Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018
Sumum fannst það ákveðin
niðurlæging þegar enska
landsliðið í knattspyrnu leit-
aði út fyrir landsteinana eftir
þjálfara; réði fyrst Svein-
Jörund Eriksson og síðar Fa-
bio Capello. Undanfarin ár
hafa heimamenn sinnt liðinu,
Roy Hodgson, Sam Allardyce
í korter og núna Gareth Sout-
hgate, maður sem bjó yfir
mjög takmarkaðri
reynslu áður en hann
tók við starfinu. Gengi
liðsins hefur þó verið
prýðilegt í hans tíð enda
þótt HM verði fyrsti
alvöru próf-
steinninn.
Ensku knattspyrnuliðin þrjúsem hófu leik í sextán liða úr-slitum Meistaradeildar Evr-
ópu í vikunni náðu hagstæðum úr-
slitum; Manchester City og
Liverpool eru á leið í næstu umferð
eftir að hafa leyst andstæðingana,
Basel og Porto, upp í frumeindir sín-
ar og það á útivelli og Tottenham
Hotspur náði jafntefli eftir að hafa
lent 2:0 undir gegn Ítalíumeisturum
Juventus í Tórínó. Í næstu viku er
röðin komin að tveimur liðum til við-
bótar, Manchester United sem mæt-
ir Sevilla og Chelsea sem glímir við
sjálfa Börsunga.
Ekki slæmur árangur að eiga
fimm lið meðal þeirra sextán bestu í
álfunni og mögulega, fari allt á besta
veg, fimm lið meðal þeirra átta
bestu. Synd væri þó að segja að sá
árangur væri enskum knattspyrnu-
stjórum að þakka en ekkert þessara
liða býr að innlendum þjálfara og
hefur ekki gert lengi. Raunar er
enginn enskur stjóri eftir í Meist-
aradeildinni og aðeins einn í Evr-
ópudeildinni, Harry … nei ég meina
Graham Potter, sem stýrir Ösku-
busku þeirra Svía, Östersund, í 32
liða úrslitunum, einmitt gegn ensku
liði, Arsenal.
Að hugsa sér, af 48 liðum sem eft-
ir eru í Evrópumótunum tveimur er
aðeins eitt með enskan knattspyrnu-
stjóra. Öðruvísi mér áður brá. Eggið
er svo sannarlega farið að kenna
hænunni.
Það er svo sem gömul saga og ný
en 26 ár eru síðan enskur knatt-
spyrnustjóri stýrði liði til sigurs í
ensku úrvalsdeildinni, Howard
Wilkinson með Leeds United 1992.
Síðasti enski stjórinn til að fagna
sigri í Evrópukeppni var Bobby
heitinn Robson sem gerði Barcelona
að Evrópumeisturum bikarhafa
1997. Síðasti enski stjórinn til að
skila ensku félagi Evróputitli var
Howard Kendall en Everton vann
Evrópukeppni bikarhafa undir hans
stjórn á því herrans ári 1985. Síðan
eru liðin 33 ár. Segi ég og skrifa. Ef
til vill var það ógæfa enskra að það
mót skyldi vera lagt niður? Síðasti
Englendingurinn til að vinna
stærsta Evrópumótið, sem þá hét
Evrópukeppni meistaraliða, var Joe
Fagan með Liverpool 1984.
Von í Dyche og Howe
Eigi þessari þurrkatíð í Evrópu að
ljúka í ár verða Englendingar að
leggja traust sitt á Potter og snjó-
karlana hans í Östersund enda þótt
róðurinn verði þungur eftir 3:0-tap í
fyrri leiknum.
Og ekki eru enskir sparkbændur
líklegir til að uppskera í úrvalsdeild-
inni á næstunni. Sex efstu liðin eru
öll með útlenska karla í brúnni og
fara þarf niður í sjöunda sæti til að
hitta fyrir Englending, Sean Dyche
hjá Burnley. Lið hans er „ekki
nema“ 36 stigum á eftir toppliði
Manchester City.
Til að gæta fyllstu sanngirni þá
hefur Dyche unnið þrekvirki hjá
Burnley, sem er ekki stór klúbbur,
og er annar af tveimur enskum
þjálfurum sem geta látið sig
dreyma um að taka einhvern tíma
við einu af sex stærstu félögunum;
hinn er Eddie Howe hjá Bourne-
mouth sem nú vermir tíunda sæti
úrvalsdeildarinnar. „Dreyma“ er
raunar lykilorðið í þessu sambandi
en ólíklegt er að Dyche og Howe
verði efstir á óskalista stórveld-
anna þegar þau þurfa að stjóra sig
upp næst. Fyrst verður örugglega
horft til Ítalíu, Þýskalands, Spán-
ar, Portúgals, Frakklands, Argent-
ínu eða hvað þessi lönd öll
heita.
