Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2018 Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði DORMA KYNNIR Eftir áralanga þróun og prófanir höfum við náð markmiði okkar. Við höfum búið til eina þróuðustu dýnu heims Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri samsetningu 2500 keilulaga gorma og móttækilegs minnissvamps. Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er. 80 x 200 cm 64.900 kr. 90 x 200 cm 74.990 kr. 100 x 200 cm 79.900 kr. 120 x 200 cm 89.990 kr. 140 x 200 cm 99.990 kr. 160 x 200 cm 114.990 kr. 180 x 200 cm 129.990 kr. Simba dýnurnar eru fáan­ legar í eftirtöldum stærðum Komdu og kynntu þér Simba í næstu Dormaverslun eða á www.simba.is V A RA ÁRSINS 2018 B R E T L A N D HEILSUDÝNUR Kjörin heilsudýna ársins á meðal 10.637 þátttakenda í neytendakönnun KANTAR TNS í Bretlandi 20% AFSLÁTTUR TILBOÐ áClassic botnum meðSimbadýnum Unnendur dönsku sjónvarpsþáttanna Brúarinnar mega vart mæla fyrir spenningi en nú sér fyrir endann á fjórðu og síðustu þáttaröð. RÚV hefur sýnt einn þátt á hverju mánudagskvöldi undanfarið en tekur það nú til bragðs að sýna tvo þá síðustu á mánudagskvöldið kemur. Stjórnendur þar á bæ telja unnendur þáttanna hreinlega ekki geta beðið aðra viku eftir þeim síðasta! Af þessu tilefni hafa æstir áhugamenn, með skáldið Gerði Kristnýju og Áslaugu Guðrúnardóttur í fararbroddi, ákveðið að koma saman, horfa á þættina og ræða í kjölfarið. Samkoman hefur verið auglýst á Hverfisbarnum við Hverfisgötu, þar sem dýrðin verður sýnd á 100 tommu skjá. Húsið verður opnað kl. 20.00 og er samkoman auglýst til 23.30. Gerður Kristný hefur greint efni þáttanna af miklu listfengi og hugmyndaauðgi síð- ustu vikur á Facebook-síðu sinni og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Því má búast við skemmtilegri brúarsmíði á barnum. Sofia Helin og Thure Lindhardt, tveir af aðalleik- urunum í Brúnni. Brúarsmíði á barnum Skáldið Gerður Kristný er afar áhugasöm um þættina eins og fleira sem sýnt er í sjónvarpinu. Morgunblaðið/Golli Danska þáttaröðin Brúin er gríðarlega vinsæl hér á landi sem annars staðar. Íslandi hefur aldrei tekist að sigra Dani í fullorðinsflokki í fót- bolta. Morgunblaðið sagði, eftir markalaust jafntefli í Laugardal í júní 1978 að okkar menn hefðu aldrei verið nær sigri. Í fjörlegri grein í blaðinu tveimur dögum síðar var púlsinn tekinn á áhorf- endum í stúkunni, undir fyrir- sögninni „HENDI!“ þar sem var vitnað í einn þeirra sem hafði kallað á dómarann. „Miðvikudaginn 28. júní vörðu 8-9 þúsund Íslendingar fríkvöldi sínu á nákvæmlega sama hátt. Þeir röðuðu sér umhverfis stóra grasflöt í Laugardalnum til að hvetja strákana. Fólk streymdi úr öllum áttum niður í dalinn að loknu sínu dagsverki. Þarna voru kaupmenn og verkamenn, ráð- herrar og listamenn, ungir sem gamlir. Menn reyndu að finna sér gott útsýni yfir völlinn, í há- talarakerfinu voru stúkugestir beðnir að þjappa sér betur sam- an, og sjónvarpið beindi upp- tökuvélum sínum að vallarmiðj- unni. Svo var beðið. Það átti sem sagt að gera 13. tilraunina til að sigra Dani í fótbolta.“ Blaðamaður sagði Íslendinga gera fremur lítið af því að sleppa sér „yfir fáfengilegum hlutum sem einum knattspyrnuleik. Ástæðan gæti vissulega verið eðlisleg hlédrægni. Hitt er þó al- veg jafn líklegt að skellir fortíð- arinnar í þessari íþrótt hafi í tím- ans rás mótað séríslenzkar aðferðir við að horfa á lands- leik“. Þá var engin Tólfa til! GAMLA FRÉTTIN „HENDI!“ Áhorfendur á landsleiknum við Dani 1978. Blaðamanni þótti þeir rólegir. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Jared Leto bandarískur leikari og tónlistarmaður Jesús Kristur sonur Guðs Roger Hodgson breskur tónlistarmaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.