Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Blaðsíða 21
Hangandi hægindi
18.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
TAXFREE AFSLÁTTUR*
af La-Z-Boy og Broyhill
* Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti. Gildir ekki af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær
ríkissjóður viðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Studio Sterling hafa
sérhæft sig í hönnun
formfagurra rólustóla
og -legubekkja, sem
má bæði nota innan-
og utandyra. Á heima-
síðu þeirra, studio-
stirling.com er hægt
að skoða ótal afbrigði
slíkra stóla sem eru
vinsælir á hótelum,
veitingastöðum, versl-
unum og einkaheim-
ilum um allan heim.
Stundum er talað um
körfuegg dönsku hönn-
unarhjónanna Nönnu
og Jørgen Ditzel, frá
1959, sem fyrirmynd
að öllum þeim hang-
andi körfustólum sem
áttu eftir að líta dagsins
ljós áratugina á eftir.
Það er ótrúlegt hvað fallegur stóll, sem svífur í lausu lofti yfir stofugólfinu,
gerir mikið fyrir rými. Flæðið er meira, stofan verður hlýlegri og þeir sem sitja
í stólnum upplifa eitthvað alveg sérstakt, eins og þeir séu í sínu einkarými þótt
aðrir séu í kring. Munið bara að festa þarf stóla sem þessa í traust og góð loft.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Þessi stílhreini hangandi stóll minnir á retró húsgögn 6.
og 7. áratugarins en er þó seinni tíma hönnun. Hann
kallast Hangin Hoop Chair og er frá breska hönn-
unarfyrirtækinu Lee Broom. Stálgrindina
er hægt að fá í svörtu og gylltu og
áklæðið í mörgum litum.