Þrír aðrir Englendingar
starfa við knattspyrnustjórnun
í ensku úrvalsdeildinni; Sam
Allardyce hjá Everton (9. sæti),
Roy Hodgson hjá Crystal Pa-
lace (15. sæti) og Alan
Pardew hjá West
Bromwich Albion (20.
sæti) en með fullri virðingu fyrir
þeim ágætu herrum þá eru þeir
komnir fram yfir síðasta söludag;
alltént frá bæjardyrum toppliðanna
séð.
Skoska hlíðin fölnar
Eftir að sir Alex Ferguson settist í
helgan stein er skoska hlíðin heldur
ekkert sérlega fögur. Tveir Skotar
þjálfa nú í ensku úrvalsdeildinni,
David Moyes hjá West Ham United
(12. sæti) og Paul Lambert hjá
Stoke (19. sæti). Stýri þeir liði til
meistaratignar í Englandi eða Evr-
óputitils skal ég byrja að hlusta á
kántrítónlist!
Nei, það er ekki um auðugan garð
að gresja og vandséð hvaðan næsti
„enski“ titill á að koma. Að veðja á
Steven Gerrard er ekki verri kostur
en hver annar, það er að hann vinni
loksins Englandsbikarinn þegar
hann verður tekinn við Liverpool af
málmhausnum Jürgen Klopp.
Lykilsögnin í þessu sambandi er
sem fyrr „að dreyma“.
Enginn vill sjá
Englending!
Eyðimerkurganga enskra knattspyrnustjóra held-
ur áfram; þeir sitja hvergi við kjötkatlana og sá
eini sem eftir er í Evrópukeppni í vetur þjálfar
Öskubuskusund eða hvað það ágæta lið nú heitir.
Gareth
Southgate
Hliðið
í suðri
AFP
Sadio Mané og Mohamed Salah fagna einu af mörgum mörkum Liverpool á Dragao-leikvanginum í Porto í vikunni.
’
Besti árangur ensks knattspyrnustjóra í ensku úrvals-
deildinni, sem sett var á laggirnar sumarið 1992, er annað
sæti. Það var enginn annar en Kevin Keegan sem stýrði New-
castle United þangað veturinn 1996-97.
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
SIMBABVE
HARARE Helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu,
Morgan Tsvangirai, lést í vikunni, 65 ára að aldri, eftir baráttu
við krabbamein. Fráfall hans er mikið áfall fyrir stjórnarand-
stöðuna enda standa
fyrstu frjálsu kosn-
ingarnar fyrir dyrum
eftir að einræðisherr-
ann Robert Mugabe
hrökklaðist frá á liðnu
ári eftir þrjátíu ár á
valdastóli.
BRETLAND
LUNDÚNIR Allar stjörnurnar sem
mæta á Brit-verðlaunin í næstu viku fá
hvíta rós til að næla í barminn til stuðn-
ings #TimesUp-herferðinni. Þetta á við
um gesti, kynna og þá sem troða munu
upp á hátíðinni. Fastlega er reiknað
með því að stjörnurnar taki framtakinu
vel enda hefur #TimesUp-herferðin
þann tilgang að stemma stigu við kynferðislegri áreitni í afþreyingarbransanum.
NÝJA-SJÁLAND
AUCKLAND Tísku-
tímaritið Vogue, af öllum
miðlum, hefur gefi ð hinum
nýbakaða forsætisráð-
herra landsins, hinni 37
ára gömlu Jacindu Ardern,
nýtt gælunafn: Antítrump.
Gælunafnið skýrir sig
sennilega sjálft en Vogue er
á því að Ardern sé allt sem
Donald Trump Bandaríkja-
forseti er ekki. Með ítarlegu
viðtali við ráðherrann fylgir
tískuþáttur þar sem Ardern
klæðist nýsjálenskri hönnun.
ÁSTRALÍA
CANBERRA Malcolm Turnbull for-
sætisráðherra hyggst banna kynmök
milli ráðherra og starfsliðs þeirra eftir
að Barnaby Joyce aðstoðarforsætis-
ráðherra varð uppvís að því að sænga
hjá konu úr starfsliði sínu. Engar reglur
voru brotnar en Turnbull gagnrýnir
Joyce eigi að síður fyrir dómgreindar-
leysi. Svona geri menn ekki. Joyce
verður sendur í leyfi eftir helgina.