.“ McDormand var 58 ára og fannst í fyrstu ekki nógu trúverðugt að kona sem býr við þær félagslegu aðstæður sem lýst er í myndinni eignist fyrsta barn 38 ára. „Við hjónin ræddum þetta fram og til baka. Eftir miklar vangaveltur tók Joel af skarið og sagði: Þegiðu nú og taktu þetta að þér!“ Sem betur fer, segja ugglaust marg- ir. McDormand fékk Golden Globe-verðlaun fyrir frammistöðuna og margir telja Óskarinn handan við hornið. Hjónin búa í New York, Þau eiga soninn Pedro McDormand Coen sem fæddur er í Paragvæ 1994 en þau ættleiddu ári síðar. Hann fetaði aðra braut í lífinu en for- eldrarnir; er lærður einkaþjálfari og nuddari. skapti@mbl.is Í PRÓFÍL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018 Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is 32.500kr HILLA MEÐ SNÖGUM 24.900kr GLERBOX 3.600kr BEKKUR FJÖLSKYLDA McDormand hefur verið gift leikstjóranum Joel Coen í hálfan fjórða ára- tug. Það ku þykja býsna merkilegt að hjóna- bönd í Hollywood endist svo lengi. Þau kynntust 1983 þegar leikkonan kom í áheyrnarprufu fyrir Blood Simple, fyrstu kvikmyndina sem Coen-bræður, Joel og Ethen, gerðu saman. Hún fékk hlutverkið og síðan hafa þau unnið mikið saman. Joel hefur upplýst að eftir þessa fyrstu mynd hafi hann eiginkonuna ætíð í huga þegar hann skapar persónu í kvikmynd. Hjónin sátu saman fyrir svörum blaða- manna fyrir skömmu og voru þá m.a. spurð um uppskriftina að löngu hjónabandi. „Við höfum mjög oft unnið saman en líka mikið verið án hvort annars í vinnunni og getum því alltaf sagt frá einhverju nýju. Sagt nýjar og áhugaverður sögur. Það skiptir miklu máli,“ sagði McDormand. Frances McDormand, sonurinn Pedro McDormand Coen, og eigin- maður hennar, Joel Coen, á kvikmyndahátíðinni í Róm 2015. AFP Líf og störf með Coen-bróður VIÐURKENNINGAR Frances McDormand er í hópi 23 leikara, 14 kvenna og 9 karla, sem státa af því að hafa unnið til þrennra eftir- sóttustu verðlauna í faginu: Ósk- ars-, Emmy- og Tonyverðlauna, fyrir frammistöðu í aðalhlutverki. Óskarsverðlaun fékk hún fyrir kvikmyndina Fargo, 1996, í leik- stjórn eiginmannsins, Joel Coen, Tony-leikhússverðlaunin fékk hún fyrir leikritið Good People 2011 og Emmy-verðlaunin, sem veitt eru fyrir leik í sjónvarpsefni, hlaut McDormand fyrir aðal- og titil- hluverk í þáttaröðinni Olive Kitteridge, árið 2015. Sjaldgæf þrenna Frances McDormand og leikarinn Peter Dinklage eins og þau koma áhorf- endum fyrir sjónir í kvikmyndinni Three Billboards Outside Ebbing, Missouri. AFP ÚTLIT Þekkt er að margar leik- konur í Hollywood nýta sér flinka lýtalækna til að halda sér ungum en McDormand gefur ekki mikið fyrir slíkt. Leikkonan sagði í viðtali fyrir tveimur árum, þegar hún var 58 ára, að hún myndi aldrei fara í aðgerð til að breyta útlitinu og hefði fyrir löngu ákveðið að „eld- ast eðlilega og tignarlega, án að- stoðar lýtalæknis“. McDormand sagði að sér þætti heldur erfitt að horfa upp á starfs- systur sínar eftir að andlitum þeirra væri breytt, í þeim tilgangi að viðkomandi virtist yngri en raunin væri „vegna þess að mér þykir breytingin afmá allt“. McDormand vill sem sagt halda áfram að vera hún sjálf; ekki láta afmá sig! Frances McDormand ung að árum áður en stóru leiksigrarnir unnust. Vill ekki afmá „sig“ Óskar sér AFP AFP ’Við hjónin ræddum þetta framog til baka. Eftir miklar vanga-veltur tók Joel af skarið og sagði:Þegiðu nú og taktu þetta að þér! Martin McDonagh, Sam Rockwell, Frances McDormand, Graham Broadbent og Peter Czernin með Golden Globe-verðlaunin þegar Three Billboards … var valin besta myndin í síðasta mánuði. McDormand á kvikmyndahátíð- inni í Cannes 1996 er Fargo var frumsýnd. McDormand með Óskarinn eftir að hún var valin besta leikkona í aðalhlutverki fyrir kvikmyndina Fargo 1997.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.