Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Page 22
MATUR Það lá vel á Eyþóri þegar blaðamaður hitti hann enda var kokkteill fráPublic House valinn drykkur ársins 2018 á nýafstaðinni keppni, „Reykja-vík Cocktail Weekend“. Drykkurinn ber nafnið Osusume og inniheldur
plómu sake, gin með grænu tei, engifersíróp, yuzu og sítrónusafa.
Kokkteill ársins
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018
Eyþór Mar Halldórsson, yfirmat-reiðslumaður og eigandi Public House –Gastropub við Laugaveg, segir að hug-
myndin á bak við staðinn hafi verið að opna
smáréttastað með asískum áhrifum. Eins og
nafnið gefur til kynna er þetta líka pöbb. „Við
erum með tíu bjórtegundir á krana en ein-
hverjar þrjátíu í heild. Þetta er svona stemn-
ingsstaður eins og heyrist á tónlistinni. Áhersl-
an er á að allir réttirnir geti verið í bitastærð,
tilvaldir til að deila,“ segir hann og er ham-
borgarinn helsta undantekningin. Frá upphafi
var áherslan á að opna ekki dæmigerðan „fín-
an“ veitingastað heldur bar þar sem hægt væri
að fá hágæðamat.
Allur maturinn er gerður frá grunni, sem
dæmi eru hamborgarabrauðin heimatilbúin og
sömuleiðis sósurnar.
Réttirnir eru ennfremur mjög fallegir á að
líta. „Ég er búinn að vera að gera matseðla í
mörg ár. Margir réttir sem fóru á seðilinn hér
eru réttir sem pössuðu ekki inn annars staðar
en passa algjörlega fyrir þennan stað. Það eru
margir réttir sem maður setur kannski ekki á
seðilinn þótt þeir séu frábærir því þeir eiga
ekki við konseptið,“ segir hann en Public
House hefur undirtitilinn „gastropub“ sem er
ákveðin tegund af stað þar sem hægt er að fá
gæðamat með bjórnum.
„Ég fór árið 2008 á gastropub í New York
sem heitir Spotted Pig. Þetta er frægur staður
með michelin-stjörnu. Ég varð heillaður af
þessari hugmynd þá; að opna bar með
háklassamat,“ segir Eyþór en staðurinn Public
House var síðan opnaður í maí 2015. Síðan þró-
aðist hugmyndin áfram og fór alltaf meira í átt-
ina að japönskum áhrifum, útskýrir hann.
Heillaður af hreinu bragði
Eins og áður segir eru réttirnir undir asískum
áhrifum. Af hverju færðu innblástur frá þessari
matargerð?
„Þetta er svo hreint bragð,“ segir Eyþór en
þess má geta að hann er einnig með hina vin-
sælu staði Pablo Discobar og Burro.
„Ég er búinn að opna íslenskan veitingastað
og líka ítalskan, japanskan og suðuramerískan.
En einhvern veginn fer ég alltaf aftur í þetta
bragð, súrt og sætt, í staðinn fyrir að vera að
flækja þetta með sósum. Þegar maður horfir á
japanska matargerð er líka mikið um staka
rétti,“ segir hann og að þetta sé ólíkt franskri
matargerð þar sem þrír réttir er vaninn.
Morgunblaðið/Eggert
Tilvalið til að deila
’ Við erum meðtíu bjórtegundirá krana en ein-hverjar þrjátíu í
heild. Þetta er
svona stemnings-
staður eins og heyr-
ist á tónlistinni.
Áherslan er á að
allir réttirnir geti
verið í bitastærð.
Eyþór Mar Halldórsson heillaðist af hugmyndinni um að bera fram hágæðamat á bar eftir að hafa heimsótt hinn þekkta stað
Spotted Pig í New York. Nú rekur hann staðinn Public House þar sem smáréttir með asísku ívafi eru í fyrirrúmi við hlið bjórsins.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Reyktur lundi með bláberja yuzu og sykruðum heslihnetum. Andarlæri í pönnuköku með engifersósu.
Eyþór Mar Halldórsson er yfirmat-
reiðslumaður og eigandi Public
House – Gastropub við Laugaveg